Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Milliverðlagning í sjávarútvegi:
,,Auðveldara að ásaka en útskýra“
– Lögmaður segir milliverðlagningu byggja á einföldum grunni en framkvæmd getur verið flókin
Öðru hvoru eru skrifaðar greinar
eða fréttir sagðar af því að íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki séu að skilja
hagnað eftir í útlöndum með því að
skila einungis hluta af söluverði
afurða sinna heim.
Í tilfelli sjávarútvegsins er þetta
tvíþætt. Annars vegar sniðgangi
fyrirtækin skattgreiðslu á Íslandi,
lækki tekjuskatt og hugsanlega
veiðigjald, og hins vegar þá séu
sjávarútvegsfyrirtæki að lækka
laun sjómanna en sjómenn eru á
hlutaskiptum sem alkunna er. Þessi
umræða á einkum við fyrirtæki
sem eiga dótturfélög í útlöndum en
þannig hagar til í nokkrum tilfellum.
Mikið vald í höndum
embættismanna
- En hvernig er þessu farið? Geta
fyrirtæki hagað verðlagningu sinni
að vild milli tengdra félaga? Við
fengum Harald Inga Birgisson,
lögmann, Kópavogsbúa að
langfeðratali og meðeiganda í
Deloitte Legal, til útskýra lög og
reglur um milliverðlagningu en
þar hefur hann aðallega starfað við
skattamál fyrirtækja.
,,Milliverðlagning er flókið
fyrirbæri sem byggir þó á einföldum
grunni,“ segir Haraldur Ingi.
,,Frá árinu 2015 hefur íslenskum
fyrirtækjum sem hafa meira en
milljarð í veltu eða heildareignir
og eiga erlend dótturfyrirtæki
verið skylt að útbúa skýrslu um
verðlagningu milli innlendra
móðurfélaga og erlendra
dótturfélaga, eins og í tilfelli
sjávarútvegsins, sem skattyfirvöld
geta óskað eftir hverju sinni. Það
sama á við með innlend félög sem
eru í eigu erlendra móðurfélaga.
Þá er meginreglan sú að
fyrirtæki eiga að stunda viðskipti
við tengda aðila, hvort sem það
eru viðskipti með afurðir, hráefni,
þjónustu eða fjármagn, eins og
um viðskipti milli ótengdra aðila
væri að ræða og útskýra hvernig
þau standa að því í þessum
skýrslum. Íslenskum félögum er
þannig óheimilt að flytja afurðir
sínar út á of lágu verði og skilja
umframhagnað eftir í útlöndum.
Það sama á við erlend móður-
fyrirtæki íslenskra fyrirtækja, þau
mega ekki selja hráefni eða þjónustu
á of háu verði eða leggja of háa
vexti á dótturfyrirtæki sín og flytja
hagnaðinn þannig frá Íslandi.
Þótt þessi grunnregla sé í sjálfu
sér ekki flókin þá er regluverkið
bæði alþjóðlegt og afar matskennt
og skattframkvæmd hérlendis
takmörkuð og í slíku umhverfi verða
til fjölmörg álitamál.“
Í umræðu um sjávarútveg hefur
komið fram að verð á fiski frá Íslandi
er ýmist hærra eða lægra en verð á
sömu fisktegund hjá öðrum þjóðum.
Þannig hefur t.d. komið fram að verð
á saltfiski frá Íslandi til Portúgal er
að jafnaði um 1 evru hærra en á
saltfiski frá Noregi vegna betri gæða
frá Íslandi. Þá er umtalsvert hærra
verð á stórum saltfiski en á smáum.
Verðmunurinn milli landa getur
síðan sveiflast frá einu ári til annars
vegna þess að íslenski fiskurinn er
að jafnaði stærri en sá norski eina
vertíðina og síðan smærri þá næstu.
Það er líka þekkt að verð á norskum
makríl hefur að jafnaði verið hærra
en verð á íslenskum makríl.
Ástæða þess er að Íslendingar eru að
veiða sinn makríl á tíma sem fiskurinn
er í ætisleit og er að fitna. Hann er
þá laus í sér og afar erfitt að flaka
hann í áframvinnslu. Asíumarkaður,
sérstaklega Japan, greiðir hátt verð
fyrir gæði en aðrir markaðir, t.d. í
Egyptalandi og Nígeríu, vilja ódýrari
fisk. Það er því ljóst að þrátt fyrir að
meginreglan sé einföld þá eru flókin
atriði sem skipta máli.
