Bændablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
DAGSKRÁ ULLARVIKUNNAR 2022
Laugardagur 1.október
13:00-16:00 |Á Hellu: Dagur Sauðkindarinnar
Sunnudagur 2.október
14:00-16:00 |Árbæjarhjáleiga: LITASÝNING sauðFár, kaffi og kökur -Fjárræktarfélagið „Litur“.
Mánudagur 3.október
11:00-15:00 |Uppspuni: Tröllabandaprjón -hægt að koma og læra að prjóna sessur úr tröllabandi með tröllaprjónum.
Efni og áhöld Yl sölu á staðnum.
Þriðjudagur 4.október
11:00-15:00 |Uppspuni: Litunardagur -handlitun í po[ Yl sýnis.
Miðvikudagur 5.október
10:00-16:00 |Skinnhúfa: Námskeið „Botanical Dyeing“: Grasaþrykk/prentun -á ensku: Liz
15:00-18:00 |Uppspuni: Víkingastemmning -víkingar sýna handverk og bjóða uppá keYlkaffi.
Fimmtudagur 6.október
10:00-16:00 |Skinnhúfa: Námskeið „Botanical Dyeing“: Grasaþrykk/prentun -á ensku: Liz
14:00 |Fél. Þingborg: Prjónakaffihús, opnun á sýningunni: „Sýnishornið“
14:00-18:00 |Fél. Þingborg: „Ullarútsaumur“ -kennt á íslensku: Guðrún Hildur Rosenkjær (Annríki)
19:30-20:30 |Fél. Þingborg: Fyrirlestur um peysuprjón -Guðrún Hildur Rosenkjær (Annríki)
20:30-22:00 |Fél. Þingborg: Prjóna og spunakvöld
Föstudagur 7.október
09:00-12:00 |Skinnhúfa: Námskeið „Litun í örbylgjuofni“ -á ensku: Laura „Spinner“
10:00-17:00 |Fél. Þingborg: Prjónakaffihús
11:00-15:00 |Uppspuni: Opið hús í verksmiðjunni
12:00-18:00 |Vinnustofur opnar hjá níu Spunasystrum (sjá ★ á korY fyrir staðsetningar) -opið Yl 21.00 á ★ Þykkvabæjarklaustri.
13:00-16:00 |Fél. Þingborg: „Sokkaprjón“ -kennt á íslensku og ensku: Elena
16:00-19:00 |Fél. Þingborg: „Spuni á rokk“ (f. byrjendur og uppri_un) -kennt á ísl. og ensku: Margrét og Þórey
19:30-22:00 |Hespa: Prjóna- og spunakvöld -velkomið að mæta með vín.
Laugardagur 8.október
9:00-12:00 |Skinnhúfa: „Spuni & kembur“ -kennt á íslensku og ensku: Laura & Maja Siska
10:00-13:00 |Fél. Þingborg: „Weave a Bracelet“ (bandvefnaður) -kennt á ensku og þýsku: Marled.
10:00-17:00 |Fél. Þingborg: Prjónakaffihús
12:00-18:00 |Vinnustofur opnar hjá níu Spunasystrum (sjá ★ á korY)
14:00-17:00 |Fél. Þingborg: Námskeið „Lopapeysuprjón“ -kennt á íslensku: Margrét og Anna Dóra
11:00-15:00 |Uppspuni: Rúningur & opið Fárhús - hægt að velja reyfi Yl þess að láta spinna band
16:00-18:00 |Hespa: Opinn fyrirlestur & kynningu á „Indigó -blái liturinn“.
Sunnudagur 9.október
10:00-17:00 |Fél. Þingborg: Markaður, Prjónakaffihús. Matarvagnar.
10:00-13:00 |Fél. Þingborg: Námskeið: „Kríl“ (börn og foreldri) -kennt á íslensku: Marianne
Ullarhringurinn með opið alla vikuna: Ullarversluninni Þingborg (10:00-17:00), Hespuhúsinu (9:00-17:00) og
Uppspuna (virka daga 9:00-16:00 og helgina 11:00-15:00).
Námskeið sem þarf að skrá sig í eru með skáletrun. Skráning hefst í september. Þeir sem skrá sig á póstlista fá
glkynningu þegar skráning hefst: www.ullarvikan.is. Aðrir viðburðir eru fríir og opnir öllum.
Birt með fyrirvara um breygngar 30.08.2022.
Metfjöldi
grænna skrefa
Meðal þess sem kemur fram í
ársskýrslu Umhverfisstofnunar
fyrir 2021 hafa aldrei verið tekin
jafn mörg skref í átt að umhverfis-
vænum rekstri hjá ríkisstofnunum
og á síðasta ári, eða 444. Verkefnið
er ekki lengur valkvætt og hluti af
rekstri ríkisstofnana.
Verkefnið Græn skref er fyrir
ríkisstofnanir sem vilja draga úr
neikvæðum umhverfisáhrifum
af starfsemi sinni og efla
umhverfisvitund starfsmanna.
