Leikhúsmál - 01.11.1963, Blaðsíða 102
bara að láta þig vita það, að Englendingur
er maður til að deyja á borð við íra og
hvern sem vera skal.
PAT: Byrjaðu nú enn á þessu kjaftæði um
að deyja. Þú deyrð ekki næstu 50 árin,
nema þá að þú fáir atombombu í hausinn.
(Leslie sezt hjá Pat og Meg. Monsjur og
Offiser koma inn. Sjálfboðaliðinn skýrir
þeim frá því sem komið hefur fyrir).
MONSJUR: Hefurðu kynnt þér hverjir eru
nánustu ættingjar hans.
SJÁLFBOÐALIÐINN: Hann á enga, Sir.
(Þeir fara aftur. Sjálfboðaliðinn sezt við
borðið með byssuna í baki Leslie).
PAT: Komdu og seztu og kipptu þér ekk-
ert upp við það sem þeir eru að segja.
MEG: Nei, skiptu þér ekert af þeim, góði.
HERMABUR: Ef ég á að segja ykkur alveg
eins og er, þá hef ég kunnað ágætlega við
mig hérna hjá ykkur, þangað til í kvöld
Nei þetta hefur alls ekki verið svo bölvað.
(Syngur).
Er írsku augun brosa,
hverfur ís, vetrarsnjór
og um landið sólin syndrar,
meðan syngur englakór.
Er írsku augun brosa —
(Enginn af írunum kann textann, en
raula með og blístra. Miss Gilchrist fer
að væla og söngurinn hættir).
PAT: Svona áfram, þetta er eitt af þjóðlög
unum okkar.
GILCHRIST: Jesús María og Jósep, ég
kenni í brjósti um þennan dreng eins og
ég væri móðir hans.
MEG: Það er merkilegt.
GILCHRIST: Það væri þó ennþá merki-
legra ef ég væri faðir hans.
MEG: Viltu nú líka vera faðir hans? Er
ekki nóg að þú sért einföld, þó þú þurfir
ekki líka að vera tvöföld? Maður hefur
aldrei heyrt að þú værir gift.
GILCHRIST: Maður hefur heldur aldrei
heyrt að Vor Blessaða Jómfrú væri gift.
MEG: Nei, það byggðist alt á þráðlausu
sambandi við Heilagan anda.
GILCHRIST: Ég mótmæli!
MEG: Fyrir hönd Heilags anda?
GILCHRIST: Ég þoli ekki þetta guðlast. Ég
ég held yður væri nær (Bendir á gólfið).
að þrífa skítinn af gólfteppinu yðar.
MEG: Heyrðu góða. Menntaðir menn með
fínan smekk hafa hrósað mér fyrir teppið
mitt að þú bara vitir það, og pillaðu þig
svo burt héðan með þetta andstyggilega
trúarrugl þitt, þangað sem þú getur sull-
að því yfir hræsnarana og hyskið sem
gerir sér mat úr að nugga sér utan í Heil-
agan anda.
GILCHRIST: Fyrir alla muni, særið ekki
mínar helgustu tilfinningar.
MEG: Burt með þig gamla uppþornaða
bikkja.
GILCHRIST: Ég stend staðföst við hlið
mins Herra, og nú vildi ég gjarnan syngja
sálminn minn.
MEG: Jú, baular Búkolla enn.
100