Borgfirðingabók - 01.12.2006, Síða 204
202
Borgftrdingabók 2006
að mun verr stödd um það leyti sem þau hetja búskap en margir aðrir
í hreppnum. Þeim virðist hins vegar hafa gengið verr en mörgum öðr-
um að ná upp íjárstofni aftur eftir harðindin 1882, og gæti það bent
til þess að einhverjar pestir hafi herjað á íjárstofn þeirra, og ber þar
saman við það sem mér finnst ég hafi heyrt en man ekki svo vel að ég
þori að setja neitt á blað þar um.
A þessum tíma þótti það ekki fýsilegur kostur að þiggja sveitar-
styrk, því bæði þótti mörgum það nær óbærileg skönun og eins var þá
sú hætta fyrir hendi að heimilið yrði leyst upp og bömum ráðstafað
án þess að foreldramir hefðu neitt um það að segja, og hafa þau
vafalaust verið búin að sjá rnörg dæmi slíks. Skárri kostur var þó að
hætta búskap og geta ráðstafað bömunum sjálf.
Vorið 1896 slíta þau hjón samvistir vegna fátæktar og eru í vinnu-
mennsku eða lausamennsku um skeið, líklega hvort í sínu lagi. Vorið
1905 helja þau aftur búskap í Efri-Hrepp í Skorradal, fara síðan að
Hesti 1906 - 1909, að Melum í Melasveit 1909 - 1912 og Melaleiti
1912 - 1914. Eitthvert ósamkomulag við ábúanda Mela mun hafa
valdið því að þau hafa jarðaskipti við Friðrik Bergsson, sem þá bjó í
Eystra-Súlunesi, og flytja þangað 1914.
Nokkuð var talið skipta í tvö hom með syni Odds, því bæði Hall-
dór og Gunnar voru miklir ljör- og ákafamenn en ekki nema rétt um
meðallag að burðum, en Ámi og þó sérstaklega Oddur, sem var talinn
líkastur Oddi eldra af sonum hans, vom hæggerðari en burða- og
þrekmenn töluvert fram yfir meðallag. I Héraðssögu Borgarfjarðar er
frásögn eftir Þómnni í Höfn af ijármanni í Höfn sem villtist á milli
bæjar og fjárhúsa í blindbyl og lá úti í fönn um nóttina. Þá var Oddur
Oddsson að koma gangandi með áburðarhest utan af Akranesi, en
fór um hæl orðalaust aftur út í bylinn til að leita fjármannsins þegar
hann frétti hvemig ástatt var, og sá sem leggur þannig undirbúinn út
í blindbyl er engin liðleskja.
Vorið 1914 er Ámi að heija búskap í Háf í Reykholtslandi, en þar
var fornt eyðibýli og höfðu verið beitarhús frá Reykholti þar sem
hann hafði þá verið vinnumaður í einhver ár.
Árni bjó aðeins í Háfi til vorsins 1915, svo það hlýtur að hafa ver-
ið þá um sumarið eða haustið 1914 að hann eignast hálftunnu af stein-
olíu sem líklega hefur verið komið á vagni að Norðurreykjum, en nú
þurfti hann að koma tunnunni niður að Háfi, en þangað ekki vagnfært
og um það bil 100 kílóa tunna óheppilegur flutningur á klyijahest.