Leikhúsmál - 01.11.1963, Side 99
(Offiserinn veður i gegn og svo til baka
aftur).
PAT: Og hverju skiptir það annars, vinstri
eða hægri ? Hraustir og góðir drengir féllu
í umvörpum af liði beggja. Þetta var tryllt
ur og ofsafenginn bardagi. Þeir höfðu fall-
byssur og vélbyssur og jarðsprengjur. Við
höfðum ekkert nema riffla og skamm-
byssur. Bærinn varð ein rjúkandi rúst og
líkin stöfluðust upp á götunni.
MEG: Þú sagðir mér að það hefði ekki
fallið nema einn maður.
PAT: Sagði ég það?
MEG: Já. Þetta var ungur verkfræðinemi
sem ekkert skipti sér neitt af pólitík,
heldur hafði verið sendur til að mæla fyrir
nýjum vegi.
PAT: Þú lýgur þessu!
MEG: Þú sagðir mér að á eftir hefðu bæði
liðin haldið því fram að sá dauði væri
þeirra maður.
PAT: Lygari!
MEG: Ég hef sjálf séð krossana sem þeir
settu upp sinn hvoru megin við veginn til
minningar um hann.
PAT: Sama hvað ég sagði —
MEG: Þetta er að minnsta kosti sú útgáfa
af sögunni sem maður fær hjá þér þegar
þú ert orðinn nógu fullur. Og sannast hér
enn hið fornkveðna, að maður á aldrei að
trúa ófullum íra.
PAT: Missti ég ekki fótinn, eða hvað ? Hef
ég kannski haft nema einn fót að ganga á
síðustu fjörutíu árin?
MEG: Nei, enda hefðirðu ekki haft brúk
fyrir fleiri.
GILCHRIST: Ó, þessi saklausu elskenda-
krytur!
PAT: Skiptu þér ekki af þessu. Fóturinn
fór af mér, hvað sem hver segir, og þessir
nápínulegu aular, uppdubbaðir í frakka
með alpahúfur og gútemplaramerki, þeir
hafa sko engan rétt til að kalla sig lýð-
veldishermenn.
GILCHRIST: Þeir eru ekki annað en stórir
strákar.
MEG: Hann er grænn af öfund og getur
ekki þolað að þeir fái að leika sér svo-
lítið þegar hann er sjálfur orðinn gamall
og búinn að vera.
PAT: Andskoti hvað það er mikil ástæða
til að öfunda þennan prumphana sem er að
þvælast hérna með nefið niðrí hvers
manns kopp.
MEG: Þeir hafa alveg eins mikinn rétt til
að marsera og sprikla og æfa sig og veifa
sínum skammbyssum og hossa sínum gen-
erálum og rassakastast á sínum hvítu
truntum, og særast sínum ólifissárum og
deyja sínum hetjudauða eins og þú hafðir.
PAT: Hver er að segja að þeir hafi það
ekki?
SJÁLFBOÐALIÐI: Þú sagðir það, Pat.
GILCHRRIST: Ég heyrði það með mínum
eigin eyrum.
MEB: Varstu ekki sjálfur einu sinni ung-
ur?
97