Peningamál - 04.05.2022, Blaðsíða 29
PENINGAMÁL 2022 / 2 29
Vegna heldur lakari horfa í ferðaþjónustu og verri
horfa annarrar þjónustu í kjölfar samdráttarins í fyrra er
gert ráð fyrir nokkru hægari vexti þjónustuútflutnings á
árinu eða tæplega 35% í stað rúmlega 39% í febrúar.
Vegna grunnáhrifa er vöxturinn þá nokkru meiri á næsta
ári eða um 15% í stað 11% í febrúar.
Lítils háttar vöxtur í vöruútflutningi á fjórða
ársfjórðungi líkt og áætlað var …
Vöruútflutningur jókst um 2,8% milli ára á fjórða árs-
fjórðungi í fyrra og um 7,6% á árinu í heild líkt og áætlað
var í febrúarspá bankans. Útflutningur sjávarafurða jókst
um 9,7% á árinu sem mátti einkum rekja til aukins loðnu-
útflutnings en á móti vó samdráttur í þorskútflutningi,
aðallega á fjórða ársfjórðungi, vegna minni aflaheimilda
á núverandi fiskveiðiári. Þá jókst útflutningur kísilafurða
einnig áfram á fjórða fjórðungi en álútflutningur stóð
nánast í stað milli ára á fjórðungnum og á árinu í heild.
… en horfur fyrir árið í ár hafa batnað vegna mikils
vaxtar annars vöruútflutnings á fyrsta ársfjórðungi
Horfur eru áfram á auknum útflutningi sjávarafurða í
ár vegna sögulega stórs loðnukvóta en útlit er fyrir lítils
háttar minni vöxt en gert var ráð fyrir í febrúar þar sem
ekki náðist að veiða allan kvótann sökum erfiðrar vertíð-
ar og slæmra veðurskilyrða. Þrátt fyrir það er loðnuaflinn
sá stærsti síðan á vertíðinni 2011-2012 (mynd III-16).
Líkt og fjallað er um í kafla I hefur verðlækkun afurðanna
aftur á móti verið ívið minni en áætlað var og heildar-
verðmæti vertíðarinnar því áþekkt því sem áður var spáð.
Áætlað er að bein áhrif innrásarinnar í Úkraínu á vöru-
útflutning verði takmörkuð og ef viðskipti við Rússland,
Hvíta-Rússland og Úkraínu stöðvast, verði sjávarafurðir
sem ætlaðar voru á þessa markaði að miklu leyti seldar
annað (sjá rammagrein 2). Útlit er fyrir að álframleiðsla
verði einnig ívið minni í ár en spáð var í febrúar og að
skerðing á orkusölu hafi heldur dregið úr framleiðslu kís-
ilafurða á fyrstu mánuðum ársins. Óvenju mikill útflutn-
ingur annarra iðnaðarvara á fyrsta ársfjórðungi vegur þó
á móti aðeins verri horfum í öðrum greinum og því er
áætlað að vöruútflutningur í heild aukist um 4,4% í ár í
stað 3,7% í febrúar. Vegna grunnáhrifa er talið að meiri
samdráttur verði á næsta ári en áfram er gert ráð fyrir
auknum lyfjaútflutningi frá og með næsta ári.
Horfur á minni vexti heildarútflutnings í ár en horfur
á næsta ári svipaðar og spáð var í febrúar
Talið er að heildarútflutningur aukist um tæplega 16% í
ár sem er minni vöxtur en spáð var í febrúar en þar vegur
minni þjónustuútflutningur þyngst þótt einnig séu horfur
á lítillega minni vexti útflutnings sjávar- og álafurða (mynd
Útflutningsverðmæti loðnuveiða 2005-20221
1. Grunnspá Seðlabankans 2022.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Útflutningsverðmæti loðnu (v. ás)
Hlutdeild í útflutningi sjávarafurða (h. ás)
Hlutdeild í vöruútflutningi (h. ás)
Ma.kr.
Mynd III-16
0
10
20
30
40
50
60
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
%
‘21‘19‘17‘15‘13‘11‘09‘07‘05