Skessuhorn - 15.12.2021, Blaðsíða 91
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 91
Hollvinasamtök Borgarness hafa
verið með ýmis verkefni á sinni
könnu á árinu sem er að líða en
markmið samtakanna er að vinna
að bættum lífsgæðum í Borgarnesi,
bæði hvað varðar umhverfi, fram-
boð menningar og afþreyingar fyr-
ir bæjarbúa og gesti Borgarness. Í
samstarfi við þjónustuaðila í Borg-
arnesi, Elínu Elísabetu Einars-
dóttur teiknara, Borgarbyggð og
Borgarverk ehf. var gefið út nýtt
götukort af Borgarnesi. Kortið er
nú komið í dreifingu um alla Borg-
arbyggð og hefur því verið vel tek-
ið. Meðal annarra verkefna í um-
sjón Hollvinasamtakanna var að
koma upp húsaskiltum á elstu hús
Borgarness. Í samstarfi við Heiðar
Lind Hansson sagnfræðing, Heiði
Hörn grafískan hönnuð, Samtök
sveitarfélaga á Vesturlandi og Borg-
arbyggð voru sett upp níu skilti á
elstu hús Borgarness. Á skiltunum
eru ártöl, hvenær húsin voru byggð,
nöfn húsanna, auk götuheita og
númers. Ætlunin er að halda þessu
verkefni áfram svo að öll hús eldri
en 100 ára fái þessi húsaskilti til að
varðveita byggingarsögu bæjarins.
Brákarhátíð með
breyttu sniði
Bæjarhátíðin í Borgarnesi, Brák-
arhátíð, kemur ávallt í hlut
Hollvinasamtaka Borgarness að
skipuleggja ár hvert. Að þessu sinni
var ákveðið að halda hátíðina með
breyttu sniði með tilliti til heims-
faraldursins. Viðburðum var því
dreift yfir sumartímann, frá maí-
mánuði og fram í júlí. Bæjarbúar og
gestir gátu sótt fjölbreytta viðburði
eins og listasmiðju hjá listakonunni
Michelle Bird með sérstöku Brák-
arþema. Viðburðurinn „Hreinsum
Borgarnes“ var haldinn 23. júní í
samstarfi við Borgarbyggð þar sem
bæjarbúar voru hvattir til að hreinsa
í sínu nærumhverfi. Brákardag-
ur fór fram 26. júní og hófst með
skemmtihlaupi frá Granastöðum
yfir í Brákarey þar sem Kvenfélags-
konur buðu hlaupagörpum og öðr-
um gestum í dögurð. Þriðja júlí var
svo haldinn sérstakur Bjargslands-
dagur í fyrsta skipti. Þar var Heiðar
Lind Hansson sagnfræðingur með
sögugöngu um Bjargsland. Gangan
endaði svo á Bjargi þar sem húsráð-
endur á Bjargi buðu í kaffi og vöffl-
ur. Spennandi verkefni eru á döf-
inni hjá Hollvinasamtökum Borg-
arness en þar ber hæst að nefna
Frisbígolfvöll í Borgarnesi og upp-
setningu á upplýsingaskilti í Borg-
arnesi ásamt því að skipuleggja
Brákarhátíð 2022.
glh
Kjartan Ragnarsson,
einn af eigendum
Landnámsseturs
Íslands, ánægður
með nýju húsaskiltin
fyrir bæði hús Land-
námssetursins.
Viðburðaríkt ár hjá Hollvinasamtökum Borgarness
Meðlimir Hollvinasamtaka Borgarness glöð með nýtt Borgarneskort. F.v: Gunn-
hildur Lind Hansdóttir, Katrín Huld Bjarnadóttir, Hafþór Ingi Gunnarsson og Lilja
Hrönn Jakobsdóttir.
Margrét Freyja Viðarsdóttir skilar sínu á „Hreinsum Borgarnes“ degi í sumar og
sópar hér meðfram gangstéttinni við heimili sitt á Böðvarsgötunni.