Peningamál - 04.05.2022, Qupperneq 22

Peningamál - 04.05.2022, Qupperneq 22
Eftirspurn og hagvöxtur III Innlend eftirspurn einkaaðila Kröftugur vöxtur einkaneyslu á fjórða ársfjórðungi í fyrra … Neysluútgjöld heimila jukust allt síðasta ár og færðist vöxturinn í aukana seinni hluta ársins (mynd III-1). Heimilin héldu áfram að ganga á sparnað sem byggst hafði upp eftir að faraldurinn skall á og sparnaðarhlut- fallið hefur því færst nær því sem það var fyrir farsóttina. Útgjaldasamsetning einkaneyslu hefur einnig færst nær því sem hún var fyrir farsóttina en samsetning hennar árið 2020 litaðist að miklu leyti af áhrifum sóttvarnar- aðgerða stjórnvalda á útgjaldamöguleika heimila (mynd III-2). Einkaneysla jókst um 12,9% milli ára á fjórða fjórð- ungi síðasta árs og hefur álíka vöxtur ekki mælst síðan á öðrum ársfjórðungi 2005. Vöxturinn reyndist því meiri en sá 11% vöxtur sem gert hafði verið ráð fyrir í febrúar- spá bankans. Á árinu öllu jókst einkaneysla um 7,6% en í febrúar hafði verið gert ráð fyrir 6,8% vexti. Þessi mikli bati einkaneyslu endurspeglar að hluta veruleg grunnáhrif eftir 2,9% samdrátt árið áður en einnig áhrif lækkunar vaxta, fjölgunar starfa og vaxandi kaupmáttar heimila ásamt aukinni bjartsýni þeirra. … en vísbendingar eru um að vöxturinn hafi gefið eftir á fyrsta fjórðungi þessa árs … Smitum tók verulega að fjölga eftir því sem leið á haustið og um miðjan nóvember sl. var aftur hert á sóttvörnum. Í lok febrúar var öllum sóttvarnaraðgerðum innanlands og við landamæri aflétt þótt smitum hafi haldið áfram að fjölga í byrjun árs enda greinilegt að skaðleg áhrif farsóttarinnar fóru minnkandi. Fólk virðist hins vegar hafa farið hægt af stað m.a. vegna víðtækra veikinda Einkaneysla (v. ás) Sparnaðarhlutfall (h. ás) Meðalsparnaðarhlutfall 2015-2019 (h. ás) Einkaneysla og sparnaður heimila1 1. ársfj. 2018 - 4. ársfj. 2021 1. Við útreikning á hlutfalli sparnaðar er miðað við áætlun Seðlabankans um ráðstöfunartekjur. Árstíðarleiðrétt gögn. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Breyting frá fyrri ársfjórðungi (%) Mynd III-1 -9 -6 -3 0 3 6 9 0 4 8 12 16 20 24 2021202020192018 % af ráðstöfunartekjum Einkaneysla og framlag undirliða 2010-20211 1. „Annað“ er starfsemi samtaka og útgjöld Íslendinga erlendis umfram útgjöld erlendra ferðamanna á Íslandi. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Varanlegar neysluvörur Óvaranlegar neysluvörur Þjónusta Breyting frá fyrra ári (%) Mynd III-2 -12 -8 -4 0 4 8 12 ‘21‘20‘19‘18‘17‘16‘15‘14‘13‘12‘11‘10 Hálfvaranlegar neysluvörur Annað Einkaneysla PENINGAMÁL 2022 / 2 22

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.