Bændablaðið - 08.09.2022, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
ORKA OG AUÐLINDIR
Sala íslenskra aflátsbréfa til kaupenda raforku í Evrópu hefur staðið yfir í meira en áratug:
Íslendingar hafa selt syndaaflausnir vegna
losunar á 68 milljónum tonna af CO2
– að auki hafa Íslendingar tekið á sig syndir annarra á pappírunum vegna losunar á nær 153 tonnum af geislavirkum úrgangi
Íslensk orkufyrir-
tæki og ráðamenn
þjóðarinnar stæra
sig af þessu og vísa
gjarnan til þeirra
miklu peninga
sem fást fyrir
hreinleika- eða
upprunavottorðin.
Þeim virðist slétt
sama um þá neikvæðu ímynd
sem um leið er sett á íslenska orku-
framleiðslu í opinberum plöggum
Orkustofnunar. Allt virðist í þeirra
augum réttlætanlegt fyrir peninga
og sagt að þetta skipti engu máli.
Það viti jú allir að Íslendingar
framleiði nær 100% sinnar raforku
með endurnýjanlegum orkugjöfum,
fallvatnsorku og jarðvarma.
Þetta viðhorf er svo m.a. staðfest
í ársskýrslu Landsvirkjunar þar sem
mjög ítarlega er farið í saumana á losun
gróðurhúsalofttegunda frá jarðvarma,
lónum og vegna ýmissa þátta í rekstri
eins og aksturs bifreiða. Ferðir
starfsfólks til og frá vinnu eru þar meira
að segja tíundaðar og sagðar losa 107
tonn af CO2 ígildum árið 2021. Það er
hins vegar ekki orð um að taka ábyrgð
af sölu upprunavottorðanna og taka
erlenda sóðaskapinn sem þar kemur á
móti inn í bókhald fyrirtækisins.
Aflátsbréf upp á losun
á 68 milljónum tonna af CO2
á ellefu árum
Þegar litið er á 11 ára sölusögu á
hreinleikavottorðum eins og hún er
skráð hjá Orkustofnun, þá sést að
heildarlosun koltvísýrings (CO2)
sem orkusalar úti í Evrópu telja
sig hafa hvítþvegið sig af nemur
68.064.786,9 tonn af CO2. Já, rúmum
68 milljónum tonna, eða nærri 6,2
milljónum tonna á ári að meðaltali,
reiknað út frá uppgefinni losun á
hverja kílówattstund. Þá telja orkusalar
úti í Evrópu sem nota íslensku
upprunavottorðin að þeir beri heldur
ekki ábyrgð á losun 152,6 tonna af
geislavirkum úrgangi heldur íslenskir
orkuframleiðendur. Það er losun sem
nemur að meðaltali nærri 13,9 tonnum
af geislavirkum úrgangi á ári.
Nær þreföld sú losun
sem Ísland ber ábyrgð á
samkvæmt samningum
Samkvæmt tölum Umhverfisstofnunar
nam heildarlosun Íslands árið 2020
alls rúmum 13,5 milljónum tonna af
CO2 -ígildum. Árleg meðaltalslosunin
sem við ættum að bera ábyrgð á úti
í Evrópu með sölu á aflátsbréfum
íslenskra orkufyrirtækja, nemur
nærri helmingi heildarlosunar Íslands
árið 2020. Samt er sú tala hvergi
nefnd í tölum Umhverfisstofnunar.
Þrátt fyrir það segir Umhverfisstofnun
að samkvæmt skuldbindingum Íslands
í loftslagsmálum þá hafi Ísland borið
ábyrgð á rúmum 2,7 milljónum
tonna af CO2. Árleg losun sem
evrópskir orkusalar eru hvítþvegnir
af með kaupum sínum á íslenskum
aflátsbréfum nemur því nær þrefaldri
þeirri losun sem Umhverfisstofnun
segir að Íslendingar beri ábyrgð á
samkvæmt fjölþjóðlegum samningum.
Syndaaflausn gefin út fyrir losun
á 152,6 tonnum af geislavirkum
úrgangi á 11 árum
Umhverfisstofnun minnist svo ekki
einu orði á að Íslendingar losi eitt
einasta gramm af geislavirkum
úrgangi. Enda hefur Umhverfisstofnun
trúlega ekki vitneskju um eitt einasta
kjarnorkuver í rekstri á Íslandi.
Samkvæmt tölum Orkustofnunar hafa
Íslendingar samt undanfarin 11 ár losað
um 152,6 tonn af geislavirkum úrgangi
með sölu upprunavottorða. Það gerir að
meðaltali nærri 13,9 tonn á ári. Í skjóli
þessa hafa evrópsk fyrirtæki fullyrt við
sína viðskiptavini að þau beri ekki
ábyrgð á þessum 152,6 tonnum hvað
þá 68 milljónum tonna af koltvísýringi.
