Leikhúsmál - 01.11.1963, Side 69

Leikhúsmál - 01.11.1963, Side 69
LEIKFLOKKUR HELGA SKÚLASONAR: HLAUPTU AF ÞÉR HORNIN eftir Neil Simon Leikflokkur Helga Skúlasonar lagði land undir fót í sumar að sýna mikil vandamál, sem oft steðja að ungum piparsveinum, hvort sé nú vœnlegra til varanlegrar lífshamingju, frjálsa glaða lífið piparsveinsins eða hlýja og var heimilislífsins í faðmi eigin- konu og fjölskyldu við arineld. Og hitt vandamálið, hvenœr sé þvi verki ungs manns lokið að hlaupa af sér hornin. Þetta eru náttúrlega mikil vandamál, en höfundurinn leysir þau bœrilega í þessum skemmtilega gam- anleik: eldri bróðirinn, fyrrverandi piparsveinn af guðs náð, fellur flatur og kvœnist, en litli bróðir, ekki síður af guðs náð mesti mömmudrengur, tekur við piparsveinsembœttinu fyrst um sinn. Gangur tilverunnar. Leikurinn er fjörlegur og hefur auk þess orðið fyrir þeirri upphefð að hafa verið kvikmyndaður með Frank Sin- atra í aðalhlutverki, dáðum pleiboi, sem á allt frá forseta upp! undir- heimaforingja að talvinum; — Það er nú önnur saga. En þannig er leikur- inn sjálfur í eðli sínu í beinan karllegg hreinrœktaður bandarískur. Kímnin er snör, skelegg („slagfœdrig"), stund- um kaldhœðin. One, two, three. Einnig kippir heldur betur í kynið með happyendinum bandaríska, þar sem menn einsog Mr. Baker (Helgi Skúla- son) snarhrapa allt í einu úr tiltölu- lega heilsteyptri persónubyggingu og kúvenda á sálinni til þess að allt geti farið vel í skyndi í lokin og unnt sé að slá botni í leikinn. En svona á þetta víst að vera. Nefndur Mr. Baker var smellinn ná- ungi í túlkun Helga, sem hélt þeirri persónusköpun mestan tímann með laumulegum augnskotum og hrað- þurrkuðum athugasemdum. Erlingur Gíslason var líka í essin sínu sem ör- lagapiparsveinninn Alan, og hefur undirritaður varla séð hann (Erling) ná sér eins vel á strik fyrr, enda var hann hér eðlilegur og rólegur, en ekki yfir sig hafinn og hátið- (jaðrandi við spjátrungs-) legur sem stundum ella. Þvi miður var ekki hið sama uppá teningnum hjá yngri bróðurnum, Buddy, í meðferð Péturs Einarssonar, sem á það stundum til að vera uppá þrœði með spennt höfuðleður einsog eftir of mikla kaffidrykkju. Konur leiksins voru Brynja Benediktsdóttir (Peggy), Guðrún Stephensen (Frú Baker) og Helga Bachmann (Connie). Leikstjórn Helga Skúlasonar var i stíl, hreyfanleg og hvatleg. Leiktjöld gerði Steinþór Sigurðsson og þýðinguna Hjörtur Halldórsson. í heild smellin sýning. ólm. LEIKHÚS ÆSKUNNAR: EINKENNILEGUR MAÐUR eftir Odd Björnsson. Leikstjóri: Guðjón Ingi Sigurðsson. Nýi leigjandinn, hinn einkennilegi maður Odds Björnssonar, kom kann- ske œrnu róti á hina notalegu jafn- vœgiskennd á heimili fjölskyldunn- ar Danielsson. En ekki á áhorfenda- skarann. Hins vegar hefur Oddur sjálfur umturnað nokkuð viðkvœmri sálarró einhverra manna i þessum bœ, sem þótti of glannaleg þau ný- mœli i islenzkri leikritagerð, sem gaf að líta á síðastliðnum vetri í Tjarnar- bœ í liki þriggja einþáttunga hans. Þessir þœttir hrista uppí ýmsum frœð- ingum til þess að fara að fílósófera leikrit og leikhús almennt á prenti, og þótti sitt hverjum. Hvort sem fólki líkaði samt betur eða verr, hafði Odd- ur sýnt framá það, að leikhús þarf ekki endilega að vera spakyrðafa- brikka eða krossflœkja stórra örlaga og atburða eða eftirherma ,,á lífinu", heldur getur hlýtt eigin reglum, átt sjálfstœða tilveru, sérstœðu augna- blika og tilfinninga, sem ekki er unnt að nema af prenti í skáldsögum. Margir töluðu um bókmenntagildi, skáldsagnagildi og hin og önnur gildi, — en enginn um leikmennta- gildi. Svona eru þessi hugtök enn brengluð hér. Einsog fólk hefur vanizt á að halda, að kvikmyndir séu (eða eigi að vera) mynduð leikverk, þá telur það einnig, að leikrit eigi að vera uppáklœddur róman með rjúkandi gáfnafari í hverri linu. En róman byggist fyrst og fremst á 67
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Leikhúsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1743

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.