Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
VÉLABÁSINN
Að þessu sinni var einn af nýjustu
bílunum frá Toyota tekinn í
prufuakstur. Aygo hefur verið
kunnugleg sjón á íslenskum vegum
undanfarin 15 ár, en það var
minnsti bíllinn sem Toyota bauð
upp á þangað til að framleiðslunni
á þeim bíl var hætt árið 2021.
Nú er Aygo kominn aftur og
hefur fengið nafnbótina „X“. Hann
er orðinn stærri á alla kanta, kominn
í gervi borgarjepplings. Það eru ekki
margir bílar á markaðnum sem eru
í beinni samkeppni við þennan bíl,
nema þá helst Suzuki Ignis.
Það fyrsta sem maður tekur
eftir þegar gengið er upp að Aygo
X er afgerandi hönnun bílsins. Frá
flestum hliðum er bíllinn nokkuð
sportlegur að sjá, með stærri dekk,
svart plast á brettunum og með aukna
veghæð til að gera hann jeppalegan.
Hægt er að fá bílinn tvílitan
þar sem þakið og aftasti hlutinn er
svartur, á meðan restin er í öðrum
lit. Framendinn á bílnum eru frekar
íhaldssamur í útliti á meðan allt
annað er ögrandi og nútímalegt.
Innrétting vel útfærð
Innréttingin er prýðilega vel útfærð
af smábíl að vera. Það er allt til staðar
sem ætlast er til af nýjum bílum, eins
og glasahaldarar, stórt hanskahólf og
stór margmiðlunarskjár. Sætin eru
mjúk en veita ekki mikinn stuðning
og sessan sjálf er frekar stutt þannig
að hnén standa langt fram fyrir
brúnina. Það er ekki hægt að stilla
mjóbaksstuðninginn í sætisbakinu,
en hins vegar hægt að stilla hæðina
á ökumannssætinu.
Rýmið í aftursætunum er mjög
lítið og það er ekki hægt að mæla
með því að flytja fullorðna farþega
lengri vegalengdir í þeim sætum.
Annar ókostur við afturrýmið er
hversu dimmt og drungalegt er þar
út af smáum afturrúðum og dökkri
innréttingu.
Bluetooth vont fyrir símtöl
Margmiðlunarskjárinn í bílnum er
einfaldur og þægilegur í notkun.
Það er auðvelt að finna allt þetta
nauðsynlega og gengur vel að
tengja símann með bluetooth. Það
er hins vegar alls ekki gott að hringja
símtöl með innbyggða handfrjálsa
búnaðinum þar sem það heyrist mikið
bergmál og bakgrunnshljóð þannig
að nauðsynlegt er að hækka róminn.
Sjálfskipting snögg í borginni
Aksturseiginleikar bílsins eru skárri
en blaðamaður hafði gert væntingar
til. Bíllinn í þessum prufuakstri
var með stiglausa sjálfskiptingu
sambærilega þeirri sem flestir
fólksbílar frá Toyota eru með í dag.
Sjálfskiptingin í fyrri gerðum
af Aygo er viðbragðsslöpp á
meðan þessi hikar ekkert þegar tekið
er af stað.
Góður á þjóðvegum líka
Þegar komið er út fyrir borgarmörkin
þá, merkilegt nokk, stendur bíllinn
sig vel. Vélin vinnur ágætlega
og blaðamaður varð ekki var við
að bílinn skorti afl í venjulegum
þjóðvegaakstri.
Það heyrist nokkurt veg- og
vindhljóð þegar keyrt er á 90
kílómetra hraða og þarf að hækka
róminn til þess að eiga samtal við
ferðafélaga sína. Þetta er þó alls ekki
það versta sem blaðamaður hefur
kynnst og verður þetta að teljast
nokkuð gott miðað við að þetta sé
ódýr smábíll.
Ein bensínvél í boði
Vélarúrvalið er mjög einfalt: 1.0 l
bensínvél sem er að miklu leyti sú
sama og var í Toyota Aygo fyrir
meira en 15 árum. Er það í stíl við
restina af bílnum, þar sem það er
ekkert verið að flækja hlutina til þess
að halda verðinu niðri.
Hins vegar er það ekki í takt
við kröfur nútímans þar sem hægt
er að velja flesta bíla sem tvinn-,
tengitvinn- eða rafmagnsbíla.
Enginn jeppi
Aygo X er markaðssettur þannig að
hann höfði til þeirra sem hafa áhuga
á jepplingum. Það skal þó tekið fram
að þetta er alls ekki jeppi. Hann
fæst bara með framhjóladrifi og á
malarvegum finnst að það er stutt í
að bíllinn fari að skrika.
Hins vegar kemur sér vel að hafa
auka veghæð, en það er þægilegt að
komast í og úr bílnum og hann fjaðrar
mjög vel yfir hraðahindranir. Það er
líka hægt að fara grófari malarvegi
án þess að vera stöðugt með áhyggjur
af því að reka hann upp undir, þó svo
að hann komist ekki í neinar torfærur.
Samantekt
Toyota Aygo X er ódýr og einfaldur
smábíll með örlítinn vott af
jeppagenum. Með nýjustu breytingu
á þessum bíl hefur hann tapað þeim
kosti að vera agnarsmár borgarbíll,
en hins vegar hefur hann orðið
nytsamlegri bíll til almennra nota
fyrir utan og innan borgarmörkin.
Þetta er bíll fyrir þá sem vilja
látlausan bíl sem er með nútímalega
hönnun. Ef fólk er að leita sér að
tvinn- eða rafmagnsbíl þá þarf
það hins vegar að leita annað.
Verðið á beinskiptum Aygo X í
LIVE útfærslu er frá 3.090.000,
en bíllinn í þessum prufuakstri var
sjálfskiptur Aygo X Pulse og kostar
hann 3.790.000.
Pulse-útgáfan bætir m.a. við
regnskynjara, stærri marg miðlunar-
skjá og er hann tvílitur.
Innréttingin er nytsamleg með geymsluplássi og stórum margmiðlunarskjá.Í Pulse útgáfunni er bíllinn tvílitur, með svörtu þaki og afturenda á móti aðallitnum.
Aygo X, minnsti bíllinn sem Toyota býður upp á. Þetta er einfaldur og látlaus smábíll sem lítur út eins og jepplingur þrátt fyrir að vera ekki útbúinn fyrir torfærur.
Myndir / ÁL
Afturrýmið er þröngt og hleypir inn lítilli birtu. Varadekk undir skottinu.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is