Bændablaðið - 08.09.2022, Side 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Samkvæmt reglugerð númer
1100/2019 er bannað að veiða sel
við landið nema með sérstöku leyfi
frá Fiskistofu. Bannið á við veiði
á öllum selategundum.
Í reglugerðinni kemur fram að
selveiðar séu óheimilar á íslensku
forráðasvæði í sjó, ám og vötnum
nema að fengnu sérstöku leyfi frá
Fiskistofu og getur stofnunin veitt
leyfi til takmarkaðra veiða á sel
til eigin nytja innan netlaga þar
sem veiðar hafa verið eða verða
stundaðar sem búsílag.
Fiskistofa auglýsir nú eftir
umsóknum um leyfi til selveiða
til eigin nytja á árinu 2023.
Umsóknarfrestur er til 1. október
2022 og skal umsóknum skilað
á eyðublaði sem senda skal með
tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.
is eða með bréfpósti á heimilisfangið
Fiskistofa, Borgum við Norðurslóð,
600 Akureyri. /VH
Fiskistofa getur veitt leyfi til tak-
markaðra selveiða. Mynd / HKr.
Selveiðar bannaðar
nema með undanþágu
Rannsóknaskipið Árni Frið
riksson kortlagði í ágúst alls um
8.964 ferkílómetra hafsvæði vestan
við Látragrunn, á Dohrnbanka og
á Selvogsbanka.
Leiðangurinn er hluti af
átaksverkefni Hafrannsókna
stofnunar um kortlagningu hafsbotns
í efnahagslögsögu Íslands.
Markmið verkefnisins er að
afla þekkingar sem nýtast mun
á ýmsan hátt og er forsenda
frekari vísindarannsókna við
nýtingu, vernd og rannsóknir
auðlinda í hafinu, á hafsbotni og
undir hafsbotni. Að þessu sinni
var markmið sett að kortleggja
veiðislóðir á Vestfjarðamiðum í
tengslum við veiðiálag síðastliðinna
ára og togstöðva í verkefninu
Stofnmælingu botnfiska.
Í lok leiðangursins hefur 44,3%
efnahagslögsögunnar verið kortlögð,
eða liðlega 333.700 ferkílómetrar
af alls 754.000 ferkílómetra
efnahagslögsögu landsins.
Brjálaði hryggurinn
Í fyrsta hluta leiðangursins var fyllt
upp í þekju vestan við Látragrunn
þar sem jökulgarðurinn sem
nefndur er „Brjálaði hryggurinn“
var mældur árið 2011, í tengslum
við hrygningarstöðvar steinbíts
á Látragrunni og mögulegum
búsvæðum kórala. Í kantinum við
hrygginn sjást plógför ísjaka á allt að
600 metra dýpi. Undan kantinum er
um fjórtán kílómetra langur hryggur
sem liggur í NVSA og rís um 60
metra af hafsbotninum. Hugsanlegar
aurkeilur sjást í kantinum á
austanverðu mælingasvæðinu. Á
dýpsta svæðinu er botnharkan mjög
lág sem gefur til kynna að þar hefur
töluvert magn af mjúku seti sest til
í lægðum.
Á Dohrnbanka
Í öðrum hluta leiðangursins var
stefnan tekin á Dohrnbanka.
Þar voru mörkin dregin við
miðlínu efnahagslögsögunnar og
fjölgeislamælingar frá mælinga
árinu 2002.
Yfirlit fjölgeislamælingar Hafró 2000 til 2022. Mynd Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun:
44,3% efnahagslögsögunnar kortlögð
Miklar sviptingar í ástandi sjávar
gerðu yfirferð fjölgeislamælinga
mjög erfiða. Vegna veðurs tókst ekki
að ljúka mælingum á Dohrnbanka,
en til stóð að tengja þær saman við
eldri mælingar í Grænlandssundi.
Botnlag á Dohrnbanka er mjög
fjölbreytt. Meðal þess sem sést
í fjölgeislagögnunum eru stórir
hryggir og farvegir sem kvíslast
niður á víðáttumikla sléttu sem ber
mikil ummerki um plógför ísjaka.
Sæfjöll og hraun við Surtsey
Í þriðja og síðasta hluta
leiðangursins var hafsvæðið á
Selvogsbanka mælt frá eldri
mælingum Hafrannsóknastofnunar
að 100 metra jafndýpislínu.
Vestan við Surtsey var mælt yfir
mikið af smáum sæfjöllum sem áður
hafa verið mæld með eingeislamæli.
Sæfjöllin fylgja tveimur sprungu
stefnum, annars vegar í NVSA og
hins vegar í NASV.
Við 100 metra jafndýpislínuna er
mikið hraun eða klöpp sem sést
einnig á sjókortum.
Með fjölgeislagögnunum er hægt
að kortleggja útbreiðslu þess með
mun meiri nákvæmni. Botnharka
sýndi að umhverfis hraunið og víða
á mælingasvæðinu norðanverðu er
mikið af mjúku seti.
/VH