Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Side 50
50 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
MIKILVÆGI
BRJÓSTAGJAFARRÁÐGJAFAR
Reynslusaga
Nýlega var reglugerð breytt er varðar þjónustu
brjóstagjafaráðgjafa en hún gerir konum kleift að
fá ráðgjöf frá brjóstagjafaráðgjafa sér að kostnað-
arlausu þar til barn er sex mánaða gamalt. Áður
var það hægt í þrjár vikur eftir fæðinguna og vitj-
anir í boði voru aðeins tvær. Þessi aukna og bætta
þjónusta er afskaplega mikilvæg til þess að stuðla
að góðri brjóstagjöf. Það er nefnilega þannig að
vandamál í brjóstagjöf koma ekkert endilega upp
fyrstu tvær vikurnar eftir fæðinguna. Því fékk ég að
kynnast í vor þegar við hjónin eignuðumst okkar
þriðja dreng. Á meðgöngunni hvarflaði aldrei neitt
annað að mér en að brjóstagjöfin myndi ganga vel
í þriðja sinn enda orðin nokkuð vön móðir og ljós-
móðir, en annað kom á daginn, og langar mig að
deila okkar brjóstagjafasögu.
Fljótlega eftir fæðinguna reyndi ég að leggja
drenginn á brjóst, en hann beit! Svo það mætti
segja að þetta hafi byrjað brösuglega en eftir smá stund tók drengurinn
brjóstið og saug. Og fyrstu dagarnir gengu vel, drengurinn saug brjóst með
hatti líkt og eldri drengirnir höfðu gert í fyrstu og mjólkin kom mjög fljótt,
drengurinn var farinn að kúka gulu á öðrum degi, hann pissaði vel og svaf
vel. Í fimm daga skoðun vantaði 10 grömm upp á að hann næði fæðingar-
þyngd. Allt var eins og ég hafði upplifað áður með þá eldri tvo. Þegar dreng-
urinn var 15 daga gamall kom ljósmóðirin í ungbarnaverndinni heim til
okkar. Hennar fyrsta verk var að vigta drenginn og mér til mikillar undrunar
hafði hann ekki þyngst frá því í fimm daga skoðuninni heldur lést um 25
grömm. Það sem mér brá! Við ljósmóðirin ræddum stöðuna og ákváðum
að bíða aðeins með þurrmjólkurábót og ég sagðist ætla að mjólka mig eftir
gjafir og gefa drengnum það sem ég fengi aukalega. Þessi tíðindi höfðu þau
áhrif að þegar ljósmóðirin hafði yfirgefið heimilið brast ég í grát enda fannst
mér ég algjörlega hafa klikkað í móðurhlutverkinu. Ég hafði strax samband
við ljósusystur mína sem kom færandi hendi með brjóstapumpu sem hún
átti. Ég byrjaði svo að vanda mig betur við gjafirnar, reyndi að gefa brjóst
án hattsins og mjólka mig í kjölfarið. Það kom svo í ljós að ég var ekki að
fá mikið aukalega, en það sem ég fékk var drengnum gefið. Ég áttaði mig
einnig á því að drengurinn saug sennilega ekki nógu vel og gat ekki tekið
brjóstið án hattsins.
Þremur dögum síðar var drengurinn vigtaður aftur og hafði þá aðeins
þyngst um einhver grömm. Við ljósmóðirin ræddum stöðuna og hún gaf
mér ýmsar upplýsingar og ráð en það vildi svo til að hún hafði nýlokið
námskeiði um brjóstagjöf þegar þetta var. Hún þuldi meðal annars upp lista
yfir matvæli sem eiga að auka mjólkurframleiðslu og sagði mér að það ætti
einnig að vera áhrifaríkt að reyna brjóstavindingu. Eitthvað sem ég hafði
aðeins heyrt um en aldrei vitað hvað væri. Hún sagði mikilvægt að fá
brjóstin á hreyfingu. Ég hlustaði með eftirtekt og þagði þunnu hljóði. Eftir
vitjun ljósmóðurinnar fékk ég leigða almennilega mjaltavél og strax fyrsta
daginn áttaði ég mig á því hversu lítið ég var í raun og veru að mjólka. Eftir
smá umhugsun ákvað ég að hætta að gefa drengnum brjóst og mjólka mig
og gefa honum með pela. Fyrstu fimm dagana átti ég ekki alveg nóg ofan
í hann svo hann fékk smá þurrmjólkurábót. Og þá grét ég og svo grét ég
aðeins meira. Ég sem hef oft gefið öðrum börnum þurrmjólkurábót átti svo
erfitt með að taka því að ÉG þyrfti að gefa barninu
mínu þurrmjólk. En ég hafði alltaf trú á því að ég
gæti mjólkað nóg ofan í hann því hann var sá létt-
asti af þeim bræðrum og ég hafði alltaf mjólkað
meira en nóg ofan í hina.
