Skessuhorn - 15.12.2021, Page 100
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021100
Ragnheiður Stefánsdóttir heldur
úti samfélagsmiðlinum Matarlyst á
Instagram og Facebook. Hún fær-
ir hér lesendum Skessuhorns góm-
sætar uppskriftir nú fyrir jólin en
segir okkur jafnframt frá hefðum
sem hún heldur fast í við undirbún-
ing jólanna.
Vildi stærsta tréð
Ragnheiður er Skagakona og seg-
ir að fyrir sig sé aðventan dásam-
legur tími. „Notalegheitin hefj-
ast með því að kveikja á Útvarpi
Akranes, en þá kemst ég í jólagír-
inn. Ég man eftir mér sem lítilli
stelpu þessa fyrstu helgi í aðventu.
Mamma setti allt á fullt fyrir jólin,
málaði veggi, skreytti og við bök-
uðum saman smákökur og útvarp-
ið ómaði undir alla helgina,“ segir
Ragnheiður. „Önnur hefð frá því
ég man eftir mér sem við viðhöld-
um enn er að við fjölskyldan för-
um að höggva jólatré. Ég man eft-
ir því að ég grenjaði heil ósköp yfir
því að stærsta tréð var ekki hoggið.
En ég áttaði mig fljótlega á því að
það þýddi ekkert, því þau tóku ætíð
það tré sem þurfti að grisja í skóg-
inum hverju sinni. Í dag er ég sjálf
með gervitré en næ alltaf í greinar
til þess að fá ilm í húsið.“
Kökur á aðventunni
Ragnheiði finnst notalegt að bjóða
fjölskyldunni í aðventukaffi. Þá
tilheyrir að hita heitt súkkulaði,
þeyta rjóma, baka hveitikökur eins
og amma gerði, smyrja þær vel
af smjöri og góðu áleggi eins og
hangikjöti, reyktum laxi og osti.
„Svo eru náttúrulega smákökurnar
og lagtertan ómissandi. Mér finnst
að það eigi að njóta þess að borða
smákökur á aðventunni. Jólahátíðin
sjálf er meira að borða góðan mat
og gæða sér á tertum, ís og að sjálf-
sögðu á einum og einum konfekt-
mola.
Með veislu á Þorlák
Ein af mínum jólahefðum er að
halda jólaveislu fyrir fjölskyldu og
vini,“ segir Ragnheiður. „Ég gef
mér nokkra daga í það að undir-
búa veisluna, hef grafið ærkjöt,
andabringur og lax. Einnig útbý
ég snittur og baka heil ósköp af
allskyns gúmmelaði. En einnig hef
ég útbúið dásamlega humarsúpu,
bakað brauð og jóla pavlovu, sem
er mjög ljúffeng, er svo einföld og
góð. Nú í ár verð ég með veisluna
á Þorláksmessu eins og í fyrra. Það
fékk góðar undirtektir hjá gestun-
um, sem eru nú þegar búnir að taka
frá hluta af deginum fyrir jólaveisl-
una.“
Veisla í hesthúsinu
Ragnheiði langar að lokum að
segja frá einum af hennar uppá-
halds dögum. „Hluti af jólagleðinni
felst í því að ég er hestakona. Ég
og pabbi erum saman í því sporti
ásamt hluta af fjölskyldunni. Á milli
jóla og nýárs eru hrossin tekin inn
í hesthús og þennan dag er sleg-
ið upp stórveislu í hesthúsinu. Þá
verður mjög gestkvæmt, ekta svona
stemmari. Við systur og mamma
útbúum dýrindis kræsingar, m.a.
tartalettur, rækjubrauðtertur, tertur
og tínum smákökur á disk,“ segir
Ragnheiður að endingu. se
Fléttubrauð
Þetta brauð baka ég oft og iðulega,
það heppnast alltaf fullkomlega, er
einfalt og virkilega gott. Úr uppskrift-
inni fáið þið þrjú væn fléttubrauð.
Hráefni:
625 ml volgt vatn
1 pk þurrger
2 msk sykur
2 tsk salt
1 kg brauðhveiti þetta bláa frá
kornax
1 egg til að pensla með í lokin
Aðferð:
Vatn, ger, sykur og salt er sett
saman í hrærivélarskál, látið standa
um stund, pískið aðeins saman.
Hveiti er bætt út í gerblönduna.
Vinnið saman á lágum hraða í 5
mín. Látið lyfta sér undir klút í 30
mín.
Skiptið deiginu í þrjá hluta og svo
hverjum og einum aftur í þrennt.
