Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Síða 16
16 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
inum, þá hafa ljósmæður svo margt sameiginlegt, sem endurspeglast t.d.
í skilgreiningu á hlutverki og hugmyndafræði alþjóðasamtaka ljósmæðra,
sem ljósmóðurnám og starf byggir á.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin setur líka fram hæfniviðmið fyrir
barneignarþjónustu og hvetur ljósmæður og annað heilbrigðisfagfólk til
að vinna saman og leysa vandamál sem tengjast því að grípa inn í barn-
eignarferli „of mikið of snemma eða of lítið of seint”. Það hafa orðið
framfarir, við verðum að viðurkenna það, annars verðum við þunglynd
og döpur, en það eru áfram vandamál til staðar víða, og verða á næstu
árum. Það er ekki nóg að koma í veg fyrir mæðra- og barnadauða og
bjarga mannslífum, sem er auðvitað mikilvægt grundvallarmarkmið,
heldur þurfum við ljósmæður að gera meira, vera hugrökk, efla menntun
og nota vísindin til að bæta ástandið.
Á síðustu tveimur áratugum, síðan ljósmóðurfræði varð að
akademískri grein, hafa ljósmæður framleitt mikla þekkingu, framkvæmt
fjölda hágæðarannsókna til að efla gagnreynda ljósmóðurþjónustu í
starfi. Við eigum að vera stoltar af því að eiga stóran þátt í þeim þekk-
ingargrunni sem nú er til, þar sem við höfum tekið virkan þátt, á skyn-
saman hátt í tengslum við okkar skjólstæðinga. Þess vegna eigum við líka
að hjálpa til annars staðar t.d. í lágtekjulöndum og skoða hvort hægt er
að heimafæra niðurstöður t.d. á Indlandi eða í Brasilíu, en þaðan kom
fyrst upp hugmyndafræðin um mannúðlegar barnsfæðingar. Við eigum
að vinna saman sem tvíburar eða sem alþjóðlegar systur, mynda keðju
til verða betri ljósmæður í betri fæðingum og í breyttu þjónustuformi. Þar
sem samfelld þjónusta, eins og við höfum verið að tala um, er veitt og
konan upplifir sjálfræði, er við stjórnvölinn með stuðningi frá maka og
sinni ljósmóður.
Það er ljóst að víða er komið fram af vanvirðingu við konur og börn og
mannréttindi brotin í barneignarþjónustunni. Lesley telur að við á Íslandi
ættum að efla rannsóknir enn frekar og hafa áhrif ásamt öðrum ljós-
mæðrum í hátekjulöndum sem búa við góðar félagslegar og menningar-
legar aðstæður. Allar konur og fjölskyldur þeirra um allan heim eiga rétt
á að upplifa mannlega nánd og mannúðlegar betri fæðingar sem einnig
hefur jákvæð áhrif á umhverfið okkar.
Um þessi mál og fleira talaði Lesley eftirminnilega í athöfninni þegar
hún varð heiðursdoktor í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands.
Ólöf Ásta Ólafsdóttir.
Ljósmæðrabörn spiluðu á hátíðinni og slógu í gegn. Þau eru í fiðlunámi hjá Lilju
Hjaltadóttur í Allegro Suzuki skólanum. Undirleik annaðist skólastjórinn Kristinn Örn
Kristinsson. Fyrir miðju er Maríanna Arney Ívarsdóttir. Emma Maríe Swift er móðir
hennar. Til hliðar eru Haraldur Áss Liljuson og Sveindís Eir Steinunnardóttir. Þau eru
börn Steinunnar Blöndal. Börnin spiluðu lagið Csardas fyrir þrjár fiðlur eftir Michael
McLean.
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
HUNTLEIGH SONICAID
DIGITAL
FÓSTURDOPPLER
• Nettur og handhægur doppler
• Háskerpuskjár
• Línurit
• Hleðslubatterí
• Áfastur vatnsheldur prób sem hægt
er að nota við fæðingar í vatni