Fréttablaðið - 25.02.2023, Blaðsíða 41
Þegar Kara Arngrímsdóttir
danskennari fann fyrir
auknu hárlosi var henni
bent á að prófa Smoother
skin & hair frá Eylíf. Eftir
nokkra mánuði fann hún
að hárið hafði þykknað og
húðin var orðin silkimjúk.
Hún segist varla hafa trúað
þessum góða árangri.
Kara rekur eigin dansskóla og
nú er starfið að byrja á fullu eftir
Covid-lokanir. Kara er að fara með
hóp af ungu fólki á danskeppni í
Black pool á Englandi á páskadag
en mikill hugur er í dönsurunum
enda hefur keppnin legið niðri í tvö
ár. „Við hlökkum öll til fararinnar,“
segir hún.
Þegar Kara var spurð hvers vegna
hún hafi byrjað að taka Smoother
skin & hair frá Eylíf segist hún hafa
orðið vör við óvenju mikið hárlos,
til dæmis stíflaðist sturtan, en
þetta hafi þó ekki verið alvarlegs
eðlis. „Það er ósköp eðlilegt að fá
hárlos á vissum tíma árs
en mér fannst þetta meira
en venjulega. Ég hef alltaf
verið með þykkt og gott
hár en fannst það
þynnast á tímabili.
Mér var bent á að
Smoother skin & hair
frá Eylíf gæti hjálpað
mér. Það væri mjög
gott, bæði fyrir húð og
hár. Ég ákvað því að
prófa,“ segir hún.
Steinhissa á
virkninni
Kara segist ekki hafa
fundið mun strax en
þegar um það bil þrír
mánuðir voru liðnir
frá því hún byrjaði að
nota Smoother skin & hair frá Eylíf
fór hún að taka eftir fullt af nýju
hári á höfðinu. „Hárgreiðslukonan
mín fór líka að spyrja mig hvað ég
hefði gert við hárið því
það væri einstaklega
þykkt og fínt. Húðin
var sömuleiðis orðin
alveg silkimjúk sem
kom mér á óvart. Það
gerðist reyndar fljótt,“
segir hún.
„Ég hef ekki tekið inn
fæðubótarefni áður
og var steinhissa hvað
þetta virkaði vel. Ég
get hiklaust mælt
með Smoother skin
& hair frá Eylíf,“ segir
Kara. „Ég tek líka inn
D-vítamín og Omega
3 á veturna. Auk þess
reyni ég að borða
hollan mat og sleppi
alveg unnum vörum.
Ég hef þá trú að gott mataræði
skipti máli,“ bætir hún við. „Ég
þarf að hafa góða orku sem dans-
kennari og hef verið að hlaupa og
gera styrktaræfingar reglulega til
að bæta þrekið. Ég er í miklu betra
formi núna eftir að ég fór að hreyfa
mig reglulega. Það er orðið dálítið
síðan ég hætti að keppa í dansi og
sem danskennari þarf maður ekki
að hreyfa sig mikið.“
Íslensk vara traustvekjandi
Kara segist taka 2-3 töflur daglega.
„Það þarf að gefa þessu aðeins tíma
til að sýnilegur árangur sjáist. Ég
hef trú á að kollagenið í vörunni
hafi mjög góð áhrif, bæði á hárið
og húðina. Smoother skin & hair
frá Eylíf er íslensk vara og það er
traustvekjandi. Maður vill styrkja
íslenska framleiðslu en auk þess er
það traustvekjandi að vita hvaðan
innihaldið kemur. Íslenskt hráefni
er yfirleitt bæði hreint og gott. Ég
verð að viðurkenna að ég er mjög
ánægð með þessa vöru. Smoother
skin & hair frá Eylíf hefur haft góð
áhrif á mig og ég get alveg hvatt
aðra til að prófa.
Kara stofnaði dansskóla með
Jóni Pétri árið 1989 en undan-
farin ár hefur hún rekið hann ein.
