Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.2021, Page 14

Læknablaðið - 01.12.2021, Page 14
R A N N S Ó K N 578 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 Áhugavert er að skoða allar sjúkdómsgreiningar örorku lífeyris- þega, skipt eftir fjögurra ára tímabilum (tafla V). Hér má sjá að geðsjúkdómar eru greindir hjá yfir þriðjungi örorkulífeyrisþega í upphafi tímabils en hjá yfir helmingi þeirra í lok þess á meðan litlar breytingar verða á hlutfallslegum fjölda þeirra sem greinast með stoðkerfissjúkdóma. Þegar fjöldi sjúkdómsgreininga er skoð- aður eftir tímabilum, hvort sem er milli sjúkdómaflokka eða allra greininga, kemur fjölgun þeirra í ljós eftir því sem nær dregur í tíma. Þannig má sjá að þegar borin eru saman fyrstu og síðustu fjögur ár tímabilsins hafa sjúkdómsgreiningar örorkulífeyrisþega næstum tvöfaldast, meðalfjöldi allra sjúkdómsgreininga fer úr 2,2 í 3,7 á hvern nýjan örorkulífeyrisþega (tafla V). Ástæða þessa get- ur skýrst af öðru en aukinni sjúkdómsbyrði, svo sem meiri ná- kvæmni í sjúkdómsgreiningum lækna og auðveldari yfirfærslum þeirra í læknisvottorð í rafrænum sjúkraskrárkerfum. Þegar allar sjúkdómsgreiningar örorkulífeyrisþega á tímabil- inu eru skoðaðar (tafla I) í samanburði við Finnland kemur í ljós að hlutfall geðsjúkdóma er nokkru hærra hér, 45,6% samanborið við 35,5% en munurinn er mikill hvað varðar stoðkerfissjúkdóma sem eru 45,3% hér á landi samanborið 8,3% í Finnlandi.13 Taka verð- ur þó samanburði milli landa með þeim fyrirvara að almanna- tryggingakerfi eru ólík, til dæmis getur fólk ekki farið á örorku í Danmörku fyrr en 40 ára og 30 ára í Svíþjóð en sjúkra- og endur- hæfingarlífeyriskerfin eru líka frábrugðin.14 Á því 20 ára tímabili sem hér er til skoðunar má sjá stöðuga hlutfallslega fjölgun öryrkja fyrsta áratuginn eftir innleiðingu ör- orkumatsstaðalsins, úr 6% í vel yfir 7% fólks á vinnualdri (mynd 1). Hápunkti er náð um 2016 þegar hlutfallið fer vel yfir 8% en síð- an hefur hlutfallið lækkað lítillega, niður í um 8%, en hafa verður í huga að á sama tíma fjölgar endurhæfingarlífeyrisþegum verulega (tafla IVb) sem skýrist af áherslu TR frá árinu 2018 á að endurhæf- Tafla IVa. Fyrsta sjúkdómsgreining örorkulífeyrisþega eftir fjögurra ára tímabilum. Tímabil 2000-2003 2004-2007 2008-2011 2012-2015 2016-2019 Fyrsta sjúkdómsgreining Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Stoðkerfissjúkdómur 1734 33,1 1522 28,4 1582 30,0 1712 32,7 1553 25,1 Geðsjúkdómur 1357 25,9 1710 31,9 1447 27,4 1652 31,6 1990 32,2 Allir aðrir sjúkdómar 2141 40,9 2131 39,7 2243 42,5 1864 35,7 2632 42,6 Samtals 5232 100,0 5363 100,0 5272 100,0 5228 100,0 6175 100,0 is þroskahömlunar og dæmigerðrar einhverfu) og geðsjúkdóma (til dæmis snemmkominna geðrofssjúkdóma) valda oft ævilangri óvinnufærni hjá ungu fólki. Þessi atriði skýra þó ekki þá þróun að á síðustu fjórum árum rannsóknartímabilsins fara fleiri á ör- orku vegna geðsjúkdóma en á tímabilunum á undan á sama tíma og meðferðar- og endurhæfingarúrræðum fyrir geðsjúka hefur fjölgað, til að mynda innan heilsugæslunnar (tafla IVa).12 Aldurs- dreifing örorkulífeyrisþega vegna stoðkerfissjúkdóma er gagn- stæð; fjölgun með hækkandi aldri (tafla IIIa) og litlar breytingar á fjölda á tímabilinu 2000-2019 (tafla IVa). Aldursdreifing endurhæfingarlífeyrisþega sýnir mikla fjölg- un (þreföldun) í hópi þeirra sem eru með geðsjúkdóm sem fyrstu greiningu á síðustu fjórum árum rannsóknartímabilsins (tafla IVb) og flestir þeirra í yngsta aldurshópnum (tafla IIIb). Aldurs- dreifing endurhæfingarlífeyrisþega vegna stoðkerfissjúkdóma er eins og hvað örorkuna varðar, nokkuð jöfn á tímabilinu en endur- hæfingarlífeyrisþegunum fjölgar eftir því sem nær dregur í tíma (tafla IVb). Hvað alla aðra sjúkdómaflokka varðar má sjá jafnt vaxandi fjölda endurhæfingarlífeyrisþega eftir því sem nær dregur í tíma (tafla IVb) með nokkuð jafnri aldursdreifingu (tafla IIIb). Sömu mynstur má sjá í hópi örorkulífeyrisþega annarra sjúkdómaflokka og hjá stoðkerfissjúkdómum, fjölgun með hækkandi aldri (tafla IIIa) en tiltölulega litlar sveiflur á rannsóknartímabilinu (tafla VIa). Þegar þróunin er skoðuð eftir tímabilum má sjá að hlutfalls- lega fleiri fara á örorkulífeyri vegna geðsjúkdóma síðustu ár þótt nokkrar sveiflur séu milli tímabila (tafla IV). Þessi þróun, fjölgun í hópnum með geðsjúkdóma, verður enn skýrari þegar endurhæf- ingarlífeyrishópurinn er skoðaður (tafla IVb). Þrisvar sinnum fleiri voru í endurhæfingu vegna geðsjúkdóma, og rúmlega tvöfalt fleiri vegna stoðkerfissjúkdóma 2016-2019 samanborið við 2000-2003. Tafla IVb. Fyrsta sjúkdómsgreining endurhæfingarlífeyrisþega eftir fjögurra ára tímabilum. Tímabil 2000-2003 2004-2007 2008-2011 2012-2015 2016-2019 Fyrsta sjúkdómsgreining Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi % Stoðkerfissjúkdómur 511 19,5 636 18,3 706 20,1 1103 26,7 1159 20,8 Geðsjúkdómur 811 31,0 1223 35,3 1269 36,1 1612 39,0 2481 44,5 Allir aðrir sjúkdómar 1293 49,4 1607 46,4 1536 43,7 1414 34,2 1940 34,8 Samtals 2615 100,0 3466 100,0 3511 100,0 4129 100,0 5580 100,0

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.