Skessuhorn - 15.12.2021, Side 117
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 117
Nýfæddir Vestlendingar
Íbúð til leigu á Bifröst
Íbúð með einu svefnherbergi til
leigu á Bifröst. 110 þúsund krónur
á mánuði. Upplýsingar í síma 611-
4197 eða í tölvupósti rosehilm-
ar8@gmail.com
Til leigu á Bifröst
76 fm íbúð með tveimur svefn-
herbergjum, baðherbergi með
aðstöðu fyrir þvottavél, geymslu
og alrými til leigu á kyrrlátu
svæði. Frekari upplýsingar í síma
570-7010 eða í tölvupósti bjorg@
sagaz.is.
Íbúð til leigu í Borgarnesi.
Er með 65 fm íbúð til leigu í Borg-
arnesi. Upplýsingar í síma 863-
2022
Borgarnes dagatalið 2022
Veggdagatal með 13 myndum
úr Borgarnesi. Hægt að skoða
myndirnar og fá allar upplýs-
ingar á: hvitatravel.is/dagatal. Frí
heimsending í Borgarnesi. Daga-
talið fæst einnig í smásölu á Olís í
Borgarnesi.
Frystikista til sölu
Er með frystikistu til sölu. Stærð
100 cm á breidd, dýpt 61,5cm,
hæð 90 cm. Verð 10.000 krónur.
Staðsett í Borgarnesi. Hafið sam-
band í síma 820-9405.
Rafmagnsbarnabíll til sölu
Er með lítið notaðan rafmagnsbíl
fyrir börn eldri en þriggja ára sem
keyrir áfram og afturábak á með-
an barnið situr í bílnum og stýr-
ir. Er stödd í Borgarnesi og verðið
er kr. 10.000. Frekari upplýsingar í
síma 820-9405.
AL-ANON –
Aðstendendur alkóhólista
AL-ANON fundir á Akranesi. Stað-
setning: Gamla Landsbankahús-
ið – Suðurgata 57, 2. hæð Akra-
nesi. Fundir eru á þriðjudögum kl.
19:30 og laugardögum kl. 11:00.
Nánari upplýsingar má finna á
www.al-anon
LEIGUMARKAÐUR
Á döfinni
Smáauglýsingar
TIL SÖLU
ÝMISLEGT
17. nóvember. Drengur. Þyngd:
4.626 gr. Lengd: 54 cm. Foreldrar:
Erla Katrín Kjartansdóttir og Elf-
ar Már Ólafsson, Borgarnesi. Ljós-
móðir: Hrafnhildur Ólafsdóttir.
22. nóvember. Stúlka. Þyngd: 2.958
gr. Lengd: 46 cm. Foreldrar: Sigur-
björg Ellen Ottesen og Gunnar
Guðbjartsson Hjarðarfelli. Ljós-
móðir: G. Erna Valentínusdóttir.
1. desember. Drengur. Þyngd:
4.626 gr. Lengd: 54,5 cm. Foreldr-
ar: Líney Rut Bjarnadóttir og Val-
geir Ólafsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Jenný Inga Eiðsdóttir.
9. desember. Stúlka. Þyngd: 3.624
gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar: Birna
Dröfn Birgisdóttir og Sæbjörn
Elvan Vigfússon, Ólafsvík. Ljós-
móðir: Guðrún Fema Ágústsdóttir.
11. desember. Stúlka. Þyngd: 3.318
gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Eyrún
Eiðsdóttir og Hallur Freyr Sigur-
björnsson, Akranesi. Ljósmóðir:
Hrafnhildur Ólafsdóttir.
13. desember. Drengur. Þyngd:
3.046 gr. Lengd: 48,5 cm. Foreldr-
ar: Ingibjörg Torfadóttir og Jó-
hann Pétur Pétursson, Akranesi.
Ljósmóðir: Sigríður Berglind Birg-
isdóttir.
Pennagrein
Kæri lesandi!
Nú þegar líður að jólum þá kvikna
svo margar minningar tengdar
þessum göldrótta árstíma þegar
sólin dregur sig í hlé og gefur
myrkrinu eftir sviðið að mestu. Á
síðari tímum hafa orðið til minn-
ingar sem margar tengjast löngum
setum í þinghúsinu við Austurvöll.
