Skessuhorn - 15.12.2021, Qupperneq 85
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 85
BESTU ÓSKIR UM GLEÐILEG JÓL
OG FARSÆLT KOMANDI ÁR
er að líða
Haraldur Benediktsson
Teitur Björn Einarsson
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
Starfsfólk og sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar sendir íbúum
og landsmönnum öllum hugheilar
jóla- og nýárskveðjur með
þökkum fyrir ánægjulegt
samstarf á líðandi ári
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
fíl bara labba í veg fyrir mann. Á
ströndinni voru kannski risa skjald-
bökur, 120 ára, að spóka sig. Þetta
var í Matale og Kandy, miðsvæð-
is á Srí Lanka, þaðan er ég og mitt
fólk og ættingjar mínir búa þar enn.
Þetta er afar rótgróið, fólk er fast
á sínum stað í lengri tíma. Það var
æðislegt að fara þarna út, þetta er
fallegt land og villt dýr út um allt
og fólkið allt öðruvísi. Vinkona mín
sem fór með mér er rauðhærð og
ljós á hörund og vakti mikla athygli
og fólk starði á hana af miklum
áhuga. Ég fann að ég passaði á ein-
hvern hátt inn í hópinn. Eitt sinn á
göngu hélt hún að hún hefði týnt
mér í mannhafinu og byrjaði að
kalla yfir hópinn: Brynja, hvar ertu?
Ég stóð við hliðina á henni nánast
og sagði: „Ég er hér“ og þegar hún
fann mig þá sagði hún: „Ég hélt
ég hefði týnt þér!“ Við hlógum að
þessu eftir á. Smá húmor!“
Stundum eru
öll sund lokuð
Kanntu eitthvað í tungumálinu?
„Ég reyni en það er erfitt að læra
tungumálið í gegnum síma en mig
langar að læra tungumálið sem
heitir Sinhala. Ég ætla að reyna að
koma því inn í áætlunina hjá mér
en það er erfitt eftir allan þenn-
an tíma. Það er mikið af handa-
hreyfingum sem er táknrænt fyr-
ir tungumálið og allt öðruvísi skrift
líka. Það eru einhverjir hringir og
munstur þannig að ég er ekki al-
veg þar.“ Brynja hefur þessa stund-
ina ákveðið að setja þessi mál varð-
andi ættleiðinguna og allt í kring-
um það á smá bið. „Þetta tekur á
andlega að taka svona tarnir, stund-
um eru öll sund lokuð þannig að
maður kemst ekkert lengra og svo
fær maður kannski fréttir eftir ein-
hverja mánuði. Maður verður alveg
þreyttur eftir svona ferli og sérstak-
lega að vera búin núna að standa í
þessu í sex ár. Ég var að senda annað
DNA til annarrar rannsóknar með
stærri gagnagrunn og það er leyft
fólk frá Srí Lanka þar inni. En í
fyrra var ekki fólk frá Srí Lanka þar
og því ætti að vera meiri möguleiki
núna að finna einhvern þar.“
Það er alltaf von
En hvað veit Brynja um foreldra
sína á Srí Lanka? „Það er rosa lítið
vitað um föður minn, það stóð ekk-
ert í pappírunum um hann en þess-
ir ættingjar sem ég fann eru skyldir
mér í móðurlegg þannig að það er
í raun ekkert sem kemur frá föður-
megin. Það er sagt að móðir mín sé
fædd í apríl árið 1955 og því gæti
vel verið að hún sé á lífi miðað við
aldurinn. En síðan er bara spurn-
ing hvort pappírarnir séu að segja
satt. Ég gæti þess vegna átt systkini
báðum megin en hef ekki hugmynd
um það. Þau vilja meina það, ætt-
ingjar mínir úti, að ég eigi bróðir
sem var eftir úti og því er alltaf von.
Þau vilja líka meina það að móð-
ir mín hafi dáið þegar ég fæddist.
Þess vegna finnst ekkert í þjóðskrá
um hana en það er erfitt að stað-
festa allt svona, þau eru að aðstoða
mig í því núna.“
En að lokum, finnst þér þú hafa
lært mikið af þessu ferli öllu saman?
„Alveg rosa margt, bæði í þolin-
mæði og þrautseigju og einnig að
búast við öllu eða engu. Aldrei að
gefast upp og það eru alltaf ein-
hverjar dyr sem eru ólæstar. Þetta
hefur kennt mér æðruleysi og að
sætta sig við það sem kemur. Ég
hef þroskast mikið á síðustu árum.
Ég fann ekki mikið fyrir því að vilja
leita uppruna míns þegar ég var
yngri en eftir að ég varð eldri þá
kviknaði áhuginn. Þessi tilfinning
er sterk en er kannski ekki þannig
hjá öllum. Ég hef þroskast og er
hugrakkari en ég hélt að ég væri.
Það er réttur hvers og eins að leita
uppruna síns,“ segir Brynja að lok-
um.
vaks/Ljósm. aðsendar
Freysteinn Jaki er þriggja ára.
Ernir Logi, eldri sonur Brynju, er átta ára.