Þessa fyrstu daga fór ég eftir ráðum ljósmóður-
innar og passaði upp á að borða hafragraut, spínat
og sitthvað fleira alla daga, allt matvæli sem voru
á listanum yfir mjólkuraukandi matvæli. Á hverju
kvöldi fór ég í sturtu og þar stóð ég og vatt upp
á brjóstin, sneri þeim í hringi, hristi þau upp og
niður og til hægri og vinstri og allt sem mér datt
í hug. Hugsaði þar sem ég stóð í sturtunni að ég
væri nú alveg við það að missa vitið.
Á þessum tíma hafði ég einnig samband við
yndislega samstarfskonu mína sem er brjósta-
gjafaráðgjafi. Eftir að hún fékk að heyra okkar
sögu bauðst hún til þess að koma til mín en hún gaf mér einnig góð ráð og
benti mér á að prófa mjólkuraukandi töflur og te. Hún sagði mér svo frá
því að óáfengur bjór ætti einnig að vera mjólkuraukandi. Þeir sem þekkja
mig vita að ég hef aldrei drukkið áfenga drykki og eingöngu vegna þess að
mér finnast þeir allir svo bragðvondir. En ég ætlaði mér að ná upp þessari
mjólkurframleiðslu svo óáfengur bjór var drukkinn yfir Eurovision. Í fyrstu
gekk það ágætlega en eftir nokkra sopa var ég farin að halda fyrir nefið til
þess að koma bjórnum niður og gafst upp þegar um helmingurinn var eftir.
Hún hvatti mig einnig til þess að hafa samband við Huldu Línu brjóstagjafa-
ráðgjafa.
Ég hringdi strax í Huldu Línu. Hana þekki ég ekki persónulega svo
þegar ég hringdi kynnti ég mig sem ljósmóður en fyrst og fremst móður
þriggja stráka sem væri í vandræðum með brjóstagjöf þess yngsta. Hún
sagðist vera í fríi en bauðst til þess að ráðleggja mér í síma. Huldu Línu
fannst líklegt að drengurinn væri með sogvillu. Hún taldi að allt hefði
gengið vel í upphafi því mjólkurframleiðslan hefði verið svo mikil að hann
hefði ekki þurft að hafa neitt fyrir hlutunum og mjólkin rynni bara upp
í hann. En svo þegar á leið hefði það ekki dugað og hann hefði dregið
úr mjólkurframleiðslunni með ófullnægjandi sogi. Hún ráðlagði mér að fá
höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð fyrir drenginn og vonaðist til að það
gæti losað um spennu sem gæti truflað hann. Hún kenndi mér jafnframt
aðferð til þess að gefa pela á þann hátt að drengurinn myndi ekki fúlsa við
brjóstinu þegar að því kæmi að hann færi á brjóst aftur, en hún taldi allar
líkur á því að það gæti tekist þegar hann yrði 5-8 vikna gamall. Hún sagði
mér einnig að til þess að mjólka nóg ofan í hann yrði ég að fá um 900 ml
á sólarhring með mjaltavélinni. Að endingu sagði Hulda Lína mér að það
væri líka mikilvægt að hugsa vel um sjálfa mig og það gæti verið gott að
prófa brjóstavindingu.
Í stuttu máli þá fór ég í einu og öllu eftir því sem mér var
ráðlagt. Drengurinn fékk höfuðbeina- og spjaldshryggmeðferð
sem hafði engin áhrif á getu hans til þess að drekka brjóst. Ég
reyndi að hugsa vel um sjálfa mig, hvíldist, drakk og borðaði vel
og hélt áfram að stunda brjóstaleikfimi í sturtu. Ég prófaði þó
Anna Guðný Hallgrímsdóttir,
brjóstmjólkandi móðir og ljósmóðir
H U G L E I Ð I N G L J Ó S M Ó Ð U R