Fréttablaðið - 25.02.2023, Blaðsíða 60
„Það er ár síðan innrásin í Úkraínu
hófst og síðan eru þessar leiðinlegu
fréttir um endalausar kjaradeilur,“
segir fréttakonan Ingunn Lára
Kristjánsdóttir um heldur þunga
fréttavikuna. „Það er eiginlega sama
hversu mikilvægar þessar fréttir eru.
Maður er bara á bömmer yfir þeim,
en á sama tíma er ég svo rosalega
þakklát fyrir að það sé eitthvað sem
léttir dagana og ég er komin með
Eurovision-fiðringinn sem er ótrú-
lega kærkomin tilbreyting.
Ég hef líka sérstaklega gaman af
því hversu mikil samfélagsmiðla- og
TikTok stemning er í kringum Euro-
vision,“ segir hún og bendir á að Tik-
Tok-stjarna syngi danska lagið og að
framlag Noregs hafi verið byrjað að
„trenda“ á samfélagsmiðlunum áður
en það varð fyrir valinu í undan-
keppninni. „Það er alveg brjálað
dæmi sem ég hafði mjög gaman af.“
Ingunn telur þannig víst að
samfélagsmiðlaáhrifin á keppnina
verði varanleg og minnir á að Tik-
Tok sé einmitt einn helsti bakhjarl
Eurovision sem hvetji keppendur
til þess að nota miðilinn meira.
„Þannig að það er komin upp
áhugaverð og svolítið fyndin staða
þar sem Eurovision hvetur fólk til
að nota TikTok á meðan ESB bannar
það,“ segir Ingunn og vísar til þess
að framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur bannað starfsfólki
sínu að vera með TikTok í símum
sínum. n
Eurovision er ljósið í fréttamyrkrinu
Ingunn Lára, fréttakona á RÚV.
FRÉTTIR VIKUNNAR |
Ingunn Lára Kristjánsdóttir
Ljósmyndararnir Ásta Krist-
jáns og Kári Sverris verða með
námskeið í mars þar sem þau
fara yfir allt það helsta sem
huga þarf að fyrir tísku- og
portrettmyndatökur en Ásta
segir, þvert á það sem margir
kynnu að ætla, þörfina fyrir
fólk með gott auga aldrei hafa
verið meiri.
toti@frettabladid.is
Ljósmyndararnir þrautreyndu og
víðförlu Kári Sverris og Ásta Krist-
jáns ætla að miðla af reynslu sinni
og veita innsýn í heim tísku- og
auglýsingabransans á einnar helg-
ar masterclass-námskeiði í næsta
mánuði.
„Við erum bæði búin að vera í
þessu í fjöldamörg ár og rekast á
ýmsa veggi og ætlum að útskýra
hvernig þetta gengur fyrir sig þann-
ig að nemendurnir geti mögulega
komist fram hjá þessum hindr-
unum. Spara þeim smá tíma og
vesen,“ segir Ásta sem hefur meðal
annars myndað fyrir Vouge á fjöl-
breytilegum ferli.
Áherslan á námskeiðinu verður
á ljósmyndatökur af fólki, bæði
tísku- og portrait myndir og mikið
lagt upp úr sköpun, skipulagningu
og samstarfi við alls konar fagfólk
enda að mörgu að huga á setti.
Að tískutjaldabaki
Ásta segir námskeiðið í raun vinnu-
stofu þar sem nemendur fá að
skyggnast inn í heim tísku- og aug-
lýsingabransans á meðan þeim er
leiðbeint við eigin myndatöku. Þau
fái að spreyta sig sjálf í ljósmynda-
stúdíói með fyrirsætu og fagmann-
eskjum í förðun og stíliseringu.
„Við verðum í rