Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
ORKA OG AUÐLINDIR
króna á undanförnum áratug. Í
staðinn hefur Orkustofnun þurft
að tilgreina „svo lítið beri á“ í sínu
bókhaldi að Íslendingar séu alls ekki
eins hreinir orkuframleiðendur og
haldið er fram í opinberri umræðu
og í gögnum orkufyrirtækjanna. Í
stað sölu á upprunavottorðum þarf
Ísland nefnilega að tilgreina hvað
það tekur á sig í staðinn af losun
gróðurhúsalofttegunda og geislavirks
úrgangs. Ekkert er samt gert með
þessar tölur á Íslandi og eru þær
hvergi notaðar í umræðum um losun
á gróðurhúsalofttegundum.
Töfralausnin sem varð að martröð
Mikil vandræði hafa verið í orku
framleiðslu í Evrópu undanfarin ár.
Sameiginlegur innri orkumarkaður
var töfralausn sem Evrópusambandið
hefur reynt að selja öllum þjóðum
Evrópu, þar á meðal Íslendingum. Utan
um þetta var búið til mikið regluverk
sem komið var á með tilskipunum ESB
í formi sérstakra orkupakka.
Á árinu 2009 samþykkti ESB þriðja
orkupakkann sem fól í sér tilskipanir um
orku frá endurnýjanlegum orkulindum.
Þar sem flest Evrópulönd voru orðin
uppiskroppa með vatnsorku var lögð
mikil áhersla á að Noregur og Ísland
samþykktu orkupakkann undir beinum
og óbeinum hótunum um mögulega
riftun EES viðskiptasamstarfsins ef
þetta færi ekki í gegn.
Meirihluti íslenskra alþingismanna,
eða 46 þingmenn, bitu á agnið og
samþykktu innleiðingu á þriðja
orkupakkanum þann 2. september
2019. Fullyrt var að þetta væri gert
með einskærri umhyggju fyrir
neytendum. Eftirlitsstofnunin ACER
fylgist svo með að tilskipuninni sé
framfylgt og hér er það hlutverk á
hendi Orkustofnunar.
Afhjúpun Dana á skortstöðukerfinu
Nú hefur komið í ljós að
neytendaumhyggjan var engin og
innri orkumarkaðurinn og orkupakki 3
með öllum sínum millilandatengingum
hefur valdið evrópskum neytendum
stórkostlegu fjárhagstjóni.
Þá kom berlega í ljós megin tilgangur
sameiginlega orku markaðarins þegar
vindmyllu rekendur í Danmörku
upplýstu að Þjóðverjar greiddu þeim
fyrir að slökkva á raforkuframleiðslu
frá sínum vindmyllum. Um það má
m.a. lesa í Bændablaðinu sem kom út 2.
maí 2022. Var það allt gert samkvæmt
því sem framkvæmdastjórn Evrópu
sambandsins kallar „Electricity market
design“, eða hönnun raforkumarkaðar.
Reynt að endurskrifa söguna
Í dag er svo verið að reyna að skrifa
söguna upp á nýtt með því að skella
allri skuldinni af háu orkuverði í
Evrópu á stríðsrekstur í Úkraínu.
Samt hafði orkuverðið í Evrópu verið
á hraðri uppleið síðan 2019. Þá höfðu
Þjóðverjar að kröfu Græningja slökkt
á þrem kjarnorkuverum í ársbyrjun
2022, eða tveim mánuðum áður en
átökin hófust. Þeir létu einnig undan
kröfum Bandaríkjamanna, en að
vísu með semingi, um að draga úr
gas og olíukaupum frá Rússlandi
sem hefur verið vaxandi burðarstoð
í orkuframleiðslu í Evrópu á undan
förnum árum. Til að mæta þessu hafa
Þjóðverjar þurft að grípa til örþrifaráða
sem gera loftslagssamþykktir í raun
að engu. Þannig voru sett ný lög
í Þýskalandi í júní sem heimila
stóraukinn námugröft og brennslu á
brúnkolum til raforkuframleiðslu.
56% af raforku 27 ESB ríkja er
framleidd með jarðefnaeldsneyti
og kjarnorku
Á árunum 2019 til 2021 var 56%
raforku í 27 Evrópusambandslöndum
framleidd með gasi, kolum, kjarnorku
og olíu, en 44% með endurnýjanlegum
orkugjöfum samkvæmt tölum hinnar
sjálfstæðu upplýsingaveitu EMBER.
Þetta hlutfall hefur sáralítið breyst
frá 2011. Þrátt fyrir yfirlýsingar um
stóraukningu á framleiðslu hreinnar
orku, þá er nú verið að auka verulega
kolanotkun að nýju í þessum ríkjum.
Samdráttur í kaupum á gasi og olíu frá
Rússlandi spilar þar stóra rullu sem
kemur til viðbótar þeim orkuskorti sem
þegar var orðinn ljós.
Það er því viðbúið að verulega aukin
eftirspurn verði eftir aflátsbréfum frá
Íslandi til að reyna að hvítþvo eitthvað
af stórauknum kolefnisútblæstri frá
ESB löndunum. Svo er hrópað eftir því
að Íslendingar lýsi yfir neyðarástandi í
loftslagsmálum!
Siðferðilegt álitamál sem þjóðin
hefur aldrei verið spurð um
Það er svo spurning hvort Íslendingum
finnist siðferðilega réttlætanlegt
að taka þátt í að haldið sé áfram að
ljúga að viðskiptavinum erlendu
orkufyrirtækjanna. Reyndar hefur
íslenska þjóðin aldrei verið spurð um
samþykki fyrir sölu aflátsbréfa úr landi
fyrir orku sem hefur samt aldrei verið
seld út fyrir landsteinana.
Samt er það þjóðin sem á
orkulindirnar og orkuframleiðslu
fyrirtækin sem verið er að nota með
þessum hætti.
Hörður Kristjánsson
hk.reinalds@gmail.com
Afsalsbréf páfa frá um 1430 voru sögð tryggja þeim sem keyptu bréfin
afslátt frá hreinsunareldi eftir dauða. Sala slíkra bréfa hófst í Þýskalandi
og þótti það siðlaus að hún olli klofningi kirkjunnar. Aflátsbréfin sem seld
eru af raforkuframleiðendum á Íslandi hafa verið notuð til að sanna fyrir
viðskiptavinum fyrirtækja í Evrópu að þau noti hreina raforku sem framleidd
er með endurnýjanlegum orkugjöfum, þó þau geri það alls ekki. Allavega
kemur sú orka ekki frá Íslandi.
Samkvæmt upplýsingum frá Agora Energiewende frá því í ágúst síðastliðnum, þá
er nú búist við að losun CO2 aukist um 20 til 30 milljónir tonna á yfirstandandi ári
vegna aukinnar kolanotkunar í raforkuframleiðslu. Þetta er einkum frá brennslu
brúnkola sem menga mun meira en steinkol. Brúnkol eru í raun mór sem hefur
þjappast saman og steingerst undir þrýstingi. Losunarheimildir orkuframleiðslu
í Þýskalandi nema í heild 257 milljónum tonna af CO2 ígildum á þessu ári. Á árinu
2021 var losunin frá orkuverum 221 milljón tonn. Áætlanir Þjóðverja gera ráð
fyrir rekstri kolaorkuvera allt til ársins 2038. Mynd / Wikipedia