Skessuhorn - 15.12.2021, Page 118
118 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
Hver var minnistæðasta jóla-
gjöfin þegar þú varst lítill?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Dvalarheimilinu
Höfða Akranesi)
Haukur Ármannsson
„Leikfangabíll sem foreldrar
mínir gáfu mér þegar ég var sex
ára.“
Þórir Sigurðsson
„Við bræðurnir fengum kassa af
Mekkanó kubbum sem móður-
bróðir okkar gaf okkur þegar ég
var sjö eða átta ára.“
Sigurður Reynir Guðmundsson
„Við vorum þrír bræðurnir og
fengum ein jólin eitt par af skíð-
um saman sem pabbi og mamma
gáfu okkur þegar ég var tíu ára.“
Ágúst Gíslason
„Við vorum fjórir bræðurn-
ir og pabbi smíðaði oft eitt-
hvað handa okkur og gaf okk-
ur í jólagjöf.“
Fyrir helgi greindi stjórn Fim-
leikasambands Íslands frá því að
Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Kol-
brún Þöll Þorradóttir hafi verið út-
nefnd sem fimleikakarl og fimleika-
kona ársins 2021. Helgi Laxdal og
Kolbrún Þöll æfa og keppa bæði
með liði Stjörnunnar úr Garðabæ.
Í öðru sæti karla megin í kjörinu
var Valgarð Reinhardsson og Ein-
ar Ingi Eyþórsson í því þriðja. Hjá
konunum var Ásta Kristinsdóttir í
öðru sæti og Margrét Lea Kristins-
dóttir þriðja. Þá var lið ársins val-
ið Kvennalandsliðið í hópfimleik-
um en þær urðu eins og kunnugt
er Evrópumeistarar í hópfimleik-
um en mótið var haldið í Portúgald
á þessu ári.
Helgi Laxdal hóf sinn íþróttafer-
il á Akranesi þar sem hann er fædd-
ur og uppalinn. Hann hefur ver-
ið í fremstu röð í hópfimleikum á
alþjóðlegum vettvangi síðustu ár
og náð feikilega góðum árangri.
Í umsögn Fimleikasambands-
ins um Helga segir: „Helgi var í
karlalandsliði Íslands á nýafstöðnu
Evrópumóti í hópfimleikum þegar
liðið tryggði sér 2. sæti en
það er í fyrsta sinn sem karlaliðið
kemst á pall. Hann keppti fyrstur í
heiminum með framseríuna skrúfa-
-kraftstökk-tvöfalt strekkt heljar-
stökk með tveimur hálfri skrúfu á
dýnu og braut þar blað í fimleika-
sögunni. Hann var valinn í úrvalslið
mótsins, einn af sex fimleikamönn-
um á öllu mótinu sem fengu þann
heiður, en Helgi var valinn fyrir
stökkin sem hann framkvæmdi á
dýnu. Helgi keppti einnig með yf-
irslag með tvöföldu heljarstökki og
hálfri skrúfu og þrefalt heljarstökk
með tveimur og hálfri skrúfu á
trampólíni og er þar á pari við allra
bestu fimleikamenn heims í erf-
iðleika. Helgi keppti ásamt liðinu
sínu á Bikar og Íslandsmóti í vor og
hampaði þar Íslands og Bikarmeist-
aratitlum. Hann hefur löngum vak-
ið athygli fyrir mikla útgeislun á
dansgólfinu þar sem hann nýtur sín
vel og skilar dansinum virkilega vel
frá sér. Helgi er einnig framúrskar-
andi góður stökkvari og keppir iðu-
lega í öllum umferðum þegar að
liðið hans keppir.“ vaks
Borgfirðingurinn Kristín Þór-
hallsdóttir varð á sunnudaginn
Evrópumeistari í klassískum kraft-
lyftingum kvenna í mínus 84 kg
flokki í samanlögðu og setti í
leiðinni nýtt Evrópumet, en mótið
fór fram í Svíþjóð. Kristín lyfti af
miklu öryggi þremur lyftum í hné-
beygju, 200 kg, 212, 5 kg og 220
kg sem er nýtt Evrópumet. Í bekk-
pressu lyfti hún 102,5 kg, 110 kg
og 115 kg en það er bæting á Ís-
landsmeti. Kristín lyfti síðan í rétt-
stöðunni 212 kg og 225 kg sem er
nýtt Íslandsmet og tryggði henni
560 kg í samanlögðu sem er nýtt
Evrópumet í hennar flokki. Hún
endaði á góðri tilraun til að ná
Evrópumetinu í réttstöðulyftu
með að reyna að lyfta 230, 5 kg en
mistókst naumlega.
