Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Jónas Davíð Jónasson, formaður
Félags ungra bænda á Norðurlandi
(FUBN) og gjaldkeri SUB, hefur
bent á að til þess að eðlileg nýliðun
geti átt sér stað þurfi eldri kynslóðir
að geta stigið til hliðar með reisn.
Bændur sem hafa alist upp á
sínum jörðum og eytt öllum sínum
starfsaldri í að byggja upp þurfa að
geta vikið fyrir næstu kynslóð án
þess að koma illa út fjárhagslega.
Það sé þó ekki raunin og því allt of
algengt að fólk velji frekar að selja
frá jörðinni bústofn og kvóta til þess
að nýta sem ellilífeyri.
Í landbúnaðarstefnu ríkis-
stjórnarinnar sem er tekin saman í
bæklingnum Ræktum Ísland kemur
fram að árið 2020 hafi skattalögum
verið breytt til þess að auðvelda
kynslóðaskipti í landbúnaði. Með
þeim breytingum sé hægt að dreifa
skattgreiðslum af söluhagnaði
bújarða á 20 ár í stað sjö.
Eyðijarðir fari ekki í búskap
„Það eru ótrúlega margir sem hafa
áhuga á að fara í landbúnað og mér
finnst það alltaf hafa verið,“ segir
Magnús Leópoldsson, fasteignasali
hjá Fasteignamiðstöðinni. Hins
vegar sé alls ekki mikil hreyfing á
þessum markaði. Rúmlega hundrað
jarðir skipti um eigendur á ári hverju
og eru eyðijarðir og landskikar inni í
þeirri tölu. Þær eyðijarðir sem seljast
séu almennt ekki keyptar til þess að
fara í búskap því það þurfi svo mikið
til að koma honum í gang. Í ljósi
þessa er mikilvægt að jarðir seljist
í heilu lagi ef það á áfram að vera
búrekstur á þeim.
Hlutdeildarlán og
séreignarsparnaður
Innan raða BÍ og SUB hefur verið
rætt um möguleika þess að bjóða
ungum bændum hlutdeildarlán
fyrir bújörðum með svipuðum
formerkjum og við kaup á fyrstu
íbúð, en nú er ekkert slíkt í boði.
Einnig hafa þær hugmyndir vaknað
hvort ungum bændum ætti að standa
til boða að nýta séreignarsparnaðinn
til þess að standa straum af útborgun.
Ljóst er þó að vinnan við þetta
krefst bæði mikillar vinnu og
lagabreytinga.
Byggðastofnun lánar 90% til
ungra bænda
Arnar Már Elíasson, settur
forstjóri Byggðastofnunar, segir
að hefðbundin fjármögnun frá
bönkunum hafi í gegnum tíðina
numið 70-75% af kaupverði bújarða.
Byggðastofnun byrjaði hins vegar
árið 2020 að bjóða upp á 90%
fjármögnun á bújörðum fyrir unga
bændur. Þegar þetta er skrifað hafa
27 lán til kynslóðaskipta verið veitt.
„Þetta var algjör bylting og
breytti markaðnum verulega. Þetta
varð til þess að það varð mikið um
kynslóðaskipti í landbúnaði þar sem
eldri bændur gátu selt og losað sig út,
og nýir og ungir bændur gátu tekið
við,“ segir Arnar Már.
Einungis vextir fyrstu árin
Vaxtakjörin hjá Byggðastofnun hafa
verið sambærileg og hjá bönkunum.
Hins vegar eru þessi lán ólík öðrum
lánum á almennum markaði að því
leyti að heimilt er að greiða eingöngu
vextina fyrstu þrjú árin. „Það er til
þess að lækka greiðslubyrðina á
meðan ungir bændur eru að koma sér
af stað,“ segir Arnar Már. Að þremur
árum liðnum byrja bændurnir að
greiða vexti og afborganir eins og
þeir hefðu gert það frá upphafi, án
þess að það hafi safnast í einhvern
stóran ógreiddan reikning.
