Fréttablaðið - 25.02.2023, Blaðsíða 13
Mikilvægar upplýsingar
vegna verkbanns
Samtaka atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins hafa boðað til ótímabundins verkbanns á félagsfólk Eflingar á
almennum vinnumarkaði sem á að taka gildi á hádegi fimmtudaginn 2. mars.
Upplýsingagjöf SA varðandi verkbann hefur verið óljós og villandi. Ekki hefur komið
fram til hvaða fyrirtækja og stofnana verkbannið nær. Þá hefur komið fram í fjölmiðlum
að SA hyggjast veita víðtækar en um leið mjög óljósar undanþágur vegna starfa sem
tengjast tiltekinni starfsemi. SA virðast leggja það í hendur hvers og eins fyrirtækis að
meta hvort verkbannið nær til þeirra.
Vegna þessa vill Efling – stéttarfélag koma eftirfarandi á framfæri við félagsfólk sitt,
atvinnurekendur og allan almenning á Íslandi:
Á fyrirtækjum hvílir ekki skylda til þess að halda eftir launum starfsmanna, jafnvel
þótt fyrirtæki sendi fólk heim úr vinnu sökum verkbanns. Það er því val hvers og eins
atvinnurekanda hvort hann greiðir laun taki hann þátt í verkbanni.
Atvinnurekanda sem tekur þátt í verkbanni ber að veita starfsfólki sínu skýrar, skriflegar
upplýsingar um hvort og þá hvernig hann hyggist halda eftir launum starfsfólks. Veita
skal þær upplýsingar með eðlilegum fyrirvara.
Það er skylda atvinnurekanda að upplýsa hlutaðeigandi starfsmenn, trúnaðarmann á
hverjum vinnustað og eftir atvikum fulltrúa starfsmanna samkvæmt lögum nr. 151/2006
um eftirfarandi:
▪ Hvort og þá með hvaða hætti verkbann muni koma til framkvæmda á vinnustað.
▪ Hvort vinnuveitandi hyggist fella niður laun og/eða aðrar greiðslur til starfsmanns
meðan á verkbanni stendur.
▪ Hvort og þá hvaða áhrif verkbann komi til með að hafa á önnur réttindi starfsmanns
sem grundvallast á ráðningarsamningi, þ.m.t. orlof, veikindarétt og lífeyri.
Atvinnurekendur eru minntir á að þeim er ekki heimilt að láta aðra starfsmenn sinna
starfi þeirra sem reknir hafa verið heim úr vinnu vegna verkbanns.
Atvinnurekandi ber ábyrgð á öllu tjóni sem af verkbanni hlýst ef það reynist ólögmætt,
þ.m.t. því tjóni sem starfsmenn kunna að verða fyrir.
Atvinnurekandi ber ábyrgð á öllu tjóni sem hann veldur viðsemjendum sínum, ef
vanefndir á skuldbindingum styðjast við verkbann sem síðan reynist ólögmætt.