Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 44
608 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 „Maður þarf að hægja á hugsunum sínum og fara yfir hvort ákvarðanirnar í starfi falli að öllum grunnsiðferðisgildunum,“ segir Gunnar Thorarensen, svæfinga- og gjörgæslulæknir og kennslustjóri. „Við læknar stöndum stöðugt frammi fyrir krefjandi ákvörðunum í klínísku starfi. Það er því mikilvægt að skilja hvern- ig við komumst að niðurstöðu.“ Gunnar er einnig varaformaður og ritari í stjórn Svæf- inga- og gjörgæslufélags Íslands og nýr í ritstjórn Læknablaðsins. Hann hélt erindi um tilgang og tilgangsleysi á gjörgæslu á Lyflæknaþingi 2021. Læknar ættu að velta tilgangi þess sem þeir gera fyrir sér. Ómeðvitaðar ákvarðanir „Ég held að vel flestir læknar velti þessu fyrir sér en í hita leiksins eru ákvarðanir ekki alltaf teknar meðvitað,“ segir hann þar sem við höfum komið okkur fyrir á litlu skrifstofunni hans á stigagangi 4. hæðar Fossvogsspítala. Stutt í lyfturnar. Útsýnið frábært. „Þessar vangaveltur verða líklega áleitn ari þegar líður á starfsævina,“ segir hann. „Mikil áhersla og orka fer í að skilja klíníska samhengið langt fram eftir ferlin- um — enda er það svo viðamikið. Læknar eru ekki fullþjálfaðir og menntaðir fyrr en þeir eru komnir vel á fertugsaldur. Fræðsla og þjálfun um einmitt þessi atriði þyrfti því að vera hluti af þjálfuninni, svo við veltum hlutunum fyrir okkur í stærra sam- hengi,“ segir hann. Ákvarðanataka sé æ meira rannsökuð. „Mikilvægt er að vita hvað getur stutt okkur og leiðbeint þegar við tökum flóknar ákvarðanir. Klínískt samhengi hverju sinni er þungamiðjan en ótal aðrar breytur hafa áhrif. Eins og til dæmis vilji sjúklingsins hverju sinni og hvaða ábyrgð við sem læknar berum á að hjálpa honum að átta sig á vilja sínum,“ segir hann. „Okkur ber lagaleg skylda til að upp- lýsa fólk um áhrif og áhættu ákveðinna meðferða og hverjar horfurnar séu. Tryggja þarf, eins langt og það nær, að sjúklingur- inn hafi skilið upplýsingarnar,“ segir hann. „Á gjörgæslu getur þetta verið flókið því margir af sjúklingum okkar eru meðvit- undarlausir. Þá eru oft góð ráð dýr,“ segir hann. Einfaldaður sannleikur Margt spilar inn í ákvarðanatöku. „Einn getur verið fljótur að komast að niðurstöðu og haggast ekki þaðan, á meðan annar grípur fyrst í það nýjasta sem hann heyrði. Aðrir hafa tileinkað sér að bera kennsl á mynstur og túlka út frá því.“ Þannig geti nýlegar greiningar haft áhrif á það sem fengist er við þá og þá stundina. Hann nefnir sérstaklega mikilvægi ómeðvitaðrar hugsanaskekkju (cognitive bias) við ákvarðanir, kenningar Kahneman og Tversky og tekur dæmi. Ákvarðanirnar fylgi þumalputtareglu eða einfölduðum sannleik sem mannverur hafi búið sér til yfir ævina og noti ómeðvitað. „Þessi einfaldaði sannleikur sem við styðjumst við, og er til í allskonar formi, hefur tvenns konar alvarleg áhrif. Annars vegar eru það áhrif á hvernig maður metur líkur á einhverju. Hins vegar hefur það áhrif á hæfni til að búa til heild úr allskon- ar upplýsingum,“ segir hann. „Rannsóknir sýna að læknar hafa tilhneigingu til að nýta ómeðvitaða hugs- anaskekkju. Til að mynda svokölluð akker- isáhrif (anchoring effect). Þeir fá upplýsingar, túlka þær og festa síðan fyrsta hugboð sitt við akkeri. Eftir það getur reynst erfitt að taka nýja stefnu.“ Oftast staldri fólk við sem það heyrði síðast (availabillity effect). „Það hefur áhrif á hvernig upplýsingarnar eru túlkaðar.“ Þá hafi óbreytt ástand (status quo bias) einnig sín áhrif á ákvarðanatöku. „Þá hættir okk- ur til að halda að það sé betra að gera eitt- hvað en ekki. Það hefur áhrif á ákvörðun- ina,“ segir hann. Þekking á þankagangi Gunnar segir eitt af því fáa sem hægt sé að gera til að minnka þessi áhrif að auka þekkinguna á því hvernig maður hugsi. „Fá fólk til að velta fyrir sér hvaða tilhneig- ingu heilinn hefur í ákveðnum aðstæðum.“ Læknar verða að þekkja hvernig þeir taka ákvörðun svo þeir skilji hvers vegna þeir velja eitt umfram annað. Læknar ættu reglulega að fara yfir grunnsiðferðisgildin í huga sér því þau séu ekki alltaf efst í huga í hraða hversdagsins. Þetta segir Gunnar Thorarensen læknir ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Læknar þekki þankagang sinn V I Ð T A L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.