Leikhúsmál - 01.11.1963, Qupperneq 10
Rússíá og kínverskar tréskurðarmyndir, furðulistilega gerð-
ar, ,,! þrívídd" og gulli slegnar. Og þannig mœtti lengi
telja, ef gera œtti skil öllum þeim fágœtu munum, sem
þennan stað prýða, veggteppi, helgimyndir, útskurð,
sveðjur, — gamlar flöskur og „raritet". Jafnvel í eldhús-
króknum eru á veggdúki konungarnir Kaspar, Melchíor
og Balthasar á sífelldri göngu þvert yfir eldavélina að
finna Guðsmóður með barnið sitt. Þessir vitringar eru þó
ekki klœddir plussi og fínum djásnum, heldur að alþýðu-
sið, frekar luralegir, og maddaman er blómleg sveita-
kona, bústin og rjóð í kinnum, bljúg, feimin og yndisleg.
En i einu horni inni í stofu er dálítið altari; reykelsi og stór
kerti. í þessu umhverfi rœddum við liðna tima og var þá
skotizt víða, úr eilífðarmálum í revíusöng, úr gotneskum
dómkirkjustil i abstrakt leiksviðsmyndir. Slikar eru og
sveiflurnar og hafa verið í lifi húsbóndans.
I klaustri
Lárus Ingólfsson („Lassi") er fœddur í Reykjavík 22. júní
1905. Hann er því Reykvikingur i húð og hár, ólst upp og
dafnaði á því plássi. Þetta var á þeim tima, er ungt fólk
hafði hvorki bílageim, sveitaböll, bingó, Birgittu Bardó,
tvist, Evu eða aðra svipaða blessun hins blómgandi mat-
Lárus
listin og lífiö
Lárus Ingólfsson, fyrsti leiktjaldameistari Þjóðleikhússins,
hefur víðar skapað ,,hið rétta andrúmsloft" en á sviði
þess. A heimili hans við Bergstaðastrœti ríkir andrúms-
loft, sem vafalaust fá heimili önnur í höfuðstaðnum, eða
yfirleitt á byggðu bóli útskersins okkar, geta státað af.
Höfug stemning hvílir yfir þessum stofum. Þar er friðsœlt
sem í musteri; og gestum er vel sinnt (,,lítið innl skonsuna,
ungarnir mínir, og tyllið ykkur"). Reykelsisilm ber að vit-
um, og það er gott að setjast hérna með glcancli vín í
skál og rœða djúp vandamá! eða gott slúður. Á stalli
stendur voðalegur stríðsmaður austan úr Síam úr bronsi
í fullum bardagaskrúða. Sá var keyptur í virðulegri búð-
arskonsu í Lundúnum. Heilög María, sem endur fyrir
löngu var skorin úr tré í einhverju sveitaþorpinu suður í
Kárnten í Austurríki, horfir rólyndum bóndakonuaugum
á gestina úr glerskríni á kommóðu. Skrautskermur, sem
gceti hafa prýtt eitthvert kvennabúr ! Persíu, hreykir sér
(öfugur) uppi á skápi og varpar daufum bjarma á um-
hverfið, því að einhvers staðar í honum er vendilega fal-
in 25 kerta Ijósapera úr Kiddabúð. Sjálfur var skermur-
inn keyptur í Lundúnaborg. Stór persneskur bjúghnífur
hangir á vegg. Sá var falaður í sölutjaldi á Signubökkum.
Uppi á vegg tróna einnig páfinn og heilagur Nikulás frá
8