Lánshlutfall Landsbankans þegar
verið er að fjármagna bújörð í rekstri
er að hámarki 70%.
„Það sem við skoðum fyrst er:
Hvað getur þessi starfsemi gefið af
sér og staðið undir miklum skuldum
án þess að þær sligi reksturinn? Það
þarf bæði að hugsa um hagsmuni
bankans og lántakandans, enda
fara þeir saman,“ segir Haukur
Ómarsson, forstöðumaður á
fyrirtækjasviði Landsbankans.
Þetta þýðir að eftir standa 30%
sem kaupandi þarf að fjármagna
með öðrum leiðum. Samkvæmt
Hauki er í sumum tilfellum samið
um seljandalán og getur seljandinn
þá verið með annan veðrétt í jörðinni
á eftir bankanum. Í þessu samhengi
nefnir Haukur að nýliðunarstyrkirnir
komi að góðum notum við að
niðurgreiða seljandalánið.
Útfærsla kvóta hamlar
kynslóðaskiptum
Haukur segist sjá ákveðna
samsvörun milli kynslóðaskipta í
sjávarútvegi og í mjólkurframleiðslu.
Í báðum tilfellum þarf að kaupa
framleiðslurétt eða aflaheimildir sem
eru það dýrar að erfitt er að fjármagna
þær. Verðmæti jarða er ekki lengur
ákvarðað af undirliggjandi rekstri
heldur út frá verðmæti kvótans og
öðrum gæðum jarðarinnar sem erfitt
er að standa undir. Þetta verður til
þess að þeir sem kaupa bújarðir, rétt
eins og sjávarútvegsfyrirtæki, eru
oft utanaðkomandi fjársterkir aðilar,
frekar en afkomendur sem taka
við keflinu.
Steinþór Logi hjá SUB segir hins
vegar að kvótinn sé nauðsynlegur
til þess að tryggja fyrirsjáanleika í
framleiðslunni. Eftir að hámarks-
verð mjólkurkvótans var sett í
þrefalt afurðastöðvaverð varð
fjármögnunarkostnaðurinn hamlandi
fyrir greinina sem kemur í veg fyrir
kynslóðaskipti. Það fjármagn sem
hver kynslóð þarf að greiða í vexti
við kaup á mjólkurkvóta sé fjármagn
sem myndi gagnast betur ef hægt
væri að nýta það til uppbyggingar
og nýsköpunar á jörðunum sjálfum.
Nýliðunarstuðningur
hjálpar aðeins
Ungir bændur eiga þess kost að
sækja um nýliðunarstuðning frá
stjórnvöldum. Sá stuðningur getur
verið allt að 20% af þeirri fjárfestingu
sem lagt er út í, þó aldrei meira en
níu milljónir króna. Á hverju ári
er ákveðinn pottur til úthlutunar
og skerðist framlögin til einstakra
nýliða ef margir sækja um. Þó er
hægt að sækja um styrkinn í þrjú
ár þangað til að hámarkinu er náð.
Á árunum 2017-2021 voru veittar
684 milljónir króna í nýliðunarstyrki
á 131 búi. Í ár verða rúmlega 144
milljónir króna til ráðstöfunar
Stjórnvöld hafa sett ákveðin
skilyrði sem umsækjendur þurfa
að fullnægja til þess að eiga rétt
á hámarksgreiðslu. Þar er m.a.
horft til menntunar umsækjenda,
jafnréttissjónarmiða, starfsreynslu
ásamt framkvæmdar-, og
rekstraráætlunar. Einnig þurfa
umsækjendur að vera á aldrinum
18-40 ára og sýna fram á að þeir
séu nýliðar í landbúnaði.
