Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Qupperneq 22

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Qupperneq 22
22 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021 Undanþága er þó til staðar sem heimilar átta vitjanir fyrir mæður sem fæða barn sitt heima. Heimilaður fjöldi vitjana fyrir mæður sem fæða barn sitt á fæðingardeildum spítala eða heilbrigðisstofnunum eru fimm til sjö vitjanir (Sjúkratryggingar Íslands og ljósmæður, 2009, 2018). Markmið þessarar rannsóknar var að lýsa fjölda heimavitjana, bráðavitjana og vitjana brjóstagjafaráðgjafa meðal kvenna í sæng- urlegu á árunum 2012-2019. Einnig var markmiðið að meta áhrif heilsufarsflokkunar móður og barns á áhættuna á að móðir og/eða barn þyrfti á bráðavitjun eða vitjun brjóstagjafaráðgjafa að halda. Tilgangur rannsóknar var að varpa ljósi á þjónustu ljósmæðra í sængurlegu og þá þróun sem hefur átt sér stað í heimaþjónustu hér á landi undanfarin ár. Einnig að byggja grunn fyrir ýtarlegri rann- sóknir og skapa þekkingu sem gæti stutt við áframhaldandi þróun á þjónustu og gæðaeftirlit. AÐFERÐIR Rannsóknin var framskyggn ferilrannsókn sem byggði á skrán- ingum frá ljósmæðrum og brjóstagjafaráðgjöfum um mæður og nýbura í heimaþjónustu á árunum 2012-2019. Gögnin fengust frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) en ljósmæður og brjóstagjafaráð- gjafar á verktakasamningum við SÍ sáu um skráningar. Gagna- grunnurinn inniheldur upplýsingar um allar vitjanir ljósmæðra og brjóstagjafaráðgjafa til kvenna í sængurlegu á Íslandi á tímabilinu. Heildarfjöldi mæðra í rannsókninni var 28.009. Úr þessum gögnum fengust upplýsingar um aldur móður (samfelld breyta), heilsufarsflokkun (A, B, C), bæri (frumbyrja/fjöl- byrja), heilbrigðisumdæmi (höfuðborgarsvæðið, Austurland, Norð- urland, Suðurland, Suðurnes, Vestfirðir og Vesturland), fæðingu með keisaraskurði (já/nei), brjóstaráðgjöf (já/nei), bráðavitjun (já/ nei) og fjöldi vitjana (samfelld breyta). Fyrir þessa rannsókn var aldur móður settur í flokka; 14-19 ára, 20-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára og 50 ára og eldri. Heilsufarsflokkun móður og barns er breyta sem skilgreinir heilsu móður og barns (tafla 1). Ef móðir og barn eru heilsuhraust og án áhættuþátta eru þau skilgreind í heilsufarsflokki A, séu lítilsháttar heilsufarsfrávik til staðar verður skilgreiningin á heilsufari flokkur B og mæður og nýburar með alvarlegri heilsufarsfrávik eru skilgreind sem flokkur C. Horft er til lífsmarka móður, blæðingar í og eftir fæðingu, fæðingaráverka, þvagláta, daglegra athafna, blóðþrýstings eða meðgöngueitrunar, sykursýki, fjölburafæðingar, keisara- fæðingar, sérstakrar lyfjagjafar, sýkinga, geðraskana eða félagslegra aðstæðna þegar heilsa móður er metin. Heilsa barns er einnig metin í sama kerfi (A/B/C). Horft er til 5 mínútna APGAR/lífsmarka, meðgöngulengdar, þyngdar, næringar, útskilnaðar, blóðsykurstjórn- unar, sýkinga, Rhesus varna, gulu, fósturæðar eða annarra alvarlegra vandamála (tafla 1). Móðir og barn fá sameiginlegt mat þar sem það gildi sem lýsir verra heilsufari annaðhvort hjá móður eða barni er notað til að lýsa sameiginlegu heilsufarsástandi þeirra, tiltekið gildi skilgreinir heilsufarsflokkun móður og barns. Sem dæmi, ef móðir fær heilsufarsflokkun A en barn heilsufarsflokkun B þá er þeirra sameiginlega heilsufarsflokkun B. Á gögnunum eru tveir vankantar sem vert er að nefna hér. Heilsufarsflokkur mæðra sem áttu börn sín með keisaraskurði eða í heimahúsi var ekki skráður. Einnig var einungis skráð hvort kona var frumbyrja eða fjölbyrja ef hún var í A flokki. TÖLFRÆÐIGREINING Flokkabreytum var lýst sem fjölda og hlutfalli af heild (%) og samfellri breytu var lýst með meðaltali. Marktækni var reiknuð með kí-kvaðrat fyrir flokkabreytur og t-prófi fyrir samfelldar breytur og var skilgreind með p<0,05. Bakgrunnsbreytum mæðra var einnig lýst sem fjölda og hlutfalli af heild (%) eftir heilsufarsflokkun móður og barns og eftir ári á tímabilinu 2012-2019. Meðaltöl fjölda vitjana í hverjum heilsufarsflokki var lýst eftir ári og heilsufars- flokkun. Notast var við fjölþátta lógistíska aðhvarfsgreiningu til að reikna áhættuna á bráðavitjunum og vitjun brjóstagjafaráðgjafa eftir heilsufarsflokkun og niðurstöðum lýst með gagnlíkindahlutfalli (GL) og leiðréttu gagnlíkindahlutfalli (LGL). Notast var við 95% öryggisbil (ÖB). Módelið var leiðrétt fyrir aldri móður (flokka- breytu), keisarafæðingu og heilbrigðisumdæmi. Notast var við tölfræðiforritið R og RStudio útgáfu 1.1.463 við úrvinnslu gagna. Rannsóknin var samþykkt af Vísindasiðanefnd þann 7. júlí 2020 (VSN-20-131). NIÐURSTÖÐUR Í heildina voru 28.009 mæður sem nýttu sér heimaþjónustu ljós- mæðra á árunum 2012-2019. Fjöldi mæðra í heimaþjónustu sveifl- aðist frá 3.360 upp í 3.833 á milli ára (tafla 2). Marktækur munur reyndist á aldursdreifingu mæðra milli ára (p<0,001). Mæðrum á aldrinum 14-19 ára fækkaði hlutfallslega um helming á tímabilinu, hlutfallið breyttist úr 2,8% niður í 1,1%. Aðrir aldurshópar voru svipaðir á milli ára (tafla 3). Mæður sem fæddu með keisaraskurði voru 2.362 (8,4%). Marktækur munur milli ára mældist á tíðni mæðra í heimaþjónustu sem fæddu með keisaraskurði (tafla 2). Heildarfjöldi A flokkaðra mæðra/nýbura var 12.270 (43,8%), B flokkaðar mæður/nýburar voru 9.400 (33,6%), C flokkaðar 2.826 (10,1%) og mæður/nýburar með óskráðan heilsufarsflokk voru 3.513 (12,5%; tafla 2). Við upphaf rannsóknartímans voru 1.939 (55,8%) mæður og nýburar flokkuð í heilsufarsflokk A en við lok rannsóknartímans voru 1.222 (31,9%) mæður og nýburar A flokkuð. Tafla 1. Flokkunarkerfi fyrir heilsufarsskráningu hjá móður og barni (Hildur Sigurðardóttir, 2014a). Tafla 2. Bakgrunnur og heilsufarsflokkun kvenna sem fengu heimaþjónustu í sængurlegu á Íslandi á tímabilinu 2012-2019 (N=28.009).

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.