Leikhúsmál - 01.11.1963, Page 85

Leikhúsmál - 01.11.1963, Page 85
PAT: Allir sannir lýðveldissinnar voru á hlaupum og þurftu á góðum felustað að halda. Við komum Congrave til valda og hann sigaði strax lögreglunni á okkur. RIO RITA: Svo komum við de Valera til valda, og hann sigaði líka lögreglunni á okkur. PAT: Komum við de Valera til valda — um hvem andskotann ertu að tala? RIO RITA: Þykistu ekki vita það — ég var sendiboði Michael Collins í gamla daga. — PAT: Sendiboði Michael Collins — ein- mitt það já. Og hann sendi þig eftir hverju má ég spyrja — sigarettum? RIO RITA: Kallarðu mig lygara? PAT: Æ, góða, steinhaltu kjafti. RIO RITA: Þú veizt það vel að ég var sendiboði Michael Collins. MULLEADY: Það eru þrjátíu ár síðan — þér voruð ekki einu sinni fæddur þá. RIO RITA: Ég tók þátt í orustunum í O’ Connell-stræti og stóð mig eins vel og hver annar. ROPEEN: Má ég kynna — hetjan frá O’ Connellstræti! RIO RITA: Þú ættir nú bara að passa þig góði, eða ég — ROPEEN: Svona, snáfaðu út héðan. (Elt- ir hana upp.) RIO RITA: Sko bara — nú ræðst hún aft- ur á mig og ég hef ekki sagt orð. En ég kæri mig svo sem ekkert um að vera að rífast við hana. Það er bara til að svekkja sjálfan sig að vera að rífast við svona frekjur. Oj-bara. Þá er betra að fara upp til mín og leggja mig. PAT: Jæja, í stuttu máli sagt. Ríkisstjórn Congraves hélt áfram að hundelta lýð- veldissinna, þegar Bretamir hættu því og ríkisstjóri de Valera hélt því líka áfram, þegar Congrave var farinn frá. MEG: Sem sé, gamla sagan. Fjórbjörn í Þríbjörn, Þríbjörn í Tvíbjörn, Tvíbjörn í Einbjörn og ekki gekk rófan. PAT: Nei, en það var auðvitað ekkert upp úr þessu að hafa, — að fela hund- elta lýðveldissinna, svo við vorum neydd- ir til að fara að leigja alls konar rakkara- pakki til að halda rekstrinum gangandi. Þessu göfuga húsi, þar sem svo margar hetjur höfðu átt sér samastað, var breytt í lastabæli; og það stóð svo sem ekki á vissu fólki að hjálpa til við breytinguna. MEG: Kvikindið þitt! Sjálfur Satan hirði þig og þessa ormétnu löpp þína! Að ég eigi einhvem þátt í því hvernig komið er fyrir þessu! Jú, það getur verið að ég sé hóra, en ég er þó að minnsta kosti ósvik- in írsk hóra og ættjarðarvinur. PAT: Auðvitað. Auðvitað veit ég það. Svona, vertu róleg. Erum við kannski ekki maður og kona — eða svona hér um bil? MEG: Jú, Pat, við emm það — svona hér um bil. PAT: Auðvitað var það ekki þú sem ég meinti. Ég var að tala um þær þama Ropeen gömlu og Colette og — allt hitt pakkið. COLETTE: Ég er ekkert upp á það komin að búa hérna. MEG: Minnstu ekki á hana Colette í mín eyru eftir meðferðina á þessum aumingja stjórnarráðsfulltrúa, sem. . . . PAT: (grípur fram í): Svona, vertu nú ekki að rifja það upp núna. Ja, ég skal segja þér, Pat, að þetta var ekki neitt saklaust grín, þegar aumingja maðurinn liggur þarna á hnjáinum við rúmið og er að lesa bænirnar sínar, að fara þá að stela af honum hverjum ein- asta eyri og skilja hann eftir á nærbux- unum fyrir augunum á Guði almáttugum, ef svo mætti segja. (Sálmasöngur uppi, Rio Rita inn með gauragangi og negrinn í boxbúningi með hanzka og allt.) Hvur sjálfur andskotinn gengur á? RIO RITA: Ég hélt ég yrði ekki lengur hissa á neinu, en þetta gengur sko alveg fram af mér. Almáttugur, maður fær ekki einu sinni næði til að æfa svolítið hnefa- leik út af fyrir sig með vini sínum. MEG: Hvaðan kemur allur þessi hávaði? RIO RITA: Það er hann þama uppi á 3. hæð. Harm er með ókunnugan kvenmann í herberginu sínu! MEG: Mulleady gamli? RIO RITA: í þrjá tíma er hann búinn að hafa hana hjá sér, og lætin maður, ég hef bara aldrei heyrt neitt gasalegra. Já, hlæið