Evrópsku fyrirtækjaeigendurnir
geta meira að segja framvísað
fallegum vottorðum um að orkan
þeirra sé tandurhrein og komin alla
leið frá Íslandi. Þeirra sálir séu því
tandurhreinar. Auðvitað er þetta samt
allt haugalygi, en gerir nokkur veður
út af slíkum smámunum þegar veifað
er þykkum seðlabúntum?
Óhreinindi ekki færð til bókar
Landsvirkjun framleiðir um 70% af
raforku Íslendinga og að mestu með
vatnsafli og um 85-87% orkunnar
fer til stóriðju, en um 13-15% til
orkusölufyrirtækja sem heita; ON,
HS Orka, N1 Rafmagn, Fallorka,
Orkusalan, Orka heimilanna, Orkubú
Vestfjarða og Straumlind.
Stefna Landsvirkjunar í lofts-
lagsmálum og bindingu kolefnis
virðist metnaðarfull í skýrslunni.
Þar er samt ekki minnst einu
orði á hvað Landsvirkjun ætti að
taka á sig á pappírunum í losun
gróðurhúsalofttegunda vegna sölu á
hreinleikavottorða íslensku orkunnar
úr landi. Allt er það fyrir utan sviga eins
og svo margt annað í margumtöluðum
alþjóðlegum loftslagsmarkmiðum.
Sala aflátsbréfa skilaði um milljarði
króna á síðasta ári
Í skýrslu Landsvirkjunar vegna
ársins 2021 segir orðrétt um sölu
upprunaábyrgða:
„Loftslagsbreytingar eru eitt
af stærstu verkefnum samtímans
og neytendur eru sífellt að verða
meðvitaðri um mikilvægi þess að
bregðast við. Lykilþáttur í að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda eru
orkuskipti yfir í endurnýjanlega
orku. Upprunaábyrgðakerfið byggir
á alþjóðlegu samstarfi Evrópulanda
og leikur mikilvægt hlutverk í
að auka fjárhagslega hvata til
framleiðslu endurnýjanlegrar orku.
Eftirspurn eftir grænni orku og þar
með upprunaábyrgðum hefur aukist
mikið undanfarið með tilheyrandi
verðhækkunum á upprunaábyrgðum.
Tekjur Landsvirkjunar af sölu
upprunaábyrgða á árinu 2021 námu
rúmlega einum milljarði króna og
útlit er fyrir þó nokkurn tekjuvöxt
á næstu árum.“
Orkuframleiðsla á Íslandi
sögð verulega óhrein í gögnum
Orkustofnunar
Frá árinu 2011 þegar sala hófst
á aflátsbréfum íslenskra orku-
fyrirtækja og til ársloka 2021, þá
hefur Orkustofnun vegna þeirra
viðskipta einungis geta sagt að hrein
raforkuframleiðsla á Íslandi með
endurnýjanlegum orkugjöfum hafi
numið að meðaltali 39% á ári.
Á þessu ellefu ára tímabili var
samkvæmt pappírum Orkustofnunar
verið að framleiða um 38% raf-
orkunnar á Íslandi með kolum, olíu
og gasi. Á sama tímabili framleiddu
Íslendingar samkvæmt tölum Orku-
stofnunar 23% raforkunnar að
meðaltali á ári með kjarnorku. Samt
er ekkert kjarnorkuver á Íslandi svo
vitað sé.
Sala nýju syndaaflausnanna í
loftslagsmálum hófst 2011
Sala íslenskra aflátsbréfa fór rólega
af stað fyrstu tvö árin. Árið 2011
sagði Orkustofnun að 99% íslensku
raforkunnar væri framleidd með
endurnýjanlegum orkugjöfum. Samt
segir sama stofnun á heimasíðu
sinni að einungis 89% íslensku
raforkunnar væri framleidd það ár
með endurnýjanlegum orkugjöfum,
annað með jarðefnaeldsneyti og
kjarnorku. Þá segir Orkustofnun
að hrein raforkuframleiðsla með
endurnýjanlegum orkugjöfum hafi
verið komin niður í 63% á árinu 2012,
en áfram er samt flaggað nær 100%
hreinleika orkunnar.
Hreina íslenska orkan fór
niður í 9% árið 2019
Nokkuð flökt hefur verið á sölunni
eftir stöðu í rekstri fyrirtækja úti
í Evrópu. Árið 2016 var gott ár í
slíkum viðskiptum og þá var hrein
orkuframleiðsla á Íslandi komin
niður í 13% samkvæmt OS. Hún fór
svo niður í 11% árið 2018 og 9% árið
2019 vegna mikillar sölu aflátsbréfa.
