Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 53
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 617 Á undanförnum árum hef ég skoðað Ís- lendingasögur og Sturlungu með augum geðlæknis. Það er hægt vegna þess að maðurinn hefur ekkert breyst á eirðar- lausri göngu sinni gegnum aldirnar. Neikvæðar tilfinningar eins og öfund, afbrýðisemi, losti og græðgi ásamt já- kvæðari eiginleikum eins og hreinskilni, fórnarlund og gjafmildi stjórna öllum gjörðum mannsins. Maðurinn er á engan hátt gáfaðri en hann var í árdaga. Nútíma- maðurinn getur auðveldlega skilið sálarlíf Snorra Sturlusonar vegna þess að mann- legt eðli hefur ekkert breyst. Margur gamall texti höfðar til okkar vegna þess að við þekkjum okkur sjálf í honum. Ræðumenn í afmælisveislum samtímans geta óhikað vitnað í Hávamál vegna þess að hugsun kvæðisins er síung og ódauðleg. Menningarsaga mannkyns er vörðuð bókmenntum sem varðveita sögu og hugsunarhátt genginna kynslóða. Þessar bókmenntir eru tímalausar vegna Gilgameskviða Þýðing Stefáns Steinssonar læknis Forlagið 2021 Óttar Guðmundsson geðlæknir að dæma fyrirfram vekja til umhugsunar. Sá sigur sem hann vann þar er forsenda þess að hann er í þeim sporum sem hann er nú. Einnig þættir í hans persónu, svo sem að hafa auga á markmiðinu og stefna þangað ótrauður. Láta ekki segja sér hvað sé hægt og hvað ekki. Hann hefur sýnt alveg ótrúlega þrautseigju og seiglu í þessari baráttu sinni og er fyrir bragðið í dag í stöðu sem sennilega fáa eða engan óraði fyrir. Frásögn um mann sem lendir í fjöl- áverka í háspennuslysi, missir báða hand leggi og hlýtur fjölmörg brot; glímir við alvarlega lifrarbilun og fer tvívegis í lifrarígræðslu endurtekið í meðferð vegna áfengis- og fíkniefnavanda og fer að lokum í tímamótaaðgerð þar sem græddir eru á hann handleggir í hæð við axlir, hlýtur að einhverju leyti að fjalla um læknismeðferðir. En þetta er samt ekki bók um læknisfræði. Fyrst og fremst er þetta saga mannsins sem fer í gegnum þetta allt og hans nánustu. Sagan um hvernig hann kemst frá því að vera handleggjalaus ungur tveggja barna fjöl- skyldufaðir í það að vera sjálfur drifkraft- urinn í að fá grædda á sig handleggi. Og einnig um allt það sem lífið færði honum á meðan. Örugglega má gera ýmsar athugasemd- ir við frásögnina, einstaka sögur skilja mismikið eftir, mögulega hefði mátt stytta hér og þar en það skiptir engu meginmáli. Við fáum hér sögu manns sem hefur gengið í gegnum ótrúlegan áverka og er nú staddur í miðri sögulegri meðferð. þess að maðurinn er alltaf samur við sig. Eitt þessara verka er Gilgameskviða sem er saga herkonungs í Mesópótamíu frá árinu 2700 f.Kr. Gilgames er gæddur sérstökum krafti og gjörvileika eins og Gunnar á Hlíðarenda en hann er líka breyskur og hrokafullur. Hann kem- ur fram við þegna sína eins og grimmur þjóð- höfðingi og sængar hjá öll- um ungum konum áður en brúðguminn fær að njóta þeirra. Hann er markalaus og æðir um eins og graður tarfur. Borg- ararnir snúa sér til guðanna og þeir skapa annan mann, Enkídú, sem er eins konar spegilmynd Gilgamesar. Þeir Gilgames og Enkídú verða svo sannfærðir um eigið ágæti að þeir fara að storka guðunum. Það kallar á gamalkunn viðbrögð sem líkist Nemesis í grísku goðafræðinni. Þeir drepa hinn slæga Enkídú og Gilgames situr yfir líkinu í djúpri sorg. Hann áttar sig á eigin dauð- leika og heldur af stað í leit að ódauð- leikanum. Guðirnir reyna að telja honum hughvarf og biðja hann að njóta þess sem hann hefur en festast ekki í óraunhæfum væntingum og hégóma. Gilgames lætur sér ekki segjast og æðir áfram eins og nútímamaður með adhd í leit að hinum endanlegu veraldlegu verðmætum. Hann áttar sig smám saman á því að ódauð- leikinn felst í því sem hann skilur eftir sig. Gilgames er mikil og ófyrirleitin hetja en jafnframt hrokafullur og narsissistískur og þráir viðurkenningu og völd. Líf hans verður sókn eft- ir vindi. Hann minnir í þessu tilliti á þá Gissur Þorvaldsson og Sturlu Sighvatsson úr Íslandssögunni. Þessi saga hefur haft áhrif á fjölmarga höfunda. Hinn vitri Ódysseifur er eins og spegilmynd af Gilgames í eilífri leit sinni að hamingju. Nútímamenn þekkja í Gilgamesi marga nýaldarspámenn og sveppasölumenn samtímans sem segjast hafa fundið tilgang mannlegrar tilveru. Dauðinn er orðinn ósýnilegur í nútíma- samfélagi og maðurinn gleymir eigin dauðleika. Það eykur á tilgangsleysi og leiðindi tilverunnar sem gerir leitina að eilífri æsku enn örvæntingarfyllri. Það er mikið gleðiefni að bókin um Gilgames skuli vera fáanleg á íslensku. Stefán Steinsson læknir hefur þýtt þessar kviður alveg frábærlega. Bókin kom fyrst út 1996 en var endurútgefin á dögunum í endurskoðaðri útgáfu. Þetta er ein þeirra bóka sem hefur lengi legið á náttborðinu mínu. Ég gríp í hana mér til hugarhægðar þegar heimska og tilgangsgleysi tilver- unnar er að ríða mér á slig. Þá fletti ég bókinni og tauta fyrir munni mér, „svona hefur þetta alltaf verið.“ Hafi Stefán Steinsson þökk fyrir að hafa þýtt þessar fornu og merku bækur á aldeilis óaðfinnanlegan hátt. Textinn rennur eðlilega með hæfilegri blöndu af nútímamáli og hátíðlegra málfari. Það er ekki sjálfsagt mál að eiga perlur eins og þessa á íslensku. Stefán fetar í fótspor manna eins og Sveinbjarnar Egilssonar sem þýddi kviður Hómers. Meðan gáfaðir menn nenna að setjast niður í önn dagsins og þýða snilldarverk bókmenntanna á íslensku er kannski ennþá von fyrir mína voluðu fósturjörð og enskuskotnu tungu. B Ó K A D Ó M A R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.