Skessuhorn - 15.12.2021, Blaðsíða 109
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 109
Dýrabær • Stillholti 23 • Sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
GLEÐILEG JÓL!
DÝRABÆR
AKRANESI
Jón Halldór með samnemendum sínum í háskólanum í Southampton.
neitt um verkefnið sem unnið er að
hverju sinni. Verkefnin eru oft und-
ir dulnefnum til þess að fjölmiðlar
og fleiri séu ekki að hnýsast í kring-
um verkefnin.“
Sló Bretlandsmet í bog-
fimi sem stendur enn
Jón Halldór hefur látið að sér kveða
í bogfimi. Aðspurður um hvern-
ig það hafi komið til segir hann: „Í
Háskólanum í Reykjavík er mesta
vinnuálag sem ég hef upplifað á æv-
inni. Ég hef unnið við ýmislegt. Ég
vann við landanir úr fiskiskipum
í mörg sumur í 40°C frosti allan
daginn en Háskólinn í Reykjavík
gekk næstum því fram af mér. Þar
voru verkefnaskil í hverju einasta
fagi í hverri einustu viku, þannig
að við höfðum aldrei tíma til þess
að mæta í kennslustundir, við vor-
um uppteknir við að vinna verkefni.
Þegar ég kem út til Bretlands voru
fimm skilaverkefni yfir allt árið,
tólf kennslustundir á viku og eig-
inlega asnalega mikill frítími. Ég
bjó við hliðina á bogfimisetri og
var að skjóta um 20 klukkutíma á
viku. Ég vann öll mót sem ég fór á
í heilt ár. Ég endaði með því að slá
Bretlandsmetið fyrir nýliða, novice
archer, en það eru keppendur sem
hafa skotið í minna en eitt ár. Það
met stendur ennþá. Þegar ég setti
það met þá var það þremur stigum
undir þáverandi Íslandsmeti. Þegar
ég kom heim hafði Bogfimisam-
band Íslands samband og bauð mér
að taka þátt í undirbúningi undir
stórmót erlendis. Ég átti hins vegar
engan búnað, hafði alltaf fengið
allt lánað, bara keypt örvar og eitt-
hvað svona smádót. Þetta var því
bara svona hobbí sem ég tók þátt í,
kláraði og fór svo í eitthvað annað.“
Stökk í fallhlíf á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum
Jón Halldór hefur stundað
fallhlífar stökk árum saman. Fyrsta
stökkið var árið 2004. „Ég fékk
delluna alveg um leið. Strax eft-
ir fyrsta stökkið spurði ég kennar-
ann: Hvenær er næsta námskeið?
Næsta sumar, var svarið sem ég
fékk. Ég spurði á móti: Hvar get ég
tekið það núna? Á Flórída! Ég var
kominn til Flórída mánuði seinna
og tók eitthundrað stökk á einum
mánuði. Stundum tókum við átta
til níu stökk á dag. Mest náði ég tólf
stökkum á einum degi.“
Á meðal þess sem boðið var
upp á í Flórída var fallhlífarstökk
úr loftbelg. „Til þess þurfti ég að
vera með 50 stökk og B réttindin.
Ég var bara kominn með 48 stökk
þannig að ég leigði mér aðra fall-
hlíf og var með „pakkara.“ Þegar
ég lenti eftir hvert stökk þá greip ég
aðra fallhlíf og henti hinni í pakk-
arann og rauk upp í næstu flugvél.
Svona gekk þetta allan daginn. Ég
var kófsveittur og borðaði á hlaup-
um. Ég náði þessu á endanum en
daginn eftir var of vont veður fyrir
loftbelgsflug þannig að ég fékk ekki
að fara. Ég hef því aldrei hoppað úr
loftbelg.
Mig hafði langað lengi að stökkva
í fallhlíf yfir Vestmannaeyjum. Það
er hins vegar þannig með Vest-
mannaeyjar að fjöllin í kringum
Herjólfsdal gera þér lífið leitt, fyrir
utan augljósu staðreyndina að það
er sjór allt í kring. Það var blanka-
logn þennan sunnudag og ég var
að vinna í kvikmyndaverkefni fyrir
austan. Ég hringi í Flugmálastjórn
og fæ leyfi fyrir stökkinu. Þeir
spurðu hvort ég ætlaði að fá leyfi
þjóðhátíðarnefndar fyrir stökkinu
en ég sagðist bara biðja þá afsökun-
ar. Þegar ég lenti munaði reyndar
minnstu að ég lenti á kömrunum.
Þegar ég var lentur kom gæslan til
mín og spurði: „Fyrir gefðu vinur,
ertu með armband?“ Ég svaraði:
Nei, ætlið þið að henda mér út?
Nei, við ætlum sko að gefa þér arm-
band. Þeir geymdu svo fallhlífina
mína inni í gámi hjá lögreglunni í
fjóra klukkutíma. Ég tók svo bara
fyrsta Herjólf upp á land.“
frg /Ljósm. aðsendar.
Keppt í bogfimi.
Starfsfólk Skessuhorns óskar Vestlendingum öllum gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða
Gleðileg jól
Fréttaveita Vesturlands