Skessuhorn - 15.12.2021, Page 114
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021114
Julio Cesar Gutierrez er fæddur í
Uruguay en fluttist til Íslands árið
1994 og hefur því búið hér í um 25
ár. Julio er borinn og barnfædd-
ur sveitamaður. Fjölskylda hans,
foreldrar og fjórar systur, bjuggu
skammt frá borginni Paysandú.
Faðir hans lést árið 2002 og elsta
og yngsta systirin eru einnig látn-
ar. Móðir hans er 92ja ára og býr
hjá systur Julio og manni henn-
ar. Blaðamaður Skessuhorns settist
niður með Julio til þess að forvitn-
ast um hagi hans og hvað á daga
hans hefur drifið.
Uruguay er um margt frábrugðið
Íslandi. Það á landamæri að Argent-
ínu í vestri og suðvestri og Brasilíu
í norðri og norðaustri. Veðurfar er
mun hlýrra en að sögn Julio er nær
aldrei frost að degi til í landinu. Á
veturna frýs stundum um nætur og
gras hélar. Þá er minna um fjöll í
landinu en fáir staðir ná hærra en
200 metra yfir sjávarmál. Hæsti
punktur landsins er fjallið Cerro
Catedral (Dómkirkjuhæð) sem nær
513 metrum. Í Uruguay búa um
þrjár og hálf milljón. Landið er um
176 þúsund ferkílómetrar og búa
um tvær milljónir í eða nærri höf-
uðborginni Montevideo. Landið
er það næst minnsta í álfunni á
eftir Súrinam. Talið er að fyrstu
mennirnir hafi komið til Uruguay
fyrir um 13 þúsund árum. Ættbálk-
ur Charrúa var stærstur en um níu
þúsund manns tilheyrðu honum
og sex þúsund ættbálknum Chaná
þegar Spánverjar hófu innreið sína
í heimsálfuna. Frumbyggjum hafði
verið að mestu eytt um 1830 og
sorglega lítið er vitað um þetta fólk.
Síðustu Charrúarnir voru fluttir til
Frakklands og hafðir þar til sýnis
en auk þess hafði Charrúa börnum
verið komið fyrir víða til þess að
þræla á ökrum nýlenduherranna.
Heimildirnar um Charrúana eru
fátæklegar og tungumál þeirra að
mestu glatað. Afkomendur þeirra
hafa þó í seinni tíð verið að samein-
ast um að finna rætur sínar og það
sem þó finnst enn um menningu
þeirra. Uruguay öðlaðist sjálfstæði
á árunum á milli 1811 og 1828 eft-
ir stríðsátök á milli Portúgals og
Spánar og seinna Argentínu og
Brasilíu. Í dag er Uruguay „þróað“
land. Tekjur fólks eru nokkuð háar
og landið er talið með þeim frið-
sömustu í Suður-Ameríku og spill-
ing með minnsta móti. „Landið er
það dýrasta í álfunni enda oft kallað
Sviss Suður-Ameríku,“ segir Julio.
Sonurinn rekinn
úr landi
Eins og áður segir býr 92ja ára
móðir Julio hjá systur hans. Julio
segir að þó að dvalar- og hjúkr-
unarheimili fyrir aldraða séu algeng
í Uruguay þá sé mun algengara að
fólk dvelji síðustu árin heima hjá
fjölskyldumeðlimum. Móðir hans
sem þarf nú orðið aðstoð við ým-
islegt er hins vegar ekki á leiðinni
á dvalarheimili. „Það er ekki til
umræðu hjá systur minni að senda
mömmu á elliheimili,“ segir Julio.
Við Íslendingar mættum kannski
líta í meira mæli til Uruguay í þess-
um efnum.
