Læknablaðið - 01.12.2021, Side 4
568 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107
575
Ólafur Ó. Guðmundsson, Guðmundur Hjaltalín, Haukur Eggertsson, Þóra Jónsdóttir
Sjúkdómsgreiningar, endurhæfing og þróun örorku 2000-2019
Endurhæfingarlífeyrisþegum hefur fjölgað frá árinu 2018 á sama tíma og dregið hefur
úr nýliðun öryrkja. Geð- og stoðkerfissjúkdómar eru langalgengustu sjúkdómsflokk-
arnir sem leiða til skertrar starfsgetu. Heldur lægra hlutfall öryrkja er með geð-
greiningu sem fyrstu sjúkdómsgreiningu á tímabilinu 2000-2019 samanborið við þá
sem áttu gildandi örorkumat 2005 en hlutfall stoðkerfissjúkdóma er heldur hærra.
581
Lovísa Baldursdóttir, Sigríður Zoëga, Gunnar Auðólfsson, Vigdís Friðriksdóttir,
Sigurður Ýmir Sigurjónsson, Brynja Ingadóttir
Langtímaáhrif brunaáverka á heilsu fullorðinna einstaklinga:
lýsandi þversniðskönnun
Brunaslys eru alþjóðlegt vandamál með fjölþættar orsakir og eru stærstu áhrifa-
þættir samfélagsgerð og efnahagur. Á undanförnum áratugum hefur þessi dánar-
tíðni lækkað vegna fyrirbyggjandi aðgerða og framfara í meðferð og jafnframt
hefur dvalartími á sjúkrahúsi styst. Til að skoða árangur meðferðar og skipu-
leggja þjónustu er því mikilvægt að meta langtímaheilsutengd lífsgæði brunasjúk-
linga, svo sem líkamlega og andlega heilsu, sálfélagslega líðan og atvinnuþátttöku.
590
Svanur Sigurbjörnsson, Vilhjálmur Árnason
Faglegir mannkostir lækna og vinnuumhverfi
Rannsóknin sýnir upplifun lækna af því hvar skóinn kreppir í starfi og mikilvægi þess að
þjóðfélagið bæti starfsskilyrðin til að gera þeim kleift að starfa eftir hugsjón sinni. Góð
og nærgætin samskipti lækna við sjúklinga, annað fagfólk og stjórnendur, eru ákveðinn
lykill að markmiðunum. Óhóflegt vinnuálag, ásamt stöðugum kröfum um hagkvæmni og
skilvirkni, getur fært samskiptin úr jafnvægi og dregið úr jákvæðum tilfinningum gagnvart
starfinu.
597
Berglind Árnadóttir, Gerður Gröndal, Þórður Tryggvason, Björn Guðbjörnsson
Risafrumuæðabólga - Sjúkratilfelli með drep í hársverði og skyndiblindu
Kona á níræðisaldri fór til læknis vegna höfuðverks og sjóntruflana. Greining var óljós og
einkenni versnuðu hratt. Hún varð blind á báðum augum og fékk drep í hársvörðinn vegna
eins algengasta æðabólgusjúkdóms sem getur haft ólíkar birtingarmyndir. Hér er tilfellinu
lýst og fjallað um einkenni, greiningaraðferðir og meðferð.
F R Æ Ð I G R E I N A R
12. tölublað · 107. árgangur · 2021
571
Arna Guðmundsdóttir
Insúlín í 100 ár
Mikill kostnaður leggst á
fólk með sykursýki á Íslandi.
Okkar hlutverk er að jafna
aðgengi allra að læknisþjón-
ustu og halda kostnaði sjúk-
linga við lyf og tækjabúnað í
lágmarki.
573
Þórólfur Guðnason
Hvernig komumst við út
úr COVID-19?
Þurfum að fá virka lyfjameð-
ferð gegn veirunni og/eða ná
hjarðónæmi í samfélaginu.
z
L E I Ð A R A R
Sykursýki hefur lifað með mannkyninu lengi
og nú eru 100 ár síðan læknisfræðin náði að
lina þá þraut með insúlíni.
Stúlkan á myndinni, Lila Moss, gengur keik
eftir tískusýningarpallinum og insúlíndælan á
lærinu á henni sést vel. Dælan er nú staðal-
búnaður í meðferð við sykursýki af tegund
1, og sýnir alveg byltingarkennda framþróun
síðustu ára.
Á FORSÍÐU
xxxxxxxxxxx
Ú
r G
etty m
yn
dabankanum
.
Sykursýki
567
Augnlæknum hefur fækkað
og aðgerðum fjölgað á
Landspítala –
segir María Gottfreðsdóttir