Peningamál - 04.05.2022, Blaðsíða 33
PENINGAMÁL 2022 / 2 33
Vinnumarkaður og
nýting framleiðsluþátta IV
Vinnumarkaður
Störfum fjölgar en meðalvinnustundum fækkar …
Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands
(VMK) fjölgaði heildarvinnustundum um 9% milli ára
á fyrsta fjórðungi ársins. Störfum fjölgaði um 10% en á
móti kom 1% stytting meðalvinnutíma. Fjöldi starfandi
var um 6% fleiri að meðaltali á fyrsta ársfjórðungi en að
jafnaði árið 2019 en meðalvinnustundir voru enn 3%
færri (mynd IV-1). Heildarvinnustundir voru því um 3%
fleiri en þær voru að jafnaði árið 2019. Störfum sam-
kvæmt staðgreiðsluskrá hefur einnig fjölgað en ekki jafn
mikið: árstíðarleiðrétt gögn fyrir janúarmánuð benda til
þess að starfandi einstaklingar séu nú um ½% fleiri en
að jafnaði árið 2019. Fjöldi starfa er því orðinn meiri en
hann var árið 2019 þó að samsetning þeirra hafi breyst.
Þannig voru enn um fimmtungi færri starfandi í ein-
kennandi greinum ferðaþjónustu í janúar en að jafnaði
árið 2019.
… og atvinnuleysi er nú orðið svipað og í upphafi
faraldurs
Árstíðarleiðréttar niðurstöður VMK benda til þess að
atvinnuþátttaka hafi aukist um 1 prósentu milli fjórð-
unga á fyrsta fjórðungi ársins og hlutfall starfandi um
1½ prósentu. Atvinnuleysi minnkaði því um tæplega 1
prósentu milli fjórðunga og mældist 4,1% sem er lítillega
minna en það var á fjórða ársfjórðungi 2019 (mynd IV-2).
Febrúarspá bankans gerði ráð fyrir því að árstíðarleiðrétt
atvinnuleysi yrði 5% á fyrsta ársfjórðungi og því hefur
atvinnuleysi hjaðnað hraðar en þar var gert ráð fyrir.
Svipaða sögu má segja af mælikvarða VMK á slaka á
vinnumarkaði sem mælist nú svipaður og í byrjun árs
2020 en þar er tekið tillit til þeirra sem vinna minna en þeir
Atvinna og vinnutími1
Janúar 2019 - mars 2022
1. Launafólk samkvæmt tölum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra en önnur gögn eru úr
vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands. Fólk á aldrinum 16-74 ára. Þriggja mánaða
hreyfanlegt meðaltal árstíðarleiðréttra talna.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Fjöldi starfandi
Meðalvinnustundir
Heildarvinnustundir
Launafólk
Vísitala, 2019 = 100
Mynd IV-1
90
92
94
96
98
100
102
104
106
108
202120202019 ‘22
Atvinnuleysi og slaki á vinnumarkaði1
1. ársfj. 2006 - 1. ársfj. 2022
1. Slaki á vinnumarkaði eru atvinnulausir, vinnulitlir (þeir sem eru í hlutastarfi en vilja
vinna meira) og möguleg viðbót á vinnumarkað (þeir sem eru tilbúnir að vinna en eru
ekki að leita að vinnu og þeir sem eru að leita að vinnu en eru ekki tilbúnir að hefja
störf innan tveggja vikna) sem hlutfall af mannafla með viðbót (mannafli að viðbættri
mögulegri viðbót á vinnumarkaði). Skráð almennt atvinnuleysi er skráð atvinnuleysi án
fólks á hlutabótum frá og með 1. ársfj. 2020. Árstíðarleiðréttar tölur.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Vinnumálastofnun, Seðlabanki Íslands.
Atvinnuleysi (VMK, v. ás)
Skráð almennt atvinnuleysi (v. ás)
Slaki á vinnumarkaði (VMK, h. ás)
% af mannafla
Mynd IV-2
0
2
4
6
8
10
12
0
4
8
12
16
20
24
% af mannafla með viðbót
‘21‘20‘19‘18‘17‘16‘15‘14‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06