Julio gekk í barnaskóla og fór
ríðandi í skólann. „Ég reið bara
beina leið, fór ekki neina vegi,
heldur bara stystu leið, fram og til
baka. Þetta voru einir sjö eða átta
kílómetrar.“ Skólagangan var stutt,
einungis sex ár og Julio því tólf ára
þegar skólagöngu lauk. Eftir barna-
skóla fór hann að vinna á ýmsum
búgörðum bæði í Uruguay og í
Argentínu við að smala bæði sauð-
fé og nautgripum. Slíkir smalar eða
kúrekar eru oft kallaðir „gaucho.“
Blaðamaður sem hefur sennilega
séð aðeins of margar kúrekamynd-
ir spyr hvort hann hafi þá verið
með byssu. „Nei, engar byssur en
við vorum með hnífa, svo kallaða
facón, en þeir voru nú ekki notað-
ir í slagsmálum. Við notuðum þessa
hnífa bæði til þess að borða með
og sem verkfæri. Ef skepna drapst
þurftum við til dæmis að flá hana.
Þannig var hægt að hirða skinnið
og einnig varð að flá skepnuna til
þess að flýta fyrir rotnun. Það var
því heilbrigðismál að flá skepn-
una.“
Það var á búgarði í Uruguay sem
hann hitti hana Lilju sína, bónda-
dóttur frá Hávarsstöðum í Hval-
fjarðarsveit sem hafði þá lokið bú-
fræðinámi frá Bændaskólanum á
Hvanneyri. Þau felldu hugi saman
og fljótlega eftir það fluttist hann
til hennar að Hávarsstöðum. Lilja,
eiginkona Julio, lést árið 2018.
Saman eiga þau Emiliano Elvar
og Narcisu. Julio á einnig soninn
Daniel sem býr í Paysandú í Ur-
uguay og er lærður rafvirki. Hann
starfar í sláturhúsi í heimaborg
sinni.
Það dimmir yfir Julio þegar talið
berst að syni hans, Daniel. Árið
2010 hafði Daniel verið í lang-
þráðri heimsókn til pabba síns á Ís-
landi. Þegar Daniel hafði dvalið hjá
pabba sínum í um eitt og hálft ár
og unnið við hefðbundin bústörf
ákvað Julio að sækja um dvalarleyfi
fyrir soninn á Íslandi. Umsókn-
inni var hafnað á grundvelli þess
að móðir Daniels, búsett í Urugu-
ay, var skráð forráðamaður piltsins.
Þrátt fyrir að hann ætti hér pabba,
systkini og frændfólk, var Dani-
el hreinlega rekinn úr landi með
viku fyrirvara. Auðséð er á Julio að
honum sárnar mjög meðferðin sem
sonur hans fékk á Íslandi.
Ekki tog á kindum
í Uruguay
Á Íslandi hefur Julio fengist við
ýmislegt. Hann hefur fengist við
tamningar hesta og er annálaður
sem tamningamaður. Þegar hann
er spurður út í það gerir hann sem
minnst úr því enda afskaplega hóg-
vær maður. Sagan segir þó að hon-
um hafi tekist að temja marga
ótemjuna sem aðrir höfðu gefist
upp á. Julio er einn fremsti rún-
ingsmaður Íslands, margfaldur Ís-
landsmeistari, og hefur meira að
segja keppt á heimsmeistaramóti í
rúningi. Þegar Julio er spurður út í
árangurinn á heimsmeistaramótinu
dregur hann nú úr og finnst það
ekkert sérstakt en hann lenti í 19.
til 20. sæti. „Það er ekki hraðinn
sem skiptir mestu máli heldur gæð-
in,“ segir Julio. „Það er dómari við
hliðina á þér allan tímann, hann er
eiginlega með hausinn inni í roll-
unni. Það er allt metið. Þú færð
refsistig fyrir hverjar 15 sekúndur
sem líða og þá er maður dæmdur
niður ef maður skilur eftir of mikla
ull.“
Þegar Julio er spurður út í mun-
inn á íslensku sauðkindinni og
kindum í Uruguay segir hann
mesta muninn vera að það er ekki
tog á kindum í Uruguay en eins
og kunnugt er þá er íslenska sauð-
kindin bæði með þel og tog. „Þel-
ið er fína hárið innst og veitir ein-
angrun gegn kulda en togið, síða
ytra hárið er eins konar gúmmí-
galli sem ver kindina fyrir rign-
ingunni og snjónum. Það vilja fáir
kaupa íslensku ullina nema kannski
þá í gólfteppi. Fé í Uruguay er hins
vegar að stórum hluta af svoköll-
uðu Merino kyni sem er mun fínni
og hentar betur í fínar flíkur. Sauð-
fé í Uruguay er enda ræktað í mun
meira mæli til framleiðslu á ull en
kjöti.“
Ætlið þið að
drepa rolluna?