Uppskera dagsins hjá þessari
mögnuðu kraftlyftingakonu er
Evrópumeistaratitill, gull í öllum
greinum, tvö Evrópumet og Ís-
landsmet í öllum greinum. Kristín
braut þar með blað í sögu kraftlyft-
inga á Íslandi því hún er fyrst allra
til að vinna titil í þríþraut.
vaks
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Skallagríms hefur tekið þá ákvörðun
að draga kvennalið félagsins úr
keppni í Subway deildinni. Í yfir-
lýsingu sem send var Skessuhorni á
fimmtudagskvöldið kemur fram að
yfirstandandi tímabil hafi einkennst
af erfiðleikum við mönnun á liðinu
og ófyrirséðum breytingum. Þá
hafi jafnframt ekki tekist að manna
að fullu meistaraflokksráð og stjórn
deildarinnar sem er forsenda fyrir
framgangi starfseminnar:
„Markmið körfuknattleiks-
deildarinnar verður eftir sem áður
að vinna að því að efla meist-
araflokka félagsins til framtíð-
ar og byggist það á góðu yngri
flokka starfi. Unnið verður að því
á næstu mánuðum að efla innra
starf deildarinnar, hlúa að og bæta
starf yngri flokka enn betur auk
þess að styðja við meistaraflokk
karla og stefna á þátttöku kvenna-
liðs á næsta tímabili. Sú ákvörðun
að draga kvennaliðið úr keppni er
þungbær, en stjórn telur af ýms-
um ástæðum sem ekki verða rakt-
ar frekar nauðsynlegt að grípa til
þessara ráðstafana með hag klúbbs-
ins að leiðarljósi. Stjórn vill þakka
leikmönnum kvennaliðsins og öðr-
um sem hafa haft aðkomu að því
starfi í vetur fyrir vel unnin störf,“
segir í yfirlýsingunni.
vaks
Stjarnan og Snæfell mættust á
sunnudaginn í 8-liða úrslitum VÍS
bikars kvenna í körfuknattleik og
fór leikurinn fram í Garðabæ. Mik-
il spenna var í loftinu enda mikið
undir, sæti í undanúrslitum í húfi
en Snæfell fagnaði sigri í bikarn-
um í fyrsta skipti árið 2016. Í fyrsta
leikhluta var jafnt á nánast öllum
tölum, munurinn aldrei meiri en
þrjú stig á milli liðanna og stað-
an jöfn við flautið, 17:17. Spenn-
an hélt áfram í öðrum leikhluta en
Stjarnan þó ívið sterkari og fór með
fimm stiga forskot inn í hálfleikinn,
staðan 37:32 fyrir Stjörnuna.
Snæfellskonur voru ekki á þeim
buxunum að gefast upp og náðu
með mikilli seiglu að koma sér inn
í leikinn aftur og staðan hnífjöfn
fyrir lokasprettinn, 50:50. Þegar
rúmlega þrjár mínútur voru eft-
ir af leiknum var Stjarnan kom-
in með sjö stiga forystu, 61:54 og
virtust vera að sigla sigri í höfn.
En Snæfellskonur komu enn á ný
til baka, náðu að jafna 61:61 þegar
tvær mínútur voru eftir og tryggðu
glæsilegan sigur með því að skora
síðustu sex stig leiksins, lokatölur
61:67 Snæfelli í vil.
Stigahæstar hjá Snæfelli voru
þær Sianni Martin með 19 stig,
Rebekka Rán Karlsdóttir með 18
stig og þær Minea Takala og Helga
Hjördís Björgvinsdóttir voru með
9 stig hvor. Hjá Stjörnunni var
Diljá Ögn Lárusdóttir með 19 stig
og þær Myia Starks og Elva Lára
Sverrisdóttir voru með 15 stig hvor.
Í hádeginu í gær var svo dregið
í undanúrslit og þar mætir Snæfell
liði Breiðabliks á heimavelli. Í hin-
um leiknum mætast Njarðvík og
Haukar og fara báðir leikirnir fram
fimmtudaginn 13. janúar. vaks
Kristín Evrópumeistari í kraftlyftingum
Skallagrímur hættir þátttöku í Subway deild kvenna
Það var hart barist í Garðabænum á sunnudaginn. Ljósm. karfan.is
Snæfellskonur komnar í undanúrslit í VÍS bikarnum
Helgi Laxdal kjörinn fimleikakarl ársins 2021
Helgi Laxdal er fimleikamaður ársins 2021. Ljósm. FÍ
Stefán Kristinn Teitsson
„Rauður heimasmíðaður leik-
fangabíll sem foreldrar mínir
gáfu mér.“