Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Side 6
6 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
Það er með mikilli ánægju sem ég sit hér í
lok árs að skrifa pistil formanns. Þessir níu
mánuðir frá því að ég tók við embætti hafa
verið ansi viðburðaríkir og skemmtilegir
með mörgum ólíkum verkefnum. Það er
margt sem ég hef lært, en ennþá meira sem
á ég eftir ólært. Sérstaklega ljúft hefur það
verið að mynda aftur tengsl við ljósmæður
og kynnast nýjum ljósmæðrum sem ég hef
ekki áður hitt.
Ég var satt að segja búin að gleyma því
eða ekki búin að átta mig fyllilega á því
áður hvað ljósmæður eru öflug stétt. Þær
konur sem velja sér þennan starfsvettvang
eru sterkar, vel menntaðar konur og algjörir
töffarar. Á þetta verð ég minnt á hverjum
degi.
En það er margt sem gera þarf til að bæta
starfsaðstæður ljósmæðra. Bind ég miklar vonir við nýjan heil-
brigðisráðherra, sem hefur það orðspor að koma hlutum í verk.
Síðastliðið sumar var erfitt, með auknum verkefnum á öllum
vígstöðvum og ónógum mannskap. En það stendur vonandi til
bóta og eins og er bendir ekkert bendir til þess að næsta sumar
verði eins þungt. Við verðum að minnsta kosti að hafa þá trú.
Þrátt fyrir mikið álag stóðu ljósmæður þetta af sér eins og oft
áður, enda sterkar konur. En þessi auknu verkefni hjá fámennri
stétt virðast ekki koma í veg fyrir að ljósmæður láti til sín taka á
öðrum sviðum eða taka að sér önnur mikilvæg verkefni.
Þann 5. maí síðastliðinn á Alþjóðadegi ljósmæðra þegar breyta
þurfti áætlunum varðandi hátíðarhöld og halda ráðstefnu í Zoom-
-fundi kom það berlega í ljós hvað ljósmæður höfðu verið afkasta-
miklar á tímum heimsfaraldursins. Ljósmæður höfðu aldeilis ekki
setið auðum höndum, utan sinna hefðbundnu starfa þar sem þær
hafa gefið út bækur, alls konar fræðsluefni, stofnað fyrirtæki til
að sinna barnshafandi konum í neyslu o.fl., o.fl. Dagskráin þetta
kvöld var fljót að fyllast og hefði verið hægt að hafa mun lengri,
því af nægu var að taka. Eins var mjög gaman að heyra frá ljós-
mæðrum sem starfa erlendis sem lýstu sínum starfsaðstæðum á
Covid tímum. Margt mjög ólíkt því sem var að gerast á Íslandi.
Í haust höfum við haldið tvo Zoom-fræðslufundi þar sem
gangsetningar voru umræðuefni fyrra kvöldið og áföll í starfi
það seinna. Þessi fræðsla var í boði ljósmæðra sem hafa aflað
sér aukinnar þekkingar á viðkomandi sviðum, með rannsóknum,
meistaraverkefnum og gerð verklagsleiðbeininga. Það var eins
með þessi fræðslukvöld, dagskráin hefði getað verið mun lengri.
Eins var virkilega ánægjulegt hversu margar ljósmæður mættu á
fundina af öllu landinu.
Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands stefnir því á það að halda áfram
með Zoom-fundi annan hvern mánuð í vetur og er stefnt á næsta
fund í lok janúar. Þetta er góð leið fyrir okkur ljósmæður til að
sameinast eina kvöldstund hvar sem við erum staddar.
Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands hefur nú
gert samning við Áfalla- og sálfræðimið-
stöðina fyrir hönd okkar félagsmanna sem
verða fyrir áföllum í starfi. Samningurinn
felur í sér að ljósmæður fái forgang í viðtöl
og tíma sem fyrst. Nokkrir sálfræðingar við
stöðina munu sérhæfa sig í störfum ljós-
mæðra og starfsumhverfi okkar. Áfalla- og
sálfræðimiðstöðin hefur starfsstöð í Kópa-
vogi og notar einnig samskiptaforritið Kara
Connect og getur því veitt ljósmæðrum
um allt land þessa sérhæfðu þjónustu. Við
hlökkum til samstarfsins, en nánari kynning
á þjónustunni er að finna í þessu blaði.
Kjaramál koma til með að taka meira
pláss í mínum störfum næstu mánuði. Það
á eftir að gera stofnanasamninga við átta
heilbrigðisstofnanir utan Landspítala, þar
sem ljósmæður starfa. Stofnanasamningur-
inn við Landspítala var yfirfarinn í desember 2020. Gerð var
smávægileg breyting á starfsþróunarkerfinu nú í sumar til að
koma til móts við og meta betur þær breytingar sem orðið hafa á
námi ljósmæðra sem nú er meistaranám til starfsréttinda.
Undirbúningur fyrir samninga árið 2023 er þegar hafinn og
er markmiðið að sá samningur taki við af núverandi samningi,
sem vonandi gengur eftir. Í nýjum stjórnarsáttmála kemur fram
að stefnt sé að því að stuðla að bættum vinnubrögðum og aukinni
skilvirkni við gerð kjarasamninga.
Á næsta ári verður skoðað hverju verkefnið Betri vinnutími
hefur skilað ljósmæðrum. Til stendur m.a. að senda út skoð-
anakannanir til félagsmanna fljótlega eftir áramót, sem ég vil
hvetja ykkur til að svara. Þó margt gott hafi áunnist við þessar
breytingar, þá er einnig margt sem má laga. Því er gott að heyra
frá ykkur hvað helst má bæta.
En ég fer full tilhlökkunar og bjartsýni inn í næsta ár þar sem
mörg spennandi verkefni bíða úrlausna til að bæta hag ljósmæðra
alls staðar á landinu og hlakka ég til áframhaldandi samstarfs við
ykkur.
Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður.
Unnur Berglind Friðriksdóttir,
formaður Ljósmæðrafélags Íslands
Á VA R P F O R M A N N S L J Ó S M Æ Ð R A F É L A G S I N S
FORMANNSPISTILL