Peningamál - 04.05.2022, Blaðsíða 53

Peningamál - 04.05.2022, Blaðsíða 53
PENINGAMÁL 2022 / 2 53 og skömmtunar á orku til tiltekinna geira. Á móti vegur betri birgðastaða en útlit var fyrir í byrjun vetrar vegna tiltölulega milds veðurs í Evrópu. Þá gæti aukið framboð á olíu og gasi frá öðrum ríkjum, eins og Bandaríkjunum og Íran, létt á vandanum. Efnahagsleg áhrif á heimsbúskapinn Mikil óvissa er um stærðargráðu áhrifa stríðsátakanna á alþjóðlegar efnahagshorfur en líklegt er að þau verði töluverð – ekki síst á meginlandi Evrópu. Nýlegar greiningar benda t.d. til þess að átökin gætu valdið því að hagvöxtur í heiminum verði ½-1 prósentu minni í ár en ella hefði verið (sjá t.d. Liadze o.fl., 2022, og OECD, 2022). Áhrifin á hagvöxt á evrusvæðinu yrðu jafnvel meiri eða 1-1½ prósenta (mynd 5). Áhrifin á verðbólgu yrðu einnig veruleg: verðbólga í heimin- um gæti aukist um hátt í 3 prósentur í ár og á evrusvæðinu gæti aukningin numið 2-2½ prósentu (mynd 6). Áhrifin gætu orðið meiri ef ástandið versnar enn frekar og orkuútflutningur Rússa skerðist meira. Gerist það er líklegt að hrávöruverð hækki enn meira og verðbólga aukist frekar með enn nei- kvæðari áhrifum á kaupmátt heimila og eftirspurn.2 Átökin gætu einnig haft langtímaáhrif á heimsbúskap- inn verði varanleg hliðrun á alþjóðlegum orkuviðskiptum og skipulagi mikilvægra aðfangakeðja. Aukin uppskipt- ing alþjóðlegrar greiðslumiðlunar gæti gert alþjóðaviðskipti kostnaðarsamari og auknar alþjóðadeilur dregið enn frekar úr alþjóðaviðskiptum og dreifingu þekkingar sem gæti dregið varanlega úr langtímavaxtargetu heimshagkerfisins. Efnahagsleg áhrif á Íslandi Líkt og í öðrum þróuðum ríkjum eru viðskipti Íslands við Rússland tiltölulega lítil en eins og sést á mynd 1 fara um 0,5% af vöruútflutningi Íslands þangað (miðað er við árið 2020). Viðskiptin hafa minnkað töluvert frá því sem áður var í kjölfar innrásar Rússa á Krímskaga og þess gagnkvæma viðskiptabanns sem sett var á í kjölfarið og enn frekar eftir að heimsfaraldurinn skall á. Svipað hlutfall útflutnings fer til Hvíta-Rússlands og Úkraínu en útflutningur þangað hefur aukist undanfarin ár eftir viðskiptabann Rússa árið 2015, einkum vegna þess að sjávarafurðir sem áður fóru til Rússlands hafa í auknum mæli farið til þessara landa. Hlutfall vöruútflutnings til landanna þriggja er því samtals 1,7% (mynd 7). Samsvarandi hlutfall fyrir þjónustuútflutning er 1,1% og 1,5% fyrir vöru- og þjónustuútflutning alls (samtals 2. Samkvæmt greiningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (2022) gæti heims- framleiðslan dregist saman um allt að 2% til viðbótar fram á næsta ár verði gripið til víðtækari viðskiptaþvingana á Rússland en nú er gert ráð fyrir sem leiðir til enn frekari verðhækkunar hrávöru og meiri og langvinnari framleiðslutruflana. Verðbólga í heiminum gæti jafnframt aukist um allt að 1 prósentu til viðbótar í ár og á næsta ári. Áhrif stríðsins í Úkraínu á hagvöxt í heiminum1 1. Mat á áhrifum stríðsátakanna á hagvöxt 2022 (NIESR) eða í heilt ár frá upphafi átaka (OECD). Heimildir: Liadze o.fl. (2022), OECD (2022). Prósentur Mynd 5 Breska þjóðhagsstofnunin (NIESR) OECD -1,6 -1,4 -1,2 -1,0 -0,8 -0,6 -0,4 -0,2 0,0 EvrusvæðiðBandaríkinHeimurinn Áhrif stríðsins í Úkraínu á verðbólgu í heiminum1 1. Mat á áhrifum stríðsátakanna á verðbólgu 2022 (NIESR) eða í heilt ár frá upphafi átaka (OECD). Heimildir: Liadze o.fl. (2022), OECD (2022). Prósentur Mynd 6 Breska þjóðhagsstofnunin (NIESR) OECD 0,0 0,5 1,0 1,5 2,0 2,5 3,0 EvrusvæðiðBandaríkinHeimurinn Viðskipti Íslands við Hvíta-Rússland, Rússland og Úkraínu1 1. Út- og innflutningur til Hvíta-Rússlands, Rússlands og Úkraínu í hlutfalli við viðkomandi út- og innflutning í heild 2020. Heimild: Hagstofa Íslands. % Mynd 7 Hvíta-Rússland Rússland Úkraína 0,0 0,2 0,4 0,6 0,8 1,0 1,2 1,4 1,6 1,8 2,0 AllsÞjónustaVörurAllsÞjónustaVörur Útflutningur Innflutningur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.