Morgunblaðið - 15.10.2022, Side 16

Morgunblaðið - 15.10.2022, Side 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2022 „Rússarnir skilja alls staðar eftir sig sviðna jörð,“ segir Óskar Hall- grímsson, ljósmyndari sem búsett- ur er í Kænugarði, en hann hefur síðustu daga verið á ferðalagi um þau svæði í Donbas-héruðunum, sem Úkraínumenn hafa frelsað ný- lega. Óskar segir að hann hafi meðal annars á ferðum sínum rekist á munkaklaustur, þar sem Rússar höfðu komið sér upp bækistöð, og var klaustrið nú rústir einar. Sömu sögu var að segja af einu þorpi, Kamjanka í Karkív-héraði, en þar stóð ekki eitt einasta hús uppi. „Það er einhvern veginn þannig, að það skiptir engu máli hvert ég kem, þar sem Rússar hafa verið, þá er allt í rúst,“ segir Óskar og bætir við að þeir séu nánast eins og hvirfilbylur. Óskar segir að hann hafi reynt ásamt blaðamanni að komast til Líman, sem Úkraínumenn frelsuðu nýverið. Ferðalagið hafi verið mjög erfitt þar sem búið var að sprengja allar brýr og leggja jarðsprengjur á flesta aðalvegi, og þegar komið var að borginni hafi herinn ekki viljað hleypa þeim inn, þar sem enn voru jarðsprengjur á götunum og ekki hægt að tryggja öryggi þeirra. Hann bætir við að það sé ljóst að gríðarlega mikið hreinsunar- og uppbyggingarstarf bíði Úkra- ínumanna.„Ég hef heyrt þúsund sögur af fólki sem hefur misst hús- ið sitt, aleiguna eða nána ætt- ingja,“ segir Óskar en bætir við að þrátt fyrir það séu allir Úkraínu- menn tilbúnir að leggja hönd á plóg, jafnvel þótt það geti kostað þá lífið. „Maður fær aftur trú á mannkynið við að sjá þetta, eftir að hafa nánast misst hana vegna stríðsins.“ sgs@mbl.is Skilja eftir sig slóð eyðileggingar Við klaustrið Mörg dýr eru nú á vergangi, þar sem eigendur þeirra hafa neyðst til að flýja. Vinur eða óvinur? Úkraínumenn hafa verið iðnir við að handsama rúss- neska skriðdreka og beita þeim nú óspart gegn fyrri eigendum sínum. Klaustrið Rússar höfðu komið sér rækilega fyrir í klaustrinu og skildu það eftir í rústum. Ljósmyndir/Óskar Hallgrímsson Sjúkrahús Rússar breyttu þessari kirkju í Karkív-héraði í hersjúkrahús og notuðu meðal annars kertastjaka til þess að halda uppi vökvapokum fyrir sjúklingana. Var allt á rúi og stúi inni í kirkjunni þegar þeir yfirgáfu hana. Súpueldhús Balaklíja í Karkív-héraði var ein fyrsta borgin til að falla í hendur Rússa. Sjálfboðaliðar bjóða nú íbúum borgarinnar súpu og brauð. - Enginn bilbugur á Úkraínumönnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.