Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Síða 41
41LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
V I Ð TA L
LOKSINS, LOKSINS KOMIÐ LEYFI TIL AÐ
ÁVÍSA GETNAÐARVÖRNUM, EN…
Viðtal við Steinu Þóreyju Ragnarsdóttur, ljósmóður í Keflavík
Lög voru samþykkt á Alþingi 18. desember 2018 um breytingu á
lyfjalögum og lögum um landlækni og lýðheilsu og reglugerð frá 24.
ágúst 2020 um heimildir hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra til ávís-
unar hormónalyfja til getnaðarvarna. Í samræmi við þetta hafa verið
í boði á vegum Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands námskeið um
getnaðarvarnarráðgjöf, í umsjón Hildar Sigurðardóttur og Sóleyjar
Bender.
Námskeiðið er fyrir nemendur í ljósmóðurfræði í MS námi
til starfsréttinda, starfandi ljósmæður og hjúkrunarfræðinga sem
eru í eða hafa lokið framhaldsnámi á viðeigandi sviði. Í fyrsta
námskeiðinu sem fór fram í byrjun árs 2020, tóku bæði nemendur
og starfandi ljósmæður þátt. Nú er þetta námskeið tvíkennt, annars
vegar fyrir nemendur í ljósmóðurnámi og hins vegar fyrir ljósmæður
og hjúkrunarfræðinga. Haldin hafa verið alls þrjú námskeið og nú
hafa 60 lokið því (54 ljósmæður eða ljósmæðranemar og 6 hjúkr-
unarfræðingar). Á þessari stundu er ekki ljóst hversu margir hafa sótt
um leyfi og hafið ávísun á getnaðarvarnarlyfjum en ljóst er að það
er vandkvæðum bundið vegna kerfislægra galla og tafa hjá Land-
læknisembættinu.
Ein af ljósmæðrunum sem lauk fyrsta námskeiðinu innan ljósmóð-
urnámsins, sem einnig hefur fengið formlegt leyfi til að ávísa getn-
aðarvörnum, er Steina Þórey Ragnarsdóttir ljósmóðir í Keflavík.
Fyrir hönd Ljósmæðrablaðsins fór ritstjórinn á stúfana og ræddi við
hana um þetta nýja mikilvæga námskeið, reynsluna og þá möguleika
sem ljósmæður hafa nú til að efla þjónustu við konur fyrir og eftir
barneign.
NÁMSKEIÐIÐ UM GETNAÐARVARNARRÁÐGJÖF
OG ÁVÍSANIR HORMÓNAGETNAÐARVARNA
„Við sem vorum í fyrsta hópnum til þess að fá þessa kennslu,
vorum mjög spenntar yfir því að fá þetta tækifæri. Námskeiðið
sjálft stóð yfir í 5 daga og lauk 4 mánuðum seinna með krossa-
prófi. Tímann á milli átti að nota til að afla sér reynslu, og fá að
fylgja eftir fagfólki með kunnáttu og færni s.s. kvensjúkdómalækni,
setja upp hormónastafinn eða lykkju. Í námsmatinu fólst að skrá
þessa reynslu og svo voru tvö verkefni um getnaðarvarnaráðgjöf
sem voru kynnt í umræðutíma. Þetta var allt í allt mjög áhugavert
námskeið en með nokkrum vanköntum, sem er ekki skrýtið þar sem
verið var að kenna námskeiðið í fyrsta sinn og það enn í mótun.
Kennararnir voru yndislegir sem vildu endilega fá frá okkur hvað
mætti gera betur. Okkur fannst vera svolítið af endurtekningum
milli tíma hjá kennurunum, en þeir voru ljósmæður, hjúkrunar-
fræðingur, læknir, kvensjúkdómalæknir og lyfjafræðingur. Þetta
var hins vegar skemmtilegt efni og einnig verklegu æfingarnar“.
Í umræðum við fleiri ljósmæður sem hafa tekið námskeiðið
hefur komið fram að almennt þykir það ókostur við fyrirkomu-
lag námskeiðsins að nemendur þurfi sjálfir að verða sér úti um
námstækifæri og klíníska starfsþjálfun, t.d. til að fylgjast með getn-
aðarvarnarráðgjöf, finna og fá tækifæri til að fylgja kvensjúkdóma-
lækni og æfa sig að setja upp lykkju og hormónastafinn. „Ég var
heppin þar sem að ég fékk að fylgja kvensjúkdómalækni sem vinnur
á sömu heilsugæslu og ég gat því fylgst með hvenær hún væri að
setja upp lykkju og mætti þá. Það hefði getað gengið vel upp á
þessum tíma ef kórónuveiran hefði ekki stungið sér niður. Þá gat ég
ekki haldið áfram að vera með henni“.
Það er ljóst að þegar farið er af stað með svona nýtt verkefni þá
þarf að undirbúa það mjög vel. Steinu finnst fræðileg umfjöllun,
handbók og glærur hafa nýst vel; „en ég veit að flestar ljósmæður
sem hafa tekið námskeiðið hafa átt í erfiðleikum með að verða sér
úti um þau námstækifæri sem varða lykkjuuppsetninguna, taka
lykkjuna úr ásamt því að fá þekkingu við að meta í sónar hvort
lykkjan sitji á réttum stað. Ég hefði viljað útfæra þann þátt þannig
að samið væri við ákveðna kvensjúkdómalækna með aðstöðu á
LSH, fá nauðsynlega þjálfun þar og öðlast góða reynslu áður en
farið væri á sínar heilsugæslustöðvar til að efla þessa þjónustu
ljósmæðra þar“.