Skessuhorn - 15.12.2021, Qupperneq 84
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202184
Skagakonan Brynja Valdimarsdótt-
ir vakti fyrst athygli þegar hún tók
þátt í Idol Stjörnuleit árið 2004.
Brynja fæddist á Srí Lanka en það
var í desember árið 1985 sem móð-
ir hennar hér á landi sótti hana sex
vikna gamla og veikburða og bjó
henni öruggara og betra líf. Blaða-
maður Skessuhorns settist niður
með Brynju á dögunum í einlægt
spjall en það var fyrir sex árum síð-
an sem Brynja stóð á krossgötum í
lífi sínu. Þá var hún að vega og meta
hvort hún ætti að gefa grænt ljós á
formlega upprunaleit en þá hafði
hún nýlega fengið fæðingarvott-
orðið sitt og önnur skjöl tengd því.
Foreldrar Brynju eru þau Valdi-
mar Axelsson og Anna Ágústsdótt-
ir og Brynja á tvo syni; Erni Loga
sem er átta ára og Freystein Jaka,
þriggja ára. Brynja á bróður sem
er ættleiddur frá Gvatemala og er
fjórum árum eldri en hún. Alls voru
sex stelpur sem voru ættleiddar og
komu á sama tíma á Akranes, allar
fæddar árið 1985, og ólust þær all-
ar upp á Skaganum. Brynja segir að
þær hafi allar vitað af hvor annarri
þegar þær voru litlar og nokkrar af
þeim eru vinkonur í dag.
Búin til úr súkkulaði
En hvernig var að alast upp á Skag-
anum? „Það var mjög gott, þetta
er samfélag sem heldur utan um
sitt fólk finnst mér og það var
smá huggun og stuðningur að
þær hafi alist upp hér líka. Mað-
ur var ekki bara ein, þegar mað-
ur hugsar út í það. Lítil börn geta
verið svo forvitin, þau héldu að ég
væri búin til úr súkkulaði og hár-
ið mitt úr lakkrís. Þau áttu það til
að naga á mér hárið, ég skildi ekki
neitt og kennarinn tók þetta dá-
lítið inn á sig. Í dag sér maður þetta
í öðru ljósi en auðvitað voru börn-
in bara að prófa sig áfram. Þegar
ég var lítil vissi ég ekki alveg hvað
það að vera ættleiddur var, ég hélt
að það væri að kaupa barn. Ég sagði
oft við mömmu mína þegar ég var
lítil: „Mamma, viltu kaupa barn
fyrir mig? Kaupa litla systir handa
mér? Kaupa? Já, þú keyptir mig!“
Á þessum árum var þetta svo nýtt
fyrir öllum og lítið upplýsinga-
flæði.” Brynja segist lítið hafa orðið
vör við fordóma á þessum árum og
segir að hún hafi verið í vernduðu
umhverfi. „Þetta var lítill bær og
kannski gerði ég mér ekki grein
fyrir því fyrr en ég varð fullorðin.
Í dag finn ég meira fyrir fordómum
en ekki hér á Akranesi. Samfélag-
ið hér er það upplýst og allir skyld-
ir einhverjum. Ég hef ferðast um
allan heim og hef orðið fyrir meiri
fordómum þar heldur en heima,
sem er á vissan hátt skrýtið.“
Áhugaverð reynsla
Brynja segir að tónlist hafi alltaf
verið stór hluti af lífi hennar, hún
sé hennar ástríða og heilun. Hún
segist vinna við tónlistina af og til
en hún gefi ekki það vel af sér að
hægt sé að starfa eingöngu við tón-
listina. Brynja var aðeins 19 ára
þegar hún tók þátt í Idol Stjörnuleit
á Stöð 2 sem voru gríðarlega vin-
sælir þættir á þeim tíma. Hvern-
ig var sú reynsla? „Það var áhuga-
verð reynsla en kannski ekki minn
tebolli. Það var ekki leyfilegt að
vera með nein hljóðfæri og ég fékk
ekki í raun að vera ég sjálf. Það
var alveg áreiti sem fylgdi þessu á
tímabili eða 15 mínútur af frægð
eins og maður segir. Þetta var rosa-
lega vinsælt á sínum tíma og mað-
ur var kannski í Smáralindinni fyrir
jólin að versla og þá sá maður ein-
hver risa skilti af sjálfum sér. Þetta
var hálfóraunverulegt og alls staðar
verið að tala um mann í útvarpinu
og víðar. Þetta var alveg sjokk fyr-
ir saklausa sveitastelpu sem fannst
gaman að syngja og mikið áreiti,
maður gat ekki farið út að skemmta
sér með vinkonum sínum án þess
að væri verið að hrópa á mann og
þvíumlíkt. Þetta var mikil reynsla
og hjálpaði manni að koma fram,
vera ég sjálf og setja fólki mörk.
Þó maður sé í sjónvarpi þá er mað-
ur ekki alltaf aðgengilegur og á sitt
eigið einkalíf.“
Hjartans mál
Árið 2016 ferðu að huga að því
að leita uppruna þíns. Hvað var
það sem ýtti þér af stað í þá veg-
ferð? „Það hefur alltaf verið þessi
forvitni, alltaf verið undirliggj-
andi í mér. Hver er ég, hvaðan kem
ég? Það sem ýtti mér af stað var
þegar ég gekk með eldri drenginn
minn að þá var spurt um sjúkra-
söguna. Eru einhverjir sjúkdóm-
ar í fjölskyldunni? Ég hafði ekki
hugmynd um það, vissi ekki neitt.