Julio hefur einnig unnið við ýmsar
smíðar og meðal annars unnið við
smíði á leikmyndum kvikmynda- og
sjónvarpsþátta. „Ég hef unnið svo-
lítið hjá Verkstæðinu ehf. í Mos-
fellsbæ. Þá er það þannig að leik-
myndin er smíðuð á verkstæðinu
og allar einingar númeraðar. Síð-
an er farið með einingarnar á töku-
stað þar sem þeim er raðað upp.“
Aðspurður segist Julio nú ekki hafa
hitt marga fræga leikara í þessum
smíðum. „Það eru þá helst leikstjór-
ar sem koma á verkstæðið,“ seg-
ir hann. Julio hefur þó tekið óbeint
þátt í framleiðslunni en við tökur á
jólaauglýsingu var hann beðinn um
að rýja þrjár rollur. „Það var ekk-
ert mál. Ég var klæddur í köflóttu
skyrtuna sem aðalleikarinn átti að
klæðast. Ég rúði þessar rollur en
það eina sem sást af mér á skján-
um voru hendurnar og framhand-
leggirnir. Þegar ég var búinn að
því þá fór aðalleikarinn í skyrtuna
og setti sig í stellingarnar. Honum
gekk hins vegar hræðilega að eiga
við blessaða rolluna. Þegar hann
var búinn að vesenast við þetta í
um hálftíma sá ég að rollan var
bara hreinlega að drepast, hún var
hætt að anda og augun snúin upp.
Ég stökk af stað og reif rolluna úr
höndunum á leikaranum. Það varð
allt brjálað. Leikstjórinn öskraði á
mig enda hafði ég vaðið þarna inn í
tökur. Ég öskraði bara á móti; ætlið
þið að drepa helvítis rolluna? Það
endaði með því að ég sleppti roll-
unni og hún hrundi bara í gólf-
ið. Þegar leikstjórinn sá það áttaði
hann sig á því hvað var að gerast og
allt róaðist.“
Julio keypti nýlega hús í Urugu-
ay, nálægt heimahögunum. Hús-
ið er gamalt en því fylgja um fimm
ferkílómetrar lands. Draumur hans
er að búa helminginn af árinu á Ís-
landi og hinn helminginn í Urugu-
ay. Hann hafði hugsað sér að gera
húsið sem hann keypti upp en er nú
farinn að hallast að því að byggja
nýtt hús við hlið hins gamla og nota
gamla húsið sem skemmu og bílskúr
meðal annars. Þá hyggst hann jafn-
framt rækta nautgripi á landareign-
inni en algengt er að bændur í Ur-
uguay kaupi skepnur sem ekki eru
nægilega feitar og ali þær til slátr-
unar. Þá sér hann einnig möguleika
í því að kenna rúning í Uruguay en
landið elur marga frábæra rúnings-
menn. Árlega fara um þrjú til fjög-
ur hundruð rúningsmenn þaðan til
Spánar sem er stór ullarframleið-
andi. Þá fara einnig um fjörutíu til
fimmtíu rúningsmenn til Banda-
ríkjanna. Það er því ljóst að Julio
verður ekki verkefnalaus á næst-
unni. frg / Ljósm. aðsendar.
Julio er margfaldur Íslandsmeistari í rúningi.
Julio Gutierrez fór ríðandi í barnaskólann
Er einn fremsti rúningsmaður Íslands
Hér mundar Julio hnífinn, facón.
Julio í rúningskeppni. Julio fór sem barn ríðandi í skólann.