- Hvernig gengur að útskýra það fyrir
skattayfirvöldum?
,,Þetta regluverk felur starfs-
mönnum Skattsins heimild til að meta
armslengdarverð á vöru, þjónustu eða
vöxtum og eftir atvikum leiðrétta það
verð sem fyrirtækin nota. Sem betur
fer er ekkert ríkisverð sem starfsmenn
Skattsins beita, en þá skortir eðlilega
innsýn í rekstrarlegan raunveruleika
fyrirtækjanna,“ segir Haraldur Ingi.
,,Hjá starfsmönnum fyrirtækjanna
er augljóslega þekking á vörunni og
markaðnum og þeir þekkja reksturinn
út og inn. Ef um umfangsmikil
viðskipti er að ræða þá getur endurmat
Skattsins á verði falið í sér verulegar
fjárhæðir, enda Skattinum heimilt að
horfa 6 ár aftur í tímann og leggja á
25% álag og dráttarvexti. Hér er því
afar mikilvægt að skattyfirvöld gæti
meðalhófs.“
- En hvað gerist ef skattayfirvöld eins
lands, t.d. Íslands, ákveða hækkun
verðs á útfluttum afurðum og hækka
þannig skatta hér á landi?
,,Afleiðingin af því er sú að
skattstofninn er þá hækkaður og
þar með skattgreiðslur, en að auki
er álagi og vöxtum bætt ofan á.
Í framhaldinu þarf að óska eftir
leiðréttingu hjá erlenda félaginu,
enda búið að skattleggja hagnaðinn
þar í landi og án leiðréttingar væri
hagnaðurinn tvískattlagður,“ segir
Haraldur Ingi. ,,Það eru dæmi þess að
skattyfirvöld hafi andmælt breytingu á
skattskilum sem ákvörðuð hafa verið
af skattayfirvöldum annars ríkis, enda
gerir regluverkið í raun ráð fyrir að
þau komist að samkomulagi. Íslensk
fyrirtæki sem lenda í slíku ráða litlu
um framhaldið enda umgjörðin hér
ekki jafn þróuð og víða annars staðar,
sem er bagalegt.“
Skattyfirvöld flestra landa fylgjast
með milliverðlagningu
Nýverið gekk fyrsti dómurinn á
sviði milliverðlagningar og telja má
að aukning verði þar á m.v. áherslur
skattyfirvalda og auknar kröfur um
skýrslugerð eins og áður sagði.
- En hvernig er þegar fá dómafordæmi
eru, hvernig á að höndla það?
,,Það hafa fallið fjölmargir dómar
erlendis í þessum efnum sem eru þá
fyrirmyndir fyrir okkur og raunar eru
þetta iðulega stærstu skattamálin í
nágrannaríkjunum,“ sagði Haraldur
Ingi. ,,Það lítur allt út fyrir að íslensk
skattyfirvöld ætli að reyna á þolmörk
reglnanna og seilast lengra í sínum
túlkunum en æskilegt er. Ef æðra sett
stjórnvöld og dómstólar fallast á slíka
nálgun þá mun það skapa verulega
réttaróvissu fyrir fyrirtækin.
Það er að mínu mati ekki rétta
leiðin í svona flóknu regluverki
sem ætlað er að dekka öll viðskipti
tengdra aðila í öllum atvinnugreinum
á öllum tímum.“
- En hvernig finnst Haraldi Inga
umræða um milliverðlagningu vera?
,,Tónninn í umræðunni er oftar en
ekki sá að fyrirtæki séu að haga þessum
málum með óheiðarlegum hætti. Við
sjáum það ekki í okkar störfum enda
eru atvinnurekendur almennt að reyna
að fylgja öllum þeim reglum sem gilda
um þeirra rekstur og nóg er af þeim.
Þá er einfaldara að ásaka en
útskýra þegar um svona flóknar
reglur er að ræða og útskýringarnar
því ekki jafn aðgengilegur og
auðskiljanlegur fréttamatur,“ sagði
Haraldur Ingi að lokum.
Lesendum til upplýsingar
og fróðleiks: Höfundur er
búfræðingur og framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum. Vinnslustöðin er sjávarútvegs-
fyrirtæki sem á og rekur útgerð og
fiskvinnslu á Íslandi og sölu- og
framleiðslufyrirtæki í útlöndum.
Félagið er því undir eftirliti
innlendra og erlendra skattyfirvalda
hvað milliverðlagningu varðar.
Haraldur Ingi hefur aðstoðað
Vinnslustöðina við gerð skýrslna
um milliverðlagningu.
