Peningamál - 04.05.2022, Síða 9

Peningamál - 04.05.2022, Síða 9
PENINGAMÁL 2022 / 2 9 Áhrifin verða einna mest í þeim löndum Evrópu sem reiða sig í miklum mæli á orkuinnflutning frá Rússlandi, einkum á jarðgasi. Hækkun orkuverðs og skert framboð á orku kann einnig að leiða til framleiðsluskerðingar hjá fyrirtækjum, einkum í orkufrekum iðnaði. Til viðbótar hafa væntingar heimila til efnahagshorfa dalað og fjár- málaleg skilyrði versnað. Á móti vegur hins vegar mikill uppsafnaður sparnaður sem heimili hafa byggt upp á undanförnum tveimur árum. Víða hafa stjórnvöld einnig aukið opinbera fjárfestingu, m.a. til varnarmála, og gripið til mótvægisaðgerða til að draga úr áhrifum hækkandi orkuverðs á ráðstöfunartekjur heimila. Fyrir ríki sem flytja út hrávöru vegur hækkun eigin útflutningsverðs jafn- framt á móti neikvæðum áhrifum sem hækkun innflutn- ingsverðs hefur í för með sér fyrir innlenda eftirspurn. Horfur á minni heimshagvexti í ár og á næsta ári ... Í nýrri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem birt var um miðjan apríl er gert ráð fyrir að hagvöxtur í heiminum verði 3,6% í ár. Það er 0,8 prósentum minni hagvöxtur en sjóðurinn spáði í janúar sl. Skýrist það að mestu leyti af áhrifum sem stríðsátökin í Úkraínu og refsiaðgerðir gegn Rússlandi hafa í för með sér fyrir heimsbúskapinn. Sjóðurinn hefur fært niður hagvaxtarspá sína í þróuðum ríkjum heims um 0,6 prósentur í ár og um 1 prósentu í nýmarkaðs- og þróunarríkjum. Þá er einnig spáð 3,6% heimshagvexti á næsta ári sem er 0,2 prósentum minna en í janúarspánni. Horfur um alþjóðaviðskipti hafa einnig versnað að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. ... og er spáð minni hagvexti í helstu viðskiptalöndum Íslands Í grunnspá Seðlabankans er gert ráð fyrir 3,1% hagvexti í helstu viðskiptalöndum Íslands í ár (mynd I-5). Það er 0,9 prósentum minni hagvöxtur en spáð var í febrúar og skýrist fyrst og fremst af neikvæðum áhrifum stríðs- átakanna. Hagvaxtarhorfur hafa versnað í öllum helstu viðskiptalöndum en einkum á evrusvæðinu. Horfur fyrir næsta ár hafa einnig versnað og er nú gert ráð fyrir 2,3% hagvexti í viðskiptalöndunum í stað 2,5% í febrúar- spánni. Horfur um innflutning viðskiptalanda hafa einnig versnað í takt við verri hagvaxtarhorfur. Óvissa um alþjóðlegar efnahagshorfur er hins vegar mikil. Efnahagsframvindan ræðst að miklu leyti af því hversu langvarandi stríðsátökin verða og hvort gripið verði til enn frekari viðskiptaþvingana gagnvart Rússum. Horfurnar gætu versnað enn frekar dragist stríðið á langinn eða ef veruleg skerðing verður á orkuinnflutn- ingi til Evrópu. Þá ræðst þróunin einnig að miklu leyti af framvindu heimsfaraldursins og hversu hratt tekst að vinda ofan af þrálátum framleiðsluhnökrum. Hagvöxtur í viðskiptalöndum Íslands og framlag einstakra landa 2016-20241 1. Viðskiptavegið framlag einstakra landa. Grunnspá Seðlabankans 2022-2024. Brota- lína sýnir spá frá PM 2022/1. Norðurlöndin eru meðaltal Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Heimildir: Refinitiv Datastream, Seðlabanki Íslands. Bandaríkin Evrusvæðið Önnur lönd Helstu viðskiptalönd Breyting frá fyrra ári (%) Mynd I-5 -6 -4 -2 0 2 4 6 202420232022202120202019201820172016 Bretland Norðurlönd Alþjóðleg verðbólga Janúar 2018 - apríl 2022 Heimildir: Refinitiv Datastream, Seðlabanki Íslands. Bandaríkin Evrusvæðið Bretland Viðskiptalönd Íslands 12 mánaða breyting (%) Mynd I-6 -1 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 2021202020192018 2022

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.