Bændablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 54

Bændablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022 VÉLABÁSINN Að þessu sinni var einn af nýjustu bílunum frá Toyota tekinn í prufuakstur. Aygo hefur verið kunnugleg sjón á íslenskum vegum undanfarin 15 ár, en það var minnsti bíllinn sem Toyota bauð upp á þangað til að framleiðslunni á þeim bíl var hætt árið 2021. Nú er Aygo kominn aftur og hefur fengið nafnbótina „X“. Hann er orðinn stærri á alla kanta, kominn í gervi borgarjepplings. Það eru ekki margir bílar á markaðnum sem eru í beinni samkeppni við þennan bíl, nema þá helst Suzuki Ignis. Það fyrsta sem maður tekur eftir þegar gengið er upp að Aygo X er afgerandi hönnun bílsins. Frá flestum hliðum er bíllinn nokkuð sportlegur að sjá, með stærri dekk, svart plast á brettunum og með aukna veghæð til að gera hann jeppalegan. Hægt er að fá bílinn tvílitan þar sem þakið og aftasti hlutinn er svartur, á meðan restin er í öðrum lit. Framendinn á bílnum eru frekar íhaldssamur í útliti á meðan allt annað er ögrandi og nútímalegt. Innrétting vel útfærð Innréttingin er prýðilega vel útfærð af smábíl að vera. Það er allt til staðar sem ætlast er til af nýjum bílum, eins og glasahaldarar, stórt hanskahólf og stór margmiðlunarskjár. Sætin eru mjúk en veita ekki mikinn stuðning og sessan sjálf er frekar stutt þannig að hnén standa langt fram fyrir brúnina. Það er ekki hægt að stilla mjóbaksstuðninginn í sætisbakinu, en hins vegar hægt að stilla hæðina á ökumannssætinu. Rýmið í aftursætunum er mjög lítið og það er ekki hægt að mæla með því að flytja fullorðna farþega lengri vegalengdir í þeim sætum. Annar ókostur við afturrýmið er hversu dimmt og drungalegt er þar út af smáum afturrúðum og dökkri innréttingu. Bluetooth vont fyrir símtöl Margmiðlunarskjárinn í bílnum er einfaldur og þægilegur í notkun. Það er auðvelt að finna allt þetta nauðsynlega og gengur vel að tengja símann með bluetooth. Það er hins vegar alls ekki gott að hringja símtöl með innbyggða handfrjálsa búnaðinum þar sem það heyrist mikið bergmál og bakgrunnshljóð þannig að nauðsynlegt er að hækka róminn. Sjálfskipting snögg í borginni Aksturseiginleikar bílsins eru skárri en blaðamaður hafði gert væntingar til. Bíllinn í þessum prufuakstri var með stiglausa sjálfskiptingu sambærilega þeirri sem flestir fólksbílar frá Toyota eru með í dag. Sjálfskiptingin í fyrri gerðum af Aygo er viðbragðsslöpp á meðan þessi hikar ekkert þegar tekið er af stað. Góður á þjóðvegum líka Þegar komið er út fyrir borgarmörkin þá, merkilegt nokk, stendur bíllinn sig vel. Vélin vinnur ágætlega og blaðamaður varð ekki var við að bílinn skorti afl í venjulegum þjóðvegaakstri. Það heyrist nokkurt veg- og vindhljóð þegar keyrt er á 90 kílómetra hraða og þarf að hækka róminn til þess að eiga samtal við ferðafélaga sína. Þetta er þó alls ekki það versta sem blaðamaður hefur kynnst og verður þetta að teljast nokkuð gott miðað við að þetta sé ódýr smábíll. Ein bensínvél í boði Vélarúrvalið er mjög einfalt: 1.0 l bensínvél sem er að miklu leyti sú sama og var í Toyota Aygo fyrir meira en 15 árum. Er það í stíl við restina af bílnum, þar sem það er ekkert verið að flækja hlutina til þess að halda verðinu niðri. Hins vegar er það ekki í takt við kröfur nútímans þar sem hægt er að velja flesta bíla sem tvinn-, tengitvinn- eða rafmagnsbíla. Enginn jeppi Aygo X er markaðssettur þannig að hann höfði til þeirra sem hafa áhuga á jepplingum. Það skal þó tekið fram að þetta er alls ekki jeppi. Hann fæst bara með framhjóladrifi og á malarvegum finnst að það er stutt í að bíllinn fari að skrika. Hins vegar kemur sér vel að hafa auka veghæð, en það er þægilegt að komast í og úr bílnum og hann fjaðrar mjög vel yfir hraðahindranir. Það er líka hægt að fara grófari malarvegi án þess að vera stöðugt með áhyggjur af því að reka hann upp undir, þó svo að hann komist ekki í neinar torfærur. Samantekt Toyota Aygo X er ódýr og einfaldur smábíll með örlítinn vott af jeppagenum. Með nýjustu breytingu á þessum bíl hefur hann tapað þeim kosti að vera agnarsmár borgarbíll, en hins vegar hefur hann orðið nytsamlegri bíll til almennra nota fyrir utan og innan borgarmörkin. Þetta er bíll fyrir þá sem vilja látlausan bíl sem er með nútímalega hönnun. Ef fólk er að leita sér að tvinn- eða rafmagnsbíl þá þarf það hins vegar að leita annað. Verðið á beinskiptum Aygo X í LIVE útfærslu er frá 3.090.000, en bíllinn í þessum prufuakstri var sjálfskiptur Aygo X Pulse og kostar hann 3.790.000. Pulse-útgáfan bætir m.a. við regnskynjara, stærri marg miðlunar- skjá og er hann tvílitur. Innréttingin er nytsamleg með geymsluplássi og stórum margmiðlunarskjá.Í Pulse útgáfunni er bíllinn tvílitur, með svörtu þaki og afturenda á móti aðallitnum. Aygo X, minnsti bíllinn sem Toyota býður upp á. Þetta er einfaldur og látlaus smábíll sem lítur út eins og jepplingur þrátt fyrir að vera ekki útbúinn fyrir torfærur. Myndir / ÁL Afturrýmið er þröngt og hleypir inn lítilli birtu. Varadekk undir skottinu. Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.