Það er alltaf eitthvað hátíðlegt við
störfin í þinghúsinu á þessum tíma
og orðaskak þingmanna á einhvern
hátt innilegra og blíðara þótt hart
sé oft tekist á.
Árið 2021 kveður nú brátt. Það
hefur tekið á fyrir okkur flest en
faraldurinn hefur breytt lífi okkar
um stund. Það er þó ánægjulegt að
betur hefur gengið en við áætluð-
um að koma hjólum atvinnulífsins
af stað þrátt fyrir ýmsar brekkur.
Það er alltaf ánægjulegt að taka
þátt í kosningum til Alþingis.
Kosningabaráttunni fylgja ferða-
lög um allt land þar sem ég hef
notið þess að hitta fólk sem hef-
ur brennandi áhuga á samfélaginu
okkar og sterkar skoðanir á því
hvert það stefnir og hvaða leiðir
séu ákjósanlegastar. Ég er virkilega
þakklátur fyrir þann stuðning sem
við í Framsókn fengum um land
allt.
Framtíðin er spennandi þótt
mörg krefjandi verkefni séu fram
undan. Í stjórnarsáttmálanum
eru loftslagsmálin áberandi enda
er loftslagsváin það verkefni sem
brýnast er í heiminum í dag og
næstu ára og áratugi. Fólk hef-
ur áhyggjur og á það sérstaklega
við um unga fólkið sem sér fram-
tíð sinni ógnað. Heiminum verð-
ur ekki bjargað með því að hafa
áhyggjur. Óttinn getur haft lam-
andi áhrif. Þess vegna er sá tónn
sem sleginn er í nýjum stjórnar-
sáttmála tónn vonar og bjartsýni.
Við ætlum að nýta þær einstöku
aðstæður sem við búum við á Ís-
landi, þá þekkingu sem við höfum
á endurnýjanlegum orkugjöfum og
þann kraft sem býr í fólki og at-
vinnulífi til að leysa þau verkefni
sem að okkur snúa og gefa öðr-
um verkfæri til að draga úr notk-
un jarðefnaeldsneytis. Við leggjum
áherslu á að orkuskiptin eru sam-
eiginlegir hagsmunir og að þeim
verði náð með jöfnuði og réttlæti
að leiðarljósi.
Ég hef þá bjargföstu trú að næstu
ár verði okkur gjöful á Íslandi.
Tækifærin eru víða og ekki síst á
landsbyggðinni. Síðustu ár hef ég
lagt mikla áherslu á að byggja upp
öruggari og greiðari samgöngur
á atvinnusóknarsvæðinu í kring-
um höfuðborgina. Aðskilnaður
akstursstefna á Kjalarnesi breyt-
ir miklu um öryggi vegfarenda.
Áfram verður haldið undirbúningi
fyrir Sundabraut sem mun breyta
mjög til batnaðar tengingu höfuð-
borgarsvæðisins við Vesturland.
Í stjórnarsáttmálanum er sleginn
nýr tónn þegar kemur að upp-
byggingu atvinnutækifæra hring-
inn í kringum landið. Það á einnig
við um hið opinbera en síðustu
fjögur árin hefur hugmyndin um
störf án staðsetningar náð miklu
flugi enda mikilvægur þáttur í því
að gefa fólki aukna möguleika á
því að velja sér hvar það vill búa.
Í stjórnarsáttmálanum segir að; „til
að styðja við byggðaþróun og val-
frelsi í búsetu verði störf hjá ríkinu
ekki staðbundin nema eðli starfs-
ins krefjist þess sérstaklega.“ Þessi
orð marka að mörgu leyti tímamót
í viðhorfi til starfa hjá ríkinu. Ekki
er talað um störf án staðsetningar
sem sérstakt atriði heldur er hugs-
uninni snúið við: Sérstaklega þarf
að rökstyðja að störf séu staðbund-
in. Þetta er stórt mál. Einnig ætl-
um við að styðja við klasasamstarf
hins opinbera og einkaaðila til að
búa til starfsaðstöðu á lykilstöð-
um á landinu en fyrsta verkefnið af
þessu tagi er að hefjast á Selfossi.
Lesandi góður, ég vona að að-
ventan verði þér góð og að þú
njótir jólahátíðarinnar með þínum
nánustu.
Sigurður Ingi Jóhannsson
Höf. er formaður Framsóknar og
innviðaráðherra.
Nokkur orð á
aðventu 2021