Peningamál - 04.05.2022, Blaðsíða 35
PENINGAMÁL 2022 / 2 35
Vísbendingar um nýtingu
framleiðsluþátta
Framleiðnivöxtur í fyrra eftir samdrátt árið á undan
Framleiðni vinnuafls jókst um 1,6% milli ára í fyrra
ef miðað er við verga landsframleiðslu á vinnustund
samkvæmt VMK eftir 2,3% samdrátt árið áður.
Framleiðniaukningin í fyrra mælist enn meiri ef miðað
er við vergar þjóðartekjur á vinnustund samkvæmt þjóð-
hagsreikningum en á þann mælikvarða var vöxturinn
3,4% og kemur í kjölfar 0,2% samdráttar árið 2020.
Viðsnúningurinn milli ára var því tæplega 4 prósentur á
báða mælikvarða.
Vaxandi áraun á framleiðsluþætti
Samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum vorkönnunar
Gallup taldi tæplega helmingur stjórnenda sig búa við
skort á vinnuafli og liðlega helmingur taldi sig eiga erfitt
með að mæta óvæntri eftirspurn (mynd IV-6). Bæði hlut-
föllin hækkuðu lítillega frá vetrarkönnuninni en þau hafa
hækkað mikið undanfarið ár og eru hærri en þau voru á
árunum 2016-2017 þegar mikill uppgangur var í þjóðar-
búinu. NF-vísitalan, sem tekur saman fjölda vísbendinga
um nýtingu framleiðsluþátta, hefur einnig hækkað mikið
og bendir til þess að nýting framleiðsluþátta sé umfram
það sem hún er að jafnaði.
Nýjustu tölur þjóðhagsreikninga Hagstofunnar
benda þó til þess að slakinn í þjóðarbúinu hafi verið held-
ur meiri undanfarin tvö ár en áður var talið. Slakinn snýst
því lítillega seinna yfir í spennu á þessu ári en áður var
áætlað (mynd IV-7). Um þetta mat er hins vegar óvenju
mikil óvissa vegna áhrifa farsóttarinnar og alþjóðlegra
framleiðsluhnökra á framleiðslugetu þjóðarbúsins. Við
bætast miklar sveiflur í hlutfallslegu verði sem gera matið
á framleiðslugetunni enn erfiðara (sjá einnig rammagrein
1).
Nýting framleiðsluþátta1
1. ársfj. 2006 - 1. ársfj. 2022
1. Mælikvarðar fyrir nýtingu framleiðsluþátta byggjast á viðhorfskönnun Gallup meðal
400 stærstu fyrirtækja landsins. Vísitala nýtingar framleiðsluþátta (NF-vísitalan) er fyrsti
frumþáttur valinna vísbendinga um nýtingu framleiðsluþátta sem er skalaður til svo að
meðaltal hans er 0 og staðalfrávik 1. Ítarlegri lýsingu má finna í rammagrein 3 í PM
2018/2. Árstíðarleiðréttar tölur. Brotalínur sýna meðalhlutföll tímabilsins.
Heimildir: Gallup, Seðlabanki Íslands.
Fyrirtæki með starfsemi
nærri eða umfram hámarks-
framleiðslugetu (v. ás)
Hlutfall fyrirtækja (%)
Mynd IV-6
0
10
20
30
40
50
60
-3
-2
-1
0
1
2
3
‘21 ‘20 ‘19 ‘18 ‘17 ‘16 ‘15 ‘14 ‘13 ‘12 ‘11 ‘10 ‘09 ‘08 ‘07 ‘06
Fyrirtæki sem búa við skort á
starfsfólki (v. ás)
NF-vísitala (h. ás)
Fjöldi staðalfrávika
Framleiðsluspenna 2015-20241
1. Grunnspá Seðlabankans 2022-2024. Brotalína sýnir spá frá PM 2022/1.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
% af framleiðslugetu
Mynd IV-7
-6
-5
-4
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
2024202320222021202020192018201720162015