Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Síða 11

Læknablaðið - 01.12.2021, Síða 11
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 575 Inngangur Læknar gegna mikilvægu lögbundnu hlutverki við mat á afleiðing- um sjúkdóma og fötlunar, bæði vegna endurhæfingar sjúklinga og mats á skertri starfsgetu. Læknar eru því matsaðilar og sjúklingar þeirra umsækjendur1 þegar þeir verða óvinnufærir vegna sjúk- dóma eða slysa og sækja um endurhæfingar- eða örorkulífeyri hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR). Litið hefur verið svo á í skilningi nýrra persónuverndarlaga að læknar séu ekki „aðilar máls“ þegar sjúklingar þeirra sækja um lífeyri til TR2 og þar af leiðandi hefur niðurstaða umsókna eingöngu farið til umsækjendanna sjálfra. Forsendur örorkumats breyttust 1999 þegar örorkumatsstaðall, gerður að breskri fyrirmynd, var leiddur í lög.3 Markmiðið var að skerpa á læknisfræðilegum forsendum örorkumats, sem tald- ist hafa tekist með innleiðingu staðalsins í Bretlandi3 og draga úr fjölda þeirra sem metnir höfðu verið til örorku vegna félagslegra aðstæðna. Áður en að örorkumati kemur er TR heimilt að setja skilyrði um að umsækjandi örorkulífeyris hafi gengist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar og viðeigandi endurhæfingu áður en til örorkumats kemur, samanber niðurlag 2. mgr. 18. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar.2 Um endurhæfingu gilda annars vegar ákvæði laga nr. 99/20074 og hins vegar nýleg ákvæði reglugerðar um framkvæmd endurhæfingarlífeyris sam- kvæmt lögum um félagslega aðstoð 2020.5 Heimilt er á grundvelli endurhæfingaráætlunar að greiða endurhæfingarlífeyri í allt að 18 mánuði þegar ekki verður séð hver starfshæfni einstaklings sem Ólafur Ó. Guðmundsson læknir Guðmundur Hjaltalín kerfisfræðingur Haukur Eggertsson verkfræðingur Þóra Jónsdóttir tölvunarfræðingur Höfundar starfa allir hjá Tryggingastofnun ríkisins. Fyrirspurnum svarar Ólafur Ó. Guðmundsson, olafur.gudmundsson@tr.is Á G R I P INNGANGUR Örorkumatsstaðall sem byggður er á læknisfræðilega viðurkenndum sjúkdómum eða fötlun var innleiddur 1999. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða þróun úrskurða Tryggingastofnunar ríkisins vegna endurhæfingar- og örorkulífeyris á 20 ára tímabili frá innleiðingu hans. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Allar skráðar sjúkdómsgreiningar í læknisvottorðum Tryggingastofnunar vegna samþykktra nýrra endurhæfingar- eða örorkulífeyrisþega fyrir árin 2000-2019 voru skoðaðar. Gerð er grein fyrir kynjaskiptingu, aldursdreifingu og fjöldaþróun á tímabilinu. Jafnframt er skoðaður kostnaður sem hlutfall af ríkisútgjöldum. NIÐURSTÖÐUR Nýliðun yngri endurhæfingarlífeyrisþega hefur aukist hratt á undanförnum árum á sama tíma og lítillega hefur dregið úr hlutfallslegri fjölgun örorkulífeyrisþega. Geð- og stoðkerfissjúkdómar eru langalgengustu sjúkdómsflokkarnir sem leiða til skertrar starfsgetu. Geðsjúkdómar skera sig úr hvað varðar aldursdreifingu og fjölgun eftir því sem nær dregur í tíma. Hlutfall einstaklinga á aldrinum 18-66 ára með 75% örorkumat hefur aukist um þriðjung á tímabilinu, úr um 6% í 8%. Kynjaskipting örorkulífeyrisþega helst svipuð, konur eru um 62% hópsins í heildina. Konur eru mun líklegri til að verða öryrkjar vegna stoðkerfissjúkdóma, en karlar nokkru líklegri vegna geðsjúkdóma. Hlutfallsleg þróun ríkisútgjalda vegna heildargreiðslna til endurhæfingar- og lífeyrisþega heldur áfram að vaxa sem hlutfall af ríkisútgjöldum. ÁLYKTUN Endurhæfingarlífeyrisþegum hefur fjölgað verulega frá árinu 2018 á sama tíma og dregið hefur úr nýliðun öryrkja og vísbendingar eru um að endurhæfing hafi skilað sér í fækkun nýrra öryrkja. Geð- og stoðkerfissjúkdómar eru langalgengustu sjúkdómsflokkarnir sem leiða til skertrar starfsgetu. Heldur lægra hlutfall öryrkja er með geðgreiningu sem fyrstu sjúkdómsgreiningu á tímabilinu 2000-2019 samanborið við þá sem áttu gildandi örorkumat 2005 en hlutfall stoðkerfissjúkdóma er heldur hærra. Engu að síður skera geðsjúkdómar sig úr hvað varðar aldursdreifingu og fjölgun eftir því sem nær dregur í tíma. Sjúkdómsgreiningar, endurhæfing og þróun örorku 2000-2019

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.