Rúllið út í lengjur, festið þrjár
lengjur saman á öðrum endanum
brjótið endann niður, fléttið saman,
og lokið endanum á sama hátt. Að-
eins að velta endanum aftur og
undir.
Látið lyfta sér aftur í 20 mín.
Pískið saman 1 egg, penslið deig-
ið.
Hitið ofninn í 190 gráður og
blástur, bakið í 25 mínútur.
Ég frysti restina af brauðinu,
sker það í hæfilega stóra bita og set
í poka, tek svo út þegar tilefni er til.
Baileys ísterta
með Daim
Þessi ísterta er virkilega góð og
sparileg, ef þið eigið saltkaramellu
Baileys þá mæli ég eindregið með
að þið notið hann. Njótið vel!
Hráefni
Marens
3 eggjahvítur
150 g sykur
100 g valhnetur saxaðar (val má
sleppa)
Aðferð:
Hitið ofninn í 120 gráður á blæstri.
Eggjahvítur þeyttar þar til þær
byrja að freyða þá er sykrinum bætt
út í, stífþeytið. Bætið valhnetum út
í með sleikju.
Teiknið hring eftir 24 cm bök-
unarformi á bökunarpappír, klippið
út, setjið í botninn á forminu. Setjið
marensinn ofan í og dreifið út.
Setjið inn í 120 gráðu heitan ofn-
inn í 90 mín.
Látið botninn kólna áður en ís-
blöndu er hellt yfir.
Baileys ís með Daim
Hráefni:
6 eggjarauður
90 g sykur
75-100 ml Baileys eða Baileys með
saltkaramellu
1/2 l rjómi léttþeyttur
1 poki daim kurl, saxið örlítið niður.
Aðferð:
Léttþeytið rjómann, leggið til hlið-
ar.
Eggjarauður og sykur þeytt þar
til létt og ljóst, bætið út í Baileys,
látið vélina ganga á lægsta hraða
þar til komið er vel saman í ca1/2
-1 mín.
Blandið rjómanum varlega saman
út í eggjablönduna með sleikju í
smáum skömmtum. Að lokum er
daim súkkulaði bætt út í.
Samsetning: Losið um hringinn á
forminu, klippið bökunarpappír eft-
ir endilöngu nógu langan þannig að
hann nái allan hringinn á forminu,
komið pappírnum fyrir, klemmið
aftur saman. Hellið ísblöndunni yfir
botninn, jafnið út, setjið í frysti yfir
nótt. Skreytið að vild.
Dásamleg skinkuhorn
Hráefni:
100 g smjör við stofuhita
900 g brauðhveiti
60 g sykur setjið 1 msk af þessu út í
mjólk og gerblönduna
1/2 tsk salt
1/2 líter nýmjólk
1 pakki þurrger
250g kotasæla
2 stk skinkumyrja
1 egg slegið saman til að pensla
hornin með áður en þau fara inn í
ofninn.
Aðferð:
Blandið saman í hrærivélar-
skál hveiti, sykri og salti, blandið
saman með króknum. Bætið
mjúku smjöri saman við og hrærið
þar til það er komið vel saman við.
Hitið mjólkina í potti þar til hún
verður ylvolg eða u.þ.b 28 gráð-
ur, takið pottinn af hellunni, því
næst er 1 pakka af þurrgeri bætt út
í, (gott að setja 1 msk af sykri út í
til að örva gerið) gerið látið leys-
ast upp í mjólkinni, pískað örlítið
saman, kotasælu er því næst bætt
út í mjólkina, blandið henni saman
við.
Hellið að lokum mjólkur-ger
blöndunni út í hrærivélarskálina,
látið vélina hnoða deigið í u.þ.b
5 mín á lægsta hraða. Gott er að
vera með auka hveiti á kantinum
ca 1 dl bara ef deigið er of blautt,
það á ekki að klístrast við fingurna.
Látið hefast í hrærivélarskálinni
undir klút í 30 mín.
Skiptið deiginu í 5 hluta, fletjið
út í hring, skerið í 8 sneiðar, skellið
1 tsk af skinkumyrju á hverja sneið
og rúllið henni svo upp. Látið hef-
ast í 20 mín. Sláið 1 egg saman og
penslið skinkuhornin áður en þau
fara inn í ofninn.
Hitið ofninn í 200 gráður. Bak-
ist í 10-12 mín eða þar til hornin
verða gullinbrún.
Frystið skinkuhornin, þannig
geymast þau best.
Heldur jólaveislu fyrir fjölskyldu og vini