Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2016, Side 105

Andvari - 01.01.2016, Side 105
ANDVARI EINSTAKLINGUR, NÁTTÚRA OG SAMFÉLAG í AÐVENTU 103 einskis annars væntir hann né kærir sig um að verða, ekki einu sinni í himnaríki — ekki núorðið. Þeir tímar eru um garð gengnir. Þeir dagar og nætur er hann átti sér drauma um hamingju og hóglífi þessa heims og annars. Um garð gengnir og guði sé lof (43-44). Af þessum orðum er ljóst að draumar hins unga Benedikts hafa ekki ræst. Það hefur valdið honum hugarangri meðan þeir lifðu með honum, og væntanlega mestu þegar ljóst varð að þeir mundu aldrei rætast. En á þeim krossgötum í lífinu, þegar margur hefði talið að ekkert væri framundan, hefur hann hafið eyðimerkurgöngur sínar í þágu lífsins — og í þágu þess samfélags sem hann er hluti af. Hér skiptir máli að þessi eyðimerkurganga er val Benedikts sjálfs. Hann er ekki sendur af neinum húsbónda. Samfélagið hefur ekki beðið hann um að leggja þetta á sig og fínnst raunar fremur óþægilegt að þiggja framlag hans. Það kemur þegar fram í lýsingu á göngu Benedikts gegnum sveitina í átt að Botni á fyrsta degi ferðarinnar. Góðum viðtökum á bæjum en duld- um viðvörunum fólks og hrakspám um veðrið fylgja þessi ummæli: „Menn sögðu þetta í gamni og lyftu vart sjónum frá jörðu ....“ Það er eins og menn eigi erfitt með að horfa framan í Benedikt, skammist sín gagnvart honum. Nákvæmust lýsing á þessu er í samskiptum Benedikts við bóndann sem hann hittir síðast á undan fólkinu í Botni, þann sem kallaður er „hinn for- sjáli bóndi“ með biblíulegu orðalagi. Viðskilnaði þeirra er þannig lýst: ... þarna arkaði þrenningin leiðar sinnar, eftir varð efablandinn maður harðóánægður með þá og sjálfan sig og alla hluti á himni og jörðu, tuggði tölu sína og sá þá fjarlægjast, fólk af þessu tagi var honum ráðgáta — að leggja jafnvel líftóruna í sölurnar til þess eins að bjarga fáeinum flökkurollum, sinni úr hverri áttinni! Sjálfur á Benedikt aðeins fáar kindur og vantar enga (39). Aðrir eru ekki jafn kvalráðir og þykir gott að hafa gagn af þessari þráhyggju Benedikts. Þar er vitaskuld fremstur í flokki Hákon í Grímsdal sem slæst í för með Benedikt, þiggur hjálp hans og tefur hann um leið í ætlunarverki sínu, stofnar með því lífi hans í hættu. Allir sjá í gegnum þetta, fólkið í Botni sem hefur skömm á háttalagi Hákonar og Benedikt sjálfur sem engum neitar þó um hjálp. Hákon veit vel hverjum augum háttalag hans er litið í Botni en kærir sig kollóttan, „afturgöngur okkar kynnu að verða ykkur ennþá óvel- komnari“ er það síðasta sem hann segir við hjónin í Botni eftir næturgisting- una. Hákon birtist þó miklu fremur sem kærulaus og ófyrirleitinn maður en vondur eða siðspilltur. Kveðskaparsmekkur hans er skemmtileg andstæða við stökurnar sem Benedikt er sjálfur að setja saman um lífsviðhorf sín (sbr. bls. 68 og 69). Allt annars konar persónuleiki er Nonni á Fjalli sem einnig níðist á góðsemi Benedikts en fremur af barnaskap en tillitsleysi. Tillitsleysið er þó að finna hjá húsbóndanum sem sendi strákinn af stað í ófæruna, væntan-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.