Hækkandi orkuverð og samdráttur
í fyrirtækjarekstri í Evrópu breytti
þessari tölu í 13% árið 2020. Enn
meiri hækkun orkuverðs og samdráttur
í fyrirtækjarekstri vegna Covid-19
dró svo talsvert úr sölu íslenskra
aflátsbréfa árið 2021. Þá var hrein
raforkuframleiðsla á Íslandi sögð
nema 63% af heildaraforkuframleiðslu
landsins, eða sama hlutfall og 2012.
Vísvitandi logið að
trúgjörnum almúganum?
Ef verið er að selja hluta af hreinleika
íslensku orkunnar úr landi, þá hlýtur
það að þýða að verið sé að selja þessa
sömu orku úr landi og í staðinn verði
menn að taka óhreinindin að sér og
færa til bókar. Ef það er ekki gert, þýðir
það á mannamáli að verið sé ljúga
vísvitandi að einhverjum.
Siðlaust háttalag af þessum toga er
svo sem ekkert nýtt. Kirkjan stundaði
sams konar iðju á öldum áður. Það
kölluðust aflátsbréf og gat fólk keypt
slík bréf til að hvítþvo sig af drýgðum
syndum. Aflátsbréf voru vottorð sem
sölumenn páfa seldu um alla Evrópu
til að fjármagna framkvæmdir við
Péturskirkjuna í Róm. Aflátsbréf áttu
að tryggja þeim sem keyptu bréfin,
afslátt frá hreinsunareldi eftir dauða.
Fyrsta prentaða skjalið úr prentsmiðju
Gutenbergs var aflátsbréf. Sala slíkra
aflátsbréfa stóð um aldir, en hún
hófst í Þýskalandi árið 1516 og það
var munkurinn Jóhannes Tetzel sem
sá um sölu þeirra. Marteinn Lúther
mótmælti þessu kröftuglega og er
það talið marka upphaf svonefndrar
siðbótar í trúmálum.
Prestar og prelátar vissu svo sem
vel að þeir höfðu ekkert umboð til
að veita slíkar syndaaflausnir og
drýgðar syndir hurfu ekkert þó fólk
veifaði kirkjulegum syndaaflausnum á
dánarbeðinum. Prestarnir þurftu heldur
ekki að bera neina ábyrgð á sinni lygi.
Kirkjan græddi hins vegar vel og þá var
tilganginum náð.
Nákvæmlega sama gildir um
sölu syndaaflausna, – fyrirgefið
– upprunavottorða, íslensku orku-
fyrirtækjanna. Þau bréf eru einfaldlega
hluti af þeirri alþjóðlegu peningafléttu
sem sett var í gang í skjóli stýrðrar
umræðu um „hamfarahlýnun“ af
mannavöldum.
Syndir Evrópubúa seldar til Íslands
Sala aflátsbréfa íslenskra orku-
fyrirtækja hefur skilað milljörðum
Í rúman áratug, eða frá árinu 2011, hafa íslensk orkufyrirtæki selt
hreinleika- eða upprunavottorð á raforku til fyrirtækja Evrópu. Í skjóli
þessara vottorða hafa erlend fyrirtæki skreytt sig og segjast nota hreina
orku sem samt er framleitt að meirihluta með kolum, olíu, gasi og
kjarnorku. Á mannamáli þýðir þessi sala upprunavottorða að Íslendingar
eru beinlínis að hjálpa erlendum fyrirtækjum að blekkja neytendur.
Uppruni raforku á Íslandi samkvæmt tölum Orkustofnunar. Þetta skífurit sýnir meðaltal uppruna íslensku raforkunnar
eftir frumorkugjöfum á árunum 2011 2021, þegar búið er að reikna inn í áhrif af sölu upprunavottorða.
Á sama tíma og á sama stað og Orkustofnun setur fram upplýsingar um
uppruna orku í samræmi við sölu upprunavottorða, birtir hún þessa mynd
á heimasíðu sinni. Þar segir að raforka sem framleidd er á Íslandi sé 100%
hrein. Jafnvel þó engin upprunavottorð væru seld, þá væri þetta ekki
rétt. Nægir þar að nefna olíunotkun varaaflsstöðva og útlistanir í síðustu
ársskýrslu Landsvirkjunar.
Uppruni raforku á Íslandi 2021 samkvæmt gögnum Orkustofnunar. Hafa ber
í huga að á þessu ári er hlutfall hreinu endurnýjanlegu orkunnar óvenju hátt,
en það stafar líklega af samdrætti í sölu íslenskra upprunavottorða vegna
erfiðleika í fyrirtækjarekstri í Evrópu í kjölfar Covid-19. Með gríðarlegiaaukinni
kolabrennslu til raforkuframleiðslu í Evrópu á yfirstandandi ári má ætla
að eftirspurn eftir bréfunum aukist í viðleitni manna til að hvítþvo sig af
aukinni losun á CO2.
Hörður
Kristjánsson.