Með þátttöku í Grænum skrefum
gefst stofnunum tækifæri á að
innleiða öflugt umhverfisstarf
með kerfisbundnum hætti
undir handleiðslu sérfræðinga
Umhverfisstofnunar. Verkefnið
er fjármagnað af umhverfis- og
auðlindaráðuneyti og er þátttaka
stofnunum að kostnaðarlausu.
Hluti af rekstri ríkisstofnana
Í skýrslunni segir að rekja
megi aukninguna til aukinnar
vitundarvakningar í umhverfis- og
loftslagsmálum og almenns áhuga á
að gera betur í þeim efnum. Aldrei
fyrr hafa jafn mörg Græn skref verið
stigin eins og árið 2021, eða 444. Til
samanburðar voru 557 skref stigin á
árunum 2014 til 2020.
Umhverfisstofnun og stjórnvöld
hafa aukið áherslu á verkefnið sem
ekki er lengur valkvætt og er núna
hluti af rekstri allra ríkisstofnana
og skulu allir ríkisaðilar setja
sér loftslagsstefnu með mælan-
legum markmiðum, og tímasettum
aðgerðum.
Verkefnið er hluti af aðgerðar-
áætlun loftslagsstefnu Stjórnarráðsins
sem samþykkt var árið 2019.
Markmið Grænna skrefa
• Draga úr neikvæðum umhverfis-
áhrifum af starfsemi ríkisins
• Efla umhverfisvitund starfs-
manna
• Auka vellíðan starfsmanna og
bæta starfsumhverfi þeirra
• Draga úr rekstrarkostnaði
• Innleiða áherslur í umhverfis-
málum sem þegar hafa verið
samþykktar
• Stofnanir, ráðuneyti og annar
ríkisrekstur fái viðurkenningu
fyrir metnað sinn í umhverfis-
málum
• Stofnanir, ráðuneyti og annar
ríkisrekstur geti innleitt að-
gerðir á mismunandi hátt eftir
umfangi og eðli starfsseminnar
• Aðgerðir stofnana í umhverfis -
málum séu sýnilegar
Árangur
Samkvæmt skýrslunni náist
taksverður árangur í að draga
saman í innkaupum, samgöngum og
orkunotkun. Í að auka meðvitund
um umhverfismál innan vinnustaða.
Auk þess sem segir að örugg
skref hafi verið stigin í átt að
markmiðum um samdrátt í losun
gróðurhúsalofttegunda ríkisaðila.
Í dag skila 111 stofnanir grænu
bókhaldi en tæplega 18.000
starfsmenn eru á vinnustöðum sem
eru virkir þátttakendur í Grænum
skrefum. /VH
Votlendissjóður tilnefndur til umhverfisverðlauna
Votlendissjóður hefur verið
tilnefndur til umhverfisverðlauna
Norðurlandaráðs.
Sex verkefni voru tilnefnd
á dögunum sem leggja allar út
frá náttúrumiðuðum lausnum
sem alhliðasvar við hinum stóru
umhverfisáskorunum samfélagsins.
Votlendissjóður er sjálfseignar-
stofnun sem rekin er á framlögum
frá fyrirtækjum, félagasamtökum
og einstaklingum. Hlutverk hans er
að endurheimta votlendi og stöðva
þar með losun koltvísýringsígilda,
efla líffræðilega fjölbreytni, fuglalíf
og bæta vatnsbúskap í veiðiám.
Samkvæmt Einari Bárðarsyni
framkvæmdastjóra voru 59 hektarar
votlendis endurheimtir árið 2021
fyrir tilstuðlan Votlendissjóðs og
131 hektari það sem af er árinu 2022.
Aðrir tilnefndir til umhverfis-
verðlauna Norðurlandaráðs er
verkefni um víðtæka gróðursetningu
marhálms í Vejle-firði í Danmörku,
sjálfboðaliðasamtökin Virho rf sem
staðið hafa fyrir endurheimt ótal áa
og lækja í Finnlandi, grænlenska
tískumerkið Louise Lynge sem
vekur athygli á loftslagsbreytingum
með hönnun „zero waste“ fatnaði,
votlendið Kristiansstads vattenrike,
sem er elsta UNESCO-lífhvolf
Svíþjóðar og sveitarfélagið
Mariehamn á Álandseyjum sem
skapað hefur votlendisgarð í
nágrenni bæjarins sem nýtist sem
afþreyinga- og fræðslusvæði.
Tilkynnt verður um vinningshafa
þann 1. nóvember í tengslum við
þing Norðurlandaráðs í Helsinki.
Verðlaunahafinn hlýtur að launum
verðlaunagripinn Norðurljós og
300.000 danskar krónur. /ghp
Íslenskt votlendi. Alls voru 59 ha lands endurheimt fyrir tilstilli Votlendissjóðs
á árinu 2021. Mynd/ Votlendissjóður