Bændablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 2

Bændablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022 FRÉTTIR www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 779.000 kr. 25% afsláttur BREKKA 34 - 9 fm Tilboðsverð 489.000 kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 539.000 kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIG PLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Rúningur: Íslandsvinur sló heimsmet Breski bóndinn Marie Prepple sló heimsmet í rúningi í lok ágúst. Það er kannski ekki í frásögur færandi fyrir íslenska lesendur nema fyrir þá staðreynd að Marie kemur reglulega hingað til lands til að rýja fé íslenskra bænda. Marie gerði atlögu við fyrsta heimsmet kvenna í átta tíma löngum rúningi á fullorðnu fé. Hún stóð við rúning í fjórum tveggja tíma hollum milli kl. 7 og 17 fimmtudaginn 26. ágúst. Niðurstaðan var 370 ær á 8 klukkutímum, sem gerir 1,3 kindur á mínútu. Marie hefur vanið komur sínar hingað til lands og ráðið sig í rúning hjá íslenskum sauðfjárbændum ásamt vinkonu sinni, Heiðu Guðnýju Ásgeirsdóttur, bónda á Ljótarstöðum í Skaftártungu. Fer af þeim stöllum gott orð um framúrskarandi vinnubrögð. Í viðtali við landbúnaðarmiðilinn The Scottish Farmer segist Marie vera stolt af því að vinna í starfsstétt þar sem konur eru metnar til jafns við karla og fái m.a. sömu laun fyrir vinnu sína. Marie elur manninn á bænum Boyington Court Farm í Kent þar sem hún elur sauðfé á sjálfbæru beitarlandi og selur afurðir beint frá býli. /ghp Seiglu, einbeitingu og fumlaus vinnubrögð þarf til að rýja 370 ær á átta tímum. Það gerði Marie Prepple á dögunum og sló þar með heimsmet. Mynd / Emily Fleur Kristinn Hugason ráðinn samskiptastjóri Ísteka Kristinn Hugason hefur hafið störf sem samskiptastjóri Ísteka. Kristinn hefur meistaragráður í búfjárkynbóta- fræði (MSc) frá SLU og í opinberri stefnumótun og stjórnsýslu (MA) frá HÍ, er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Ísteka. „Hann starfaði um árabil sem landsráðunautur Búnaðarfélags Íslands í hrossarækt og hjá Bændasamtökunum ef t i r stofnun þeirra, síðan innan stjórnarráðsins; í sjávarútvegs- ráðuneytinu, sjávarútvegs-og land- búnaðarráðuneytinu og atvinnu vega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þar sinnti hann m.a. málefnum sjálfbærrar þróunar, fiskeldis, matvælamálum, málefnum dýravelferðar og var formaður nefndarinnar sem samdi frumvarp til núgildandi laga um velferð dýra (lög nr. 55/2013), almennum landbúnaðarmálum og hrossa- ræktarinnar sérstaklega. Nú síðustu árin hefur Kristinn starfað sem forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins. Hann hefur stundað hestamennsku svo gott sem allt sitt líf og hrossarækt sem viðfangsefni meira og minna síðustu fjóra áratugina eða svo,“ segir í tilkynningunni. Í aðsendri grein á bls. 53 fjallar Kristinn um blóðtöku úr fylfullum hryssum, þar sem hann gerir athugasemd við málflutning talsmanna þýsk-svissnesku dýra- verndarsamtakanna AWF/TSB í síðasta tölublaði Bændablaðsins. /ghp Kristinn Hugason. Nýlega bárust fréttir af því að Kjarnafæði Norðlenska hefði gert samninga við Fjallalamb og Sláturfélag Vopnfirðinga um kaup á umtalsverðu magni af kindakjöti af þeim í yfirstandandi sláturtíð. Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Kjarnafæðis Norðlenska, segir að fyrirtækið hafi reyndar um árabil keypt kjöt af Sláturfélagi Vopnfirðinga. Hann samsinnir því að hugmyndin sé að tryggja nægt magn hráefnis til að hægt sé að halda öllum framleiðslukerfum gangandi sem rekin eru undir móðurfélaginu Kjarnafæði Norðlenska hf. Ekki sé þó hægt að nefna magn- tölur í þessu samhengi því það sé alltaf ákveðin óvissa um heildarmagn af innlögðu kjöti inn í þessi sláturhús. Bændur séu frjálsir í þessum viðskiptum og dæmi séu um að þeir færi innlegg sitt á milli sláturleyfishafa í stórum stíl. Svipaður starfsmannafjöldi sláturhúsa Vegna þess að nú horfir til þess að talsvert færri gripir muni koma til slátrunar í yfirstandandi sláturtíð, er Ágúst spurður um hvort ein- hverjar breytingar séu fyrirséðar á umfanginu hjá sláturhúsunum – til dæmis starfsmannafjölda. „Ekki núna, þetta verður ekki svo mikil breyting á milli ára. En til framtíðar, ef áframhaldandi fækkun slátur- gripa verður, mun þetta þróast þannig hjá flestum, held ég, að það verði horft til þess að nýta mannskapinn og húsin sem best. Það er því nauðsynlegt að horfa til aukinnar hagræðingar í sauðfjárslátrun