Peningamál - 04.05.2022, Side 28
PENINGAMÁL 2022 / 2 28
Ómíkron-bylgjan hægði á bata í ferðaþjónustu í
byrjun árs …
Í takt við febrúarspá bankans hægði mikil fjölgun smita
á fjölgun ferðamanna á fyrsta fjórðungi ársins. Voru
þeir tæplega 245 þúsund á fjórðungnum eða liðlega
helmingur af fjölda þeirra á sama tíma árið 2019. Erlend
kortavelta bendir til þess að meðalútgjöld ferðamanna
hafi verið aðeins lægri en á fjórðungnum á undan.
Vísbendingar eru aftur á móti um að tekjur innlendra
flugfélaga hafi dregist nokkru meira saman milli fjórð-
unga en áætlað var en skiptifarþegum fækkaði töluvert
meira en öðrum farþegum sem einnig má rekja til trufl-
ana á flugumferð yfir landinu vegna slæms veðurfars
í febrúar. Hins vegar hefur dregið hratt úr hömlum
á ferðalög milli landa á fyrstu mánuðum ársins og er
bólusettum farþegum nú frjálst að ferðast til stærstu
markaðssvæða Evrópu án þess að sæta sóttkví eða sýna
niðurstöðu COVID-prófs.
… og stríðsátök setja svip sinn á horfurnar þótt áfram
sé gert ráð fyrir kröftugum bata í ferðaþjónustu
Þrátt fyrir minni hömlur á ferðalög og bættar horfur
um farsóttina hafa horfur fyrir árið í ár versnað frá því í
febrúar vegna innrásar Rússa í Úkraínu og áhrifa henn-
ar á alþjóðlegar verðbólgu- og hagvaxtarhorfur (sjá
umfjöllun í kafla I og rammagrein 2). Enn sem komið
er hefur ekki borið á áhrifum stríðsins á ferðaþjónustu-
aðila hérlendis og eru áætlanir innlendra flugfélaga í ár
áþekkar og í febrúar. Áfram eru horfur á mikilli aukningu
flugframboðs þegar líður á annan ársfjórðung og útlit er
fyrir að það verði svipað í vor og sumar og það var árið
2019. Þá hefur leitum að gistingu og flugi til Íslands á
leitarvél Google fjölgað frá seinni hluta síðasta árs og
er fjöldinn orðinn sambærilegur og áður en faraldurinn
hófst (mynd III-14).
Áfram er því gert ráð fyrir kröftugum bata í ferða-
þjónustu í ár þótt áætlað sé að áhrifa aukinnar óvissu
og minnkandi kaupmáttar í helstu viðskiptalöndum
auk hærra farmiðaverðs sakir hækkandi olíuverðs fari
að gæta þegar líður á árið. Batinn verður því heldur
hægari en áður var spáð. Gert er ráð fyrir að 1,4 millj-
ónir erlendra ferðamanna komi hingað til lands í ár og
að meðalútgjöld þeirra verði lítillega minni en áður var
áætlað (mynd III-15). Búist er við að áhrifanna gæti fram
á fyrri hluta næsta árs en hversu mikil og langvarandi þau
verða fer eftir því hversu hratt horfur í heimsbúskapnum
batna á ný. Líkt og áður er áætlað að bati ferðaþjónustu
haldi áfram á næsta ári og ferðamönnum fjölgi milli ára
þótt vöxturinn verði lítillega minni en áður var spáð.
Samkvæmt spánni verður heildarfjöldi ferðamanna tæp-
lega 1,7 milljónir á árinu í heild.
Brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll
2019-20221
1. Uppsafnaður fjöldi hvers árs. Punkturinn sýnir heildarfjölda 2022 samkvæmt
grunnspá Seðlabankans.
Heimildir: Ferðamálastofa, Isavia, Seðlabanki Íslands.
2019 2021
Uppsafnaður fjöldi (þúsundir)
Mynd III-15
2020
0
500
1.000
1.500
2.000
2.500
DesNóvOktSepÁgúJúlJúnMaíAprMarFebJan
2022
Vísbendingar um umsvif í ferðaþjónustu1
1. ársfj. 2018 - 1. ársfj. 2022
1. Meðalútgjöld miðað við útflutning ferðalaga á föstu gengi, 1. ársfj. 2022 áætlaður
út frá erlendri kortaveltu. Fjöldi ferðamanna út frá brottförum erlendra farþega um
Keflavíkurflugvöll. Leitarniðurstöður út frá þáttalíkani sem tekur saman tíðni fimm
ólíkra leitarniðurstaðna sem tengjast ferðalögum til Íslands samkvæmt Google-leitar-
vélinni (árstíðarleiðrétt).
Heimildir: Ferðamálastofa, Google Trends, Hagstofa Íslands, Isavia, Seðlabanki
Íslands.
Fjöldi ferðamanna (v. ás)
Meðalútgjöld ferðamanna (v. ás)
Leitarniðurstöður (h. ás)
Fjöldi ferðamanna (þús.) /
Meðalútgjöld ferðamanna (þús. kr.)
Mynd III-14
Vísitala
0
100
200
300
400
500
600
700
800
900
1.000
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
100
‘222021202020192018