Skessuhorn - 15.12.2021, Blaðsíða 112
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021112
Elsku lesandi.
Í skrýtnu húsi í nágrenni höfuð-
borgarinnar safnast þrjátíu börn og
unglingar hverja helgi. Í húsinu eru
engin fullorðins húsgögn sem þarf
að passa og ekkert svo dýrt að það
megi ekki brotna.
Þar má hlæja og gráta, hoppa og
skoppa og vera maður sjálfur.
Einkunnarorð starfseminnar
eru gleði, traust og nánd og börn-
in og unglingarnir eru komin til að
gleyma sér yfir helgi og fá frí frá
aðstæðum sínum. Þau eru komin til
að upplifa gleði og læra að treysta.
Hins vegar hverfur barnsgleðin
oft þegar búið er að lesa á kvöldin
og svefninn bíður átekta. Þá leita
hugsanir og áhyggjur á litla huga
og þau byrja að hvísla.
Þau hvísla sögurnar í myrkrinu
eins og starfsfólkið kallar það, sög-
ur um upplifanir sínar, áhyggjur,
reynslu og líðan. Aðstæður þeirra
eru nefnilega ekki alltaf til fyrir-
myndar og sum þessara barna hafa
upplifað alvarleg áföll, vanrækslu,
lítið sem ekkert stuðningsnet og
óviðunandi heimilislíf. Sum þeirra
kunna illa á félagsleg samskipti og
lifa við félagslega einangrun.
Það ætti því að vera stærsta jóla-
ósk samfélagsins að æska hvers
barns megi einkennast af nánd,
gleði og kærleika og að hvar sem
er í heiminum líti hinir fullorðnu
aldrei undan heldur horfi með vök-
ulum og kærleiksríkum augum.
Jólaguðspjallið er svo alls ekki
fjarri þessum börnum því fæðingar-
saga Jesú er að hluta til saga margra
barna. Að fæðast í heiminn án þess
að allt sé tilbúið, að fæðast í heim-
inn og bera með sér von og kær-
leika þrátt fyrir ytri aðstæður. Öll
erum við nefnilega afsprengi þeirra
félagslegu skilyrða sem við fæð-
umst og búum við og við vitum
að líf fólks er ekki og þróast ekki
eftir beinni línu þar sem tækifæri
og breytingar koma í réttri röð.
En eins og í jólaguðspjallinu, þá
var Jesú fyrir löngu í ætlunarverki
og sköpun Guðs, eins og við öll.
Nema hvað að sérstaða hans var að
framkvæma það óframkvæmanlega.
Hann kom til þess að við mættum
verða frjáls, heil og óhult. Auð-
mjúkur og allslaus en ekki í valdi
og krafti, en þó sterkari en allt vald
á jörðu. Við þurfum bara að ljúka
upp dyrum hjarta okkar, helgidómi
okkar, eins og Valdimar Briem orti
svo fallega í einum af sálmum sín-
um:
Hjarta þitt að helgidómi
Hann vill gjöra og búa þar.
Opna glaður hjartans hús,
hýs hinn tigna gestinn fús.
Getur nokkuð glatt þig fremur:
Guð þinn sjálfur til þín kemur.
Þar sem Guð kemur, þar er Guð,
og hvorki ótti né nokkuð annað
fær hrakið Guð burt. Guð kemur
með gjafir sínar inn í líf okkar, gjaf-
ir vonar, réttlætis, lausnar, heilun-
ar, kærleika og gleðilegs boðskapar.
Guð vill ganga með okkur öll okkar
spor, hversu smá eða stór sem þau
eru. Hversu ljúf eða sár.
Nú er undirbúningstími, tími til-
hlökkunar og eftirvæntingarinnar,
sjálf aðventan þar sem Jesús segir:
Ég stend við dyrnar og kný á.
Á aðventunni er gott að líta aft-
ur yfir okkar andlega hús. Horfa
í spegil sálar okkar og undirbúa
komu Krists í hjarta okkar á kær-
leiksríkan og nærandi hátt, með
þakklæti, bæn og með því að eiga
ábyrgðarfullt, gefandi og traust
samfélag. Þær gjafir sem Kristur
kemur með inn í líf okkar eru aldrei
slæmar gjafir og vonandi verð-
um við aldrei svo andlega snauð
að við þiggjum þær ekki. Við get-
um orðið fyrir erfiðri reynslu, verið
beitt órétti á ýmsan hátt sem erfitt
er að sjá fram úr en hann, sem leysti
þjáða og læknaði blinda, mæt-
ir okkur fyrst og fremst með kær-
leika og umburðarlyndi. Gjafir sem
nýtast okkur til þroska og reynslu,
gjafir sem við þurfum að finna stað
fyrir í hjarta okkar.
Aðventan og jólin eiga í hug-
um flestra að kalla fram kærleika,
von, trú og tilhlökkun. En þessi
tími kallar líka oft fram allskon-
ar tilfinningar og uppgjör innra
með okkur. Flóknar bernskutilf-
inningar, nýjar tilfinningar, tilfinn-
ingar sorgar og söknuðar og svo má
lengi telja. Hvorki áföll né sorg yf-
irgefa okkur á þessum tíma heldur
verður alltaf hluti af reynslu okk-
ar og sögu, tilfinningum og við-
brögðum. Því er svo mikilvægt að
við sýnum okkur sjálfum og öðrum
mildi og skilning. Að við sækjum
okkur annað ljós en dagsljósið sem
er af svo skornum skammti á þess-
um árstíma. Jesús sagði: „Ég er ljós
heimsins. Sá sem fylgir mér, mun
ekki ganga í myrkri, heldur hafa
ljós lífsins.
Ljós lífsins er kærleikur og sú
vissa að við erum elskuð. Ljós lífs-
ins er þetta einstaka og sérstaka
sem færir ró og frið í hús hjartans.
Tökum því þátt í verki Krists að
lina þjáningar, veita lausn og um-
bera. Umföðmum fólkið okkar og
okkur sjálf. Hefjum nýtt kirkju-
ár með von, þor og hugrekki í
brjósti. Fögnum honum innilega
sem stendur við dyrnar og knýr á.
Gefum sjálf áfram gjafir sem skipta
raunverulega máli, semjum ást-
arbréf, hrósum og gefum von og
styrkjum hvert annað.
Sýnum því hinu smæsta en jafn-
framt því dýrmætasta kærleika
Krists og veitum gleði og von þar
sem gleði og vonar er þurfi án þess
að þurfa að hugsa okkur um.
Með óskum um ljúfa aðventu og
gleðileg jól.
Sr. Hildur Björk
Hugvekja á aðventu
Reykholt í haustskrúða. Ljósm. mm.