og reyndar slátrun almennt með auknum heimildum til samstarfs og verkaskiptingar þannig að unnt verði að lækka sláturkostnað og nýta fjárfestingu betur en nú er mögulegt. Varðandi þróun framleiðslu næstu ár vitum við hins vegar lítið hvað mun gerast fyrr en það birtast ásetningstölur, hversu margar vetrarfóðraðar ær verða í landinu,“ segir Ágúst. Hann segir að fyrir utan þessa fækkun sláturgripa nú í haust, megi gera ráð fyrir beinum veðurfarslegum áhrifum síðasta sumars á kindakjötsframleiðsluna. „Í það minnsta á okkar svæði hér á Norður- og Norðausturlandi. Ólíkt sumrinu 2021, þá var sumarið núna kalt og blautt, sem mun líklega hafa áhrif á meðalþunga dilka – og þannig heildarmagn lambakjöts. Í raun og veru er best að spyrja að leikslokum og þau eru í endaðan október.“ /smh Kjarnafæði Norðlenska kaupir af Fjallalambi og Vopnfirðingum Ágúst Torfi Hauksson. Ný verðlagsnefnd búvöru hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Lágmarksverð 1. fl. mjólkur til bænda mun þannig hækka um 4,56% úr 111,89 kr./ltr. í 116,99 kr./ ltr. frá og með 1. september sl. og hækkar heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur um 3,72% en sú breyting tekur gildi þann 8. september. Verðhækkanirnar eru komnar til vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og úrvinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem var 1. apríl 2022. Frá síðustu verðákvörðun til septembermánaðar hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 4,56% að meðaltali en þar vegur þyngst hækkun á rekstrarvörum (rúlluplasti og garni), olíukostnaður og vaxtahækkanir. Á sama tímabili hefur vinnslu- og dreifingarkostnaður afurða- stöðvanna hækkað um 2,67% og er það grundvöllur hækkunar heildsöluverðs auk hækkunar á afurðaverði. Á fyrsta fundi nýrrar verðlags nefndar var einnig tekið fyrir erindi til nefndarinnar er varðar tillögur starfshóps um verðlagsmál í nautgriparækt. Sammæltist nefndin um að ráðast í uppfærslu á verðlagsgrundvelli mjólkur og ákveðið var að formaður í samstarfi við matvælaráðuneytið myndi gera tillögu um framkvæmd og verkáætlun verkefnisins, sem tekið yrði fyrir á næsta fundi sem ákveðinn hefur verið þann 6. október. Formaður nautgripabænda, NautBÍ, Herdís Magna Gunnars- dóttir, segir ánægjulegt að loksins stefni í að uppfærður verð- lagsgrundvöllur líti dagsins ljós. „Verðlagsgrunnur kúabús er orðinn yfir 20 ára gamall, grunnbúið er með 188.000 lítra framleiðslu auk uppeldis geldneyta en á síðustu áratugum hefur orðið gríðarleg framþróun í íslenskri mjólkurframleiðslu,“ segir hún m.a. í aðsendri grein sem finna má á bls. 49 í þessu tölublaði. Hún bendir á þær breytingar sem orðið hafa á þessum 20 árum og að árið 2021 hafi meðalinnleggið verið um 288.000 lítrar. „Það gefur því auga leið að núverandi grundvöllur lýsir ekki hagkvæmu nútímabúi.“ Verðlagsnefnd búvara 2022–2024 Ný verðlagsnefnd búvara var skipuðu í sumar og kemur til með að starfa árin 2022-2024. Matvælaráðherra skipaði nefndina á grundvelli 7. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Tveir fulltrúar eru tilnefndir af samtökum launþega, tveir af Bændasamtökum Íslands og tveir af Samtökum afurðastöðva í mjólkurframleiðslu. Ráðherra tilnefnir einn fulltrúa og er hann formaður nefndarinnar. Varamenn eru tilnefndir með sama hætti. Í nefndinni eiga sæti: Kolbeinn Hólmar Stefánsson, skipaður formaður án tilnefningar, Herdís Magna Gunnarsdóttir og Reynir Þór Jónsson, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands, Elín Margrét Stefánsdóttir og Pálmi Vilhjálmsson, tilnefnd af Samtökum afurðastöðva í mjólkuriðnaði, Helga Ingólfsdóttir, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands og Hrannar Már Gunnarsson, tilnefndur af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Varamenn nefndarinnar eru: Elísabet Anna Jónsdóttir, Rafn Bergsson, Hermann Ingi Gunnarsson, Ásvaldur Þormóðsson, Þórunn Andrésdóttir, Björn Snæbjörnsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir. Einnig hefur ráðherra tilnefnt Hálfdán Óskarsson sem fulltrúa minni vinnslufyrirtækja mjólkur sem áheyrnarfulltrúa í nefndina og hefur hann tillögurétt. Með nefndinni starfar jafnframt Arnar Freyr Einarsson, hagfræðingur í matvælaráðuneytinu. /ghp Lágmarksverð mjólkur hækkar – Ný verðlagsnefnd búvara tekin til starfa Hækkun mjólkurverðs til bænda nemur 4,56% sem samsvarar hækkun gjaldaliða í rekstri kúabús. Mynd / ghp
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.