Það ýtti mér svolítið út í það að
vilja vita hvaðan ég væri. Þannig að
árið 2015 byrjar þetta ferli þegar ég
sótti um hjá innanríkisráðuneytinu
um fæðingarpappírana mína en þar
voru geymd ættleiðingarskjölin og
fékk ég aðgang að þeim. Þetta var
áður en þættirnir hennar Sigrún-
ar Óskar á Stöð 2, Leitin að upp-
runanum, byrjuðu. Síðar var mér
boðið að vera með í þáttunum en
fannst það ekki vera mín leið. Þetta
er frábær leið til að leita upprunans
en mér fannst hún ekki henta mér.
Ég var tilbúin að syngja í sjónvarpi
en ekki taka þátt í einhverju sem
varðaði hjartans mál. Ég kynnt-
ist svo henni Auri sem hafði verið
í þessum þáttum sem bjó á Ísafirði
og er frá Srí Lanka. Hún hafði sam-
band við mig eftir að ég kom fram
í viðtali í DV og þá byrjaði hún að
hjálpa mér. En ég fann aldrei neinn
fyrr en nokkrum árum seinna og
það var í gegnum svokallað DNA
app. Það eru auðvitað rúmlega
meira en þrjátíu ár síðan og það
er tæplega helmingur landsmanna
skráður í þjóðskrá þarna úti. Sum-
ir vilja ekki láta finna sig. Ég ákvað
að fara á netið árið 2018 og taka
DNA. Ári seinna fæ ég skilaboð í
símann úr þessu appi, 23andMe,
DNA Testing, og þar stóð: „Ætt-
ingi fundinn.“ Ég fór inn á það og
sé skyldleikann og sé að við erum
þokkalega vel skyld og að hann
býr í Los Angeles, þessi nýfundni
frændinn minn. Hann og mamma
eru systkinabörn og það er nánasti
ættingi sem ég hef fundið nú þegar.
Hann var bara þarna inni af ein-
skærri forvitni, er læknir í LA og ég
var aldrei að horfa í þá átt heldur til
Srí Lanka. Hann tengdi mig síðan
yfir til fólksins á Srí Lanka og nú
eru þau orðin partur af mínu lífi og
eru búin að vera í góðu sambandi
við mig í eitt og hálft ár. Þau hafa
kennt mér svo mikið um menn-
inguna, tungumálið og ég lít eigin-
lega á þau sem fjölskyldu. Ég spjalla
við hann í gegnum síma og þau öll
eru að reyna að hjálpa mér sem er
kannski ekki sjálfsagt.“
Pappírarnir falsaðir
Brynja segir einnig að hún hafi
ekki enn fundið neinn náskyld-
an sér, engan svona í nánustu fjöl-
skyldu. „Við erum að reyna að
rekja niður ættartréð og reyna að
finna einstaklinga. Það virðist vera
þannig að þegar var verið að tala
um ættleidd börn áður fyrr að þá
var svo mikil leynd og fáir vissu af
því. Þetta var vel falið. Ég var að
komast að því að pappírarnir mín-
ir eru falsaðir, það var lögfræðing-
ur sem var að vinna í þessum mál-
um þarna úti sem var bara að reyna
að græða. Hún setti börn til ætt-
leiðingar, bara til að fá pening og
falsaði alla pappíra. Þannig að það
er allt í lausu lofti og ég er enn að
leita. Ég ætla ekki að segja að ég sé
komin á byrjunarreit aftur því að ég
er búin að finna einhverja ættingja
en finnst samt lítið hafa þokast.
Það er nánast ómögulegt að finna
einhvern út frá þeim þannig að ég
ákvað að fara DNA leiðina. Prófíll-
inn minn inni á gagnagrunninum
er alltaf opinn og síðan bætast alltaf
við einhverjir ættingjar. Ég þarf
bara að vera dugleg að fylgjast með
og fara þarna inn til að sjá tengslin.
Ættartréð kemur alltaf upp og hvar
þau eru staðsett miðað við mig.“
Fílar og risaskjaldbökur
Alþýðuveldið Srí Lanka er eyríki
út af suðausturströnd Indlands-
skaga. Helstu undirstöður efna-
hags Srí Lanka eru ferðaþjónusta,
fataframleiðsla og landbúnaður.
Landið hefur lengi verið þekkt fyr-
ir framleiðslu á kanil, hrágúmmíi
og tei. Íbúar eru um 20 milljónir
og þar af búa tæplega fimm millj-
ónir í stærstu borginni, Colombo.
Höfuðborgin, Sri Jayawardenep-
ura Kotte, er í úthverfi í Colombo.
Fyrir fjórum árum fór Brynja í
heimsókn með vinkonu sinni til Srí
Lanka og fannst það æðislegt:
„Þetta var mikil upplifun en ég
var þarna í tvær vikur. Ég ætlaði að
leita upprunans en þegar maður er
ekki með tengilið þá er það svo tak-
markað og erfitt. Tilgangurinn var
aðallega að kynnast menningunni,
sjá fólkið, sjá þetta land. Þetta var
mjög framandi, maður var kannski
að labba á götunni og sá allt í einu
„Réttur hvers og eins að leita uppruna síns“
Rætt við Brynju Valdimarsdóttur um leit hennar að upprunanum
Brynja stödd í verndarskýli fyrir skjaldbökur á suðausturströndinni.
Brynja í faðmi móður sinnar, lengst til vinstri, á Srí Lanka árið 1985.