þið bara, en þetta eru svo sannar- lega ekki nein meðmæli með okkur hin- um stelpunum héma í húsinu. ROPEEN: Rétt hjá þér. Svonalagað getur bara ekki gengið. MEG: Er það þessi einfætta á númer 8? RIO RITA: Nei, hún er ekki einu sinni héðan úr götunni, hvað þá heldur héðan úr húsinu. Bláókunnugur kvenmaður. MEG: Hvers konar kvenmaður? RIO RITA: Ja, kvenmaður — af þessari löggiltu sort, þið vitið. MEG: Þetta vesæla, gamla úrkynjaða himpigimpi, hvers konar hús heldur hann eiginlega að þetta sé? COLETTE: Þarna koma þau. (Mr. Mulleady og Miss Gilchrist birtast á stigapallinum krjúpandi, syngjandi sálm eða bæn, skómir við hlið þeirra.) MULLEADY: Við skulum biðja, Miss Gil- christ, og okkur verður fyrirgefið. (Káfar um leið í Gilchrist.) MISS GILCHRIST: í Drottins nafni, Mr. Mulleady, við skulum rejma að hafa kristilegan hemil á sjálfum okkur. MULLEADY: Ég biðst afsökunar, Miss Gil- christ. Lát ei hægri höndina vita hvað sú vinstri gerir. Miss Gilchrist finnið þér — (Káfar um hana aftanverða.) MEG (kallar): Mr. Mulleady! MULLEADY: — hvernig sálir okkar renna saman ? MEG: Mr. Mulleady! (Bænahald og káf hættir. Mulleady fer I skóna. Miss Gilchrist lagar sig til.) MULLEADY: Eruð það þér, Mrs. M. Meg: Er það ég? Já, það er ég og ekkert kjaftæði með það. Komið þér orðalaust niður og takið þessa blygðunarlausu tík með yður. MULLEADY: Hvað viljið þér? Voruð þér að kalla á mig, Mrs. M ? MEG: Ef þér heitið Mulleady, þá var ég að kalla á yður og ég var líka að kalla á þessa auðvirðilegu hóru sem þér hafið þarna hjá yður. Ég kallaði ekki á hana með nafni, því að mér hefur ekki hlotnast sá heiður að vera kynnt fyrir henni, ef hún er þá ekki að fullu búin að glata nafni sínu ásamt mannorðinu með sínu lastafulla líferni. Svona, niður með þig hingað gáran þín, hver sem þú ert. (Meg rekur alla út og felur sig bak við dymar. Mulleady kemur inn, sér engan, ætlar að snúa við, en Meg stöðvar hann, rekur hann á undan sér að einum stóln- um.) MULLEADY: Mrs. M„ hún hefði getað heyrt til yðar. MEG: Og hvað með það? Hvað hefur hún eiginlega sem ég hef ekki, ef ég má spyrja ? MULLEADY: Hún er dama. Hún er æm- verðug kona. MEG: Hah! Ef hún er æruverðug kona, þá er ég heilög Birgitta. Hvað meinið þér annars með því að draga hóm inn í þetta hús. PAT: Já, til hvers að bera í bakkafullan lækinn ? (Colette, Ropeen, Rio Rita og Meg þyrp- ast að Mulleady og setjast á hné honum, ýfa hár hans, kitla hann. Negrinn boxar út í loftið, sjómaðurirm sofnar með flösku af vodka, Pat tekur engan þátt í þessu.) MEG: Mr. Mulleady, háæruverðugi Mr. Mulleady, vissuð þér ekki að þér gátuð fengið allt sem hjartað girnist á þessu sviði, hér á staðnum. RIO RITA: Já, bókstaflega allt sem hjart- að girnist. MEG: Svei mér þá, ég skil bara ekkert í yður, Guð veit þó, að ég hef staðið með yður gegnum þykkt og þunnt, jafnvel þegar hann þama vildi kasta yður öfug- um út á götuna eins og þér áttuð skilið fyrir að vera sá ómerkilegi skíthæll og tugthúslimur sem þér svo sannarlega er- uð. MULLEADY: Þakka yður fyrir Mrs. M. Blíða yðar er sem balsam á svíðandi sár míns hjarta. MEG: Jæja, eruð þér búinn að jafna yð- ur. MULLEADY: Ja, ja, vissulega, þakka yður fyrir. MEG: Gott og vel. Látið hana þá koma niður, þessa drag. .. . MULLEADY: Mrs. M. — hún er — MEG: Svona, ekkert múður, kallið á hana, orðalaust og á stundinni — eða — MULLEADY (veiklega): Miss Gilchrist. GILCHRIS: Já, Mr. Mulleady? MULLEADY: Vilduð þér gjöra svo vel 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Leikhúsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1743

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.