Leikhúsmál - 01.11.1963, Síða 5
Ég hef komið hér óðor (1943)
KLEMENZ JÓNSSON. IncJriði Waaa e
Á s. I. vori lézt Indriði Waage leikari, rúmlega 60 óra að
aldri.
Við frófall hans er genginn einn fjölhœfasti listamaður
þessa lands.
í fjóra tugi ára hefur Indriði staðið í fylkingarbrjósti í ís-
lenzkri leikarastétt — því að einmitt á þessu ári eru liðin
40 ár frá því hann hóf leiklistarferil sinn. Hann á því lang-
an og merkan starfsferil að baki.
Indriði var fœddur í Rvík., 1. des. 1902 og andaðist á
þjóðhátíðardaginn þann 17. júní s. I.
Það er ekki ofmœlt þó sagt sé að leiklistin hafi verið hon-
um í blóð borin. Afi hans, Indriði Einarsson skáld, var,
eins og kunnugt er, einn einlœgasti unnandi og hvata-
maður leiklistarinnar, sem þjóð vor hefur alið. — Merk-
ur brautryðjandi, sem barðist fyrir því langa œvi í rœðu
og riti að vegur leiklistarinnar hér á landi mœtti vera sem
mestur.
Móðir Indriða Waage og þrjár systur hennar voru allar
leikkonur og faðir hans, Jens Waage, var í mörg ár einn
fremsti og fjölhœfasti leikari, sem þessi þjóð hefur átt.
Æskuheimili Indriða var eitt merkasta leiklistarheimili hér
á landi. Um fátt mun hafa verið rœtt meira þar en leik-
hús og leikbókmenntir og hefur allt þetta að sjálfsögðu
snortið djúpt hinn bráðþroska og listhneigða œskumann.
Hann var alltaf mjög opinn fyrir öllum ytri áhrifum, við-
kvœmur og hrit'nœmur fyrir öllu fögru, hvort sem það birt-
ist honum í hrynjandi tungunnar, tónum eða litum.
Oft er sagt að einhver sé borinn til þessa eða hins. — Ég
held að þetta hafi átt vel við um Indriða Waage. Örlög-
in höguðu því þannig, að hann gat aldrei orðið annað
en leikari. Og það var mikið happ fyrir íslenzka leiklist,
að Indriði helgaði Thaliu sitt œvistarf. Fátt mun nauðsyn-
legra ungri listgrein, en að til forustu veljist menn, sem
hafa mikla hœfileika, þekkingu og einlœgni í starfi. Alla
3