Nemendur eru á aldrinum þriggja
ára og upp í áttrætt. Hún segir að
það sé mikill áhugi fyrir dansi en
Covid hafi sett strik í reikninginn í
greininni þar sem dansskólar voru
lokaðir. „Ég á von á að allt fari á fullt
í dansinum í haust því það er fátt
skemmtilegra en að dansa.“
Smoother skin & hair frá Eylíf
er sérhönnuð blanda fyrir húðina,
hárið og neglurnar, sem inniheldur
íslensk hráefni svo sem kollagen,
astaxanthin, geosilica og að auki
A- og C-vítamín, nokkur B-vítamín
eins og bíótín, níasín, ríbóflavín og
pýridoxín ásamt sinki, kopar, joði
og seleni.
Heilsan er dýrmæt
Vörulína Eylíf býður upp á fimm
frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active
Joints, Stronger Bones, Smoother
Skin & Hair, Happier Guts og
nýjasta varan Stronger LIVER.
Vörurnar eru framleiddar á
Íslandi úr hreinum, íslenskum
hráefnum og engum aukefnum er
bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir
er stofnandi Eylíf.
„Hugmyndin að vörulínunni
kom til vegna þess að mig langaði
að setja saman þau frábæru hrá-
efni sem framleidd eru á Íslandi
á sjálf bæran hátt úr íslenskum,
náttúrulegum auðlindum og auka
þannig aðgengi fólks að þessum
hráefnum,“ upplýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Greni-
vík og þróun varanna er í sam-
starfi við sérfræðinga frá Matís.
„Við vöndum til verka, sækjum í
sjálf bærar auðlindir úr sjó og af
landi, og notum hreina, íslenska
náttúruafurð og hrein hráefni
sem eru framleidd af viðurkennd-
um íslenskum framleiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bæti-
efnin frá Eylíf eru ekki erfða-
breytt. „Þau stuðla að heilbrigði
og sveigjanlegri líkama því þá
erum við færari um að takast á við
verkefnin í dagsins önn. Við vitum
öll að heilsan er okkur dýrmætust
og því er svo mikilvægt að gæta
vel að henni og fyrirbyggja ýmis
heilsufarsvandamál,“ segir Ólöf
Rún. n
Eylíf vörurnar fást í öllum apó
tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup,
Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni
og Melabúðinni. Ókeypis heim
sending ef keypt er fyrir 7.000
krónur eða meira á eylif.is.
Kara hefur nóg
að gera við
að undirbúa
danskeppni í
Blackpool sem
fram fer í næstu
viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
„Mér var bent á að prófa
Stronger LIVER frá Eylíf og
ákvað ég að slá til. Ég hef
verið í eftirliti hjá lækninum
mínum vegna heilsufarsins
og fer reglulega í tékk og
blóðprufur, segir Ragnar Þór
Alfreðsson trésmiður.
Eftir að hafa notað Stron-
ger LIVER í nokkra mánuði
kom í ljós að blóðprufan
kom óvenjulega vel út, öll
gildin fyrir lifrina voru mun
betri en áður. Þetta kom mér
skemmtilega á óvart og hef
ég verið mjög ánægður með
vöruna því að mér líður vel
af því að nota hana.
Því get ég sagt með sanni
að ég mæli með Stronger
LIVER frá Eylíf og ætla að
halda áfram að nota vöruna.“
Stronger LIVER inniheldur:
Stronger LIVER inniheldur
uppbyggjand næringarefni
frá sjálf bærum auðlindum
til sjávar og sveita. Íslensku
hráefnin í Stronger LIVER
frá Eylíf eru kítósan, kalk-
þörungar, kísill, ætihvann-
arrót en auk þess eru kólín,
mjólkurþistill, kalsíum, C-
vítamín og magnesíum.
Best er að taka tvö hylki á
dag með mat til að viðhalda
heilbrigðum meltingar-
vegi. n
Líður betur og er ánægður með Stronger LIVER frá Eylíf
Ragnar Þór
Alfreðsson,
trésmiður.
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Hárið fór að vaxa og húðin silkimjúk
ALLT kynningarblað 7LAUGARDAGUR 25. febrúar 2023