Munar um hverja krónu
Haukur Marteinsson fór nýlega inn
í búskapinn með foreldrum sínum
á Kvíabóli í Köldukinn. Hann fór
þá leið að kaupa sér 51% hlut í
fyrirtækinu sem foreldrarnir voru
búnir að stofna utan um búreksturinn
og gat nýtt sér nýliðunarstyrkinn.
Hann segir að með því að
sækja sér þá þjónustu sem
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) veitir við styrkumsóknir hafi
þetta verið lítið mál.
„Ég held að allt of margir kvarti
yfir því að þetta sé of flókið en svo
hringir enginn í RML. Þó maður
viti kannski hvað eigi að gera þá
er gott að láta RML taka óvissuna
út í staðinn fyrir að naga puttana í
þrjá daga,“ segir hann. Þegar Haukur
var búinn að skila inn umsókninni
í september árið 2019 skilaði
styrkurinn sér síðar um veturinn.
Haukur segir að styrkurinn hafi
skipt miklu máli, þrátt fyrir að
vera hlutfallslega lítill miðað við
heildarfjárfestinguna, sem er á annað
hundrað milljónir króna. Þetta hjálpi
til að mynda mikið til við að standa
straum af ýmsum aukakostnaði
sem fylgi því að taka við búi s.s.
þinglýsingargjöld, lántökugjöld o.fl.
Vitundarvakning
Þuríður Lillý segist hafa orðið vör við
vitundarvakningu hjá stjórnvöldum,
Bændasamtökum íslands og öðrum
hlutaðeigandi aðilum. Þeir skilji
alvarleika vandans. Ef viðhalda
eigi innlendri matvælaframleiðslu
og fæðuöryggi þarf að tryggja að
ungt fólk geti komist í búskap og
jafnframt að eldri kynslóðir geti
stigið til hliðar með fullri reisn.
„Ég held að þessu verði breytt til
hins betra á næstu misserum. Vonandi
verður hægt að koma að einhverjum
breytingum við næstu endurskoðun
á búvörusamningunum.“
Til þess að stuðla að aukinni
nýliðun í landbúnaði segir Þuríður
Lillý það nauðsynlegt að tryggja betri
lánakjör og breyta skattaumhverfinu
til þess að eldri bændur hafi efni á
því að víkja frá sínum jörðum. Það
væri þá hægt að hafa einhvern hvata
fyrir þá sem eru að selja jarðir til þess
að selja jarðirnar á lægri upphæð ef
það verður til þess að jörðin haldist
í búrekstri.
Besti lífsstíllinn að vera bóndi
Steinþór Logi segir að þrátt fyrir allt
felist mikil tækifæri í því að verða
bóndi. Enginn veit hvað framtíðin ber
í skauti sér, kórónuveirufaraldurinn
eða stríðið í Úkraínu hafi verið
ófyrirsjáanlegt.
Ómögulegt sé að vita hvað gerist
eftir ár eða áratug, en eitt sé þó víst:
fólk þarf að borða. Því sé mikilvægt
að íslenskur landbúnaður leggist
ekki af. Ef það á ekki að gerast þarf
ungt fólk að sjá sér fært að velja
starfsvettvanginn og þar ræður
raunverulegur vilji stjórnvalda miklu
hvernig þróunin verður.
„Fyrir utan það þá er lífsstíllinn
að vera bóndi besti lífsstíll sem
nokkur getur valið sér. Það er stór
partur af lífi manns hvað maður
velur sér að starfa við og ef einhver
hefur minnstan grun um að það geti
veitt honum lífsfyllingu að stunda
landbúnað, þá er það sennilega rétt
hjá honum.“
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Steinþór Logi Arnarson, formaður SUB, segir engan vita hvað framtíðin beri
í skauti sér, en eitt sé þó víst: fólk þarf að borða. Mynd / H.Kr
Þuríður Lillý segir sauðfjárbændur þurfa að sækja vinnu utan heimilis.
Bújarðir fjarri atvinnumöguleikum fari því í eyði. Mynd /Aðsend