Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Síða 45

Læknablaðið - 01.12.2021, Síða 45
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 609 Gunnar segir eina ástæðu þess að hann tali um þetta séu oflækningar. „Choosing Wisely hvetur til þess að við íhugum vel hvað við veljum fyrir sjúklinga okkar. Tímarnir eru þannig að við höfum fræði- lega þekkingu og meðferðarmöguleika út í hið óendanlega. En úrræðin eru takmörk- uð og því þarf að velja sem best,“ segir hann. „Allir eiga rétt á bestu þjónustu hverju sinni, bestu meðferð hverju sinni. Spurn- ingin er ekki hverjir eiga að fá þessa bestu þjónustu heldur er spurt: Hver er besta þjónustan? Er mest íþyngjandi þjónustan best?“ Gunnar segir þessar kenningar sem hann nefni í raun eiga við um lífið allt. „Þetta snýst um mannlega hegðun,“ segir hann en vill þó ekki gefa sig út fyrir að vera sérfræðingur á svo stóru sviði. „En undirliggjandi ástæður fyrir ákvörðunum hafa áhrif á okkur öll í starfi,“ segir hann. En hvernig kviknaði áhugi hans á þessu? „Í sérnámi í Gautaborg,“ segir hann. „Læknaheimurinn er heillandi en krefj- andi. Þegar maður hefur orðið góð tök á klíníska starfinu, er orðinn vel fleygur, verður þessi spurning áleitin. Það þarf því að vinna í samræmi við grunnsið- ferðisgildin. Fara yfir þau í huga sínum reglulega því þau eru ekki alltaf efst í huga í önnum hversdagsins. Maður þarf að hægja á hugsunum sínum og fara yfir hvort ákvarðanirnar í starfi stemmi við öll grunnsiðferðisgildin,“ leggur hann áherslu á. Skipti um kúrs og kaus klíník Gunnar er Reykvíkingur, útskrifaður úr MR, lærði í HÍ og sótti sérnámið til Svíþjóðar. Hann fékk sem læknanemi einstakt tækifæri til að vinna um nokkurra mánaða skeið að erfðarannsókn við Johns Hopkins-spítalann en kaus að verða svæf- inga- og gjörgæslulæknir. Hvers vegna? „Mér fannst frábær reynsla að kynnast rannsóknarheiminum og að fá að vinna á stórkostlegri stofnun eins og Johns Hopk- ins sem er fremst í sinni röð. En þegar ég fór að vinna klínískt fann ég að það heill- aði mig mest,“ segir hann þótt ljóst sé að hann hafi nú ekki alveg sleppt tökunum af vísindaáhuganum. Spurður segir hann að ekki hafi verið gerðir vegvísar fyrir ákvarðanatöku í gjörgæsluumhverfi. Hins vegar þekkist víða að haldnir séu daglega fundir sem fylgi föstu formi með öllu teyminu sem sér um sjúkling. „Þá er spurt spurninga eins og: Teljið Gunnar Thorarensen segir mikilvægt að læknar íhugi hvers vegna þeir taki þær ákvarðanir sem þeir taka. Segja megi að þeir leggi ákvörðunum sínum stundum við akkeri og eigi erfitt með að haggast þaðan. Mynd/gag þið rétt að halda áfram? Teljið þið horfurn- ar breyttar frá því í gær?“ Það rími vel við klínískar leiðbeiningar í líknarlækningum. Lykilspurning þar er hvort það kæmi á óvart ef sjúklingurinn yrði látinn innan árs,“ segir hann. „Sé svarið nei, er rétt að ræða við sjúklinginn um hver hann telji réttu markmiðin,“ segir hann og að því hafi hann viljað koma á framfæri á Lyf- læknaþinginu. Oft flókið að hætta „Það þarf meiri slagkraft og drifkraft til að við breytum hegðuninni. Við erum betri í þessu en við vorum en betur má ef duga skal,“ segir Gunnar. „Við verðum að þora að spyrja okkur hver tilgangur meðferðar hverju sinni er. Er von á að hún lækni? Er meðferð að skila árangri? Er okkur siðferðislega stætt að halda áfram? Það er flókið. Það að okkur hættir mörgum til að finnast réttara að gera eitthvað en að gera ekkert (status quo bias) getur í sumum tilvikum villt okkur sýn.“ Gunnar segir þetta jafnvægislist. „Ég er ekki að segja að nálgast eigi hlutina með kaldlyndi. Maður þarf hins vegar að horfa eins raunsæjum augum á stöðuna og hægt er, byggt á bestu þekkingu sem til er hverju sinni. Það er kjarninn. En skili með- ferð ekki árangri þarf maður að hafa kjark til að horfast í augu við það.“ „Maður þarf að hægja á hugsunum sínum og fara yfir hvort ákvarðanirnar í starfi stemmi við öll grunnsiðferðisgildin.“

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.