NYTJAR HAFSINS
Sigurgeir B. Kristgeirsson
binni@vsv.is
Undanskot á gjaldeyri og undirverðlagning
Mörgum er í fersku minni húsleit sem gerð var í höfuðstöðvum
Samherja á vegum sérstaks saksóknara á vormánuðum 2012.
Húsleitin var gerð vegna gruns um brot á gjaldeyrislögum og
að félagið væri að selja afurðir sínar til dótturfélaga erlendis
á undirverði. Mikil fjölmiðlaumfjöllun varð um málið en árið
2015 felldi sérstakur saksóknari málið niður. Á sama tíma
var Vinnslustöðin ásökuð í Kastljósþætti í Ríkissjónvarpinu
um að skilja hagnað eftir í útlöndum með rekstri dótturfélags
síns erlendis. Ásökunin fólst í því að félagið skilaði lægra
verði heim og skyti sér þannig undan skattgreiðslum á
Íslandi og skilaði þar af leiðandi lægra verði til sjómanna
og hlunnfæri þá um sinn réttmæta hlut. Vinnslustöðin var
til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara sem leiddi ekki til
ákæru. Árið 2020 kom svo í leitirnar ,,skýrsla“ Verðlagsstofu
skiptaverðs, sem var grundvallargagn fréttamanna
Kastljóss í rannsókn sinni, sem sýndi að karfaverð sem
dótturfélag Vinnslustöðvarinnar í Þýskalandi skilaði heim var
umtalsvert hærra en sambærilegt verð á karfa á þarlendum
uppboðsmörkuðum. Þvert á fullyrðingar Kastljóss, þá skilaði
Vinnslustöðin hæsta verði heim til Íslands á karfa.
Hækkun súráls í hafi
Íslendingar sem komnir eru yfir miðjan aldur, og hafa áhuga á
pólitík, muna eftir umræðum og pólitískum deilum um ,,hækkun
súráls í hafi“. Hér er átt við pólitíska umræðu áranna 1980–
1984 um meinta hækkun á súráli frá Ástralíu til Íslands. Þar
voru uppi ásakanir íslenskra yfirvalda um að móðurfyrirtæki
ÍSAL í Straumsvík seldi dótturfyrirtæki sínu súrál á of háu
verði. Með þessu væri félagið að sniðganga skattgreiðslur af
hagnaði í ríkissjóð Íslands. Umræðan var heit og heiftarleg
og lauk með sátt íslenska ríkisins og móðurfyrirtækis ÍSAL.
Gæði íslensks fiskjar geta verið varasöm!
Þá muna enn eldri fréttasjúklingar einnig eftir ásökunum
bandarískra skattyfirvalda, sem hófust 1971, í garð Coldwater,
dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (SH),
um að það flytti hagnað heim til Íslands með of háu verði á
íslenskum fiski til Bandaríkjanna. Það var þá þannig að SH
átti, að dómi bandarískra skattyfirvalda, að selja fiskinn á
mun hærra verði en sambærilegur fiskur sem fluttur var frá
öðrum Evrópulöndum. Coldwater náði að verja sig með því
að sýna fram á að félagið væri að kaupa fisk frá Færeyjum
á sambærilegu verði en færeysku útflytjendurnir voru alls
ótengdir íslenskum hagsmunum. Þar með var málið látið
niður falla, átta árum eftir að það hófst, eða árið 1979.
Verðmunurinn skýrðist einfaldlega af gæðamun fisksins en
það þekktu bandarískir skattrannsóknarmenn ekki. Þeir sem
til þekktu fullyrða að krafa bandarískra skattyfirvalda hefði
verið svo há að Coldwater hefði orðið gjaldþrota ef félagið
hefði ekki náð að verja sig með samanburði við gæði fiskjar
frá Færeyjum. Góð gæði geta því verið varasöm þeim sem
ekki þekkja þau!
Við lestur þessa kafla er rétt að lesendur hafi í huga að
greinarhöfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
og því aðili máls.
Gamlar sögur af milliverðlagningu
Íslenskum félögum er óheimilt að flytja afurðir sínar út á of lágu verði og skilja umframhagnað eftir í útlöndum.
Það sama á við erlend móðurfyrirtæki íslenskra fyrirtækja, þau mega ekki selja hráefni eða þjónustu á of háu
verði eða leggja of háa vexti á dótturfyrirtæki sín og flytja hagnaðinn þannig frá Íslandi. Mynd / SBK
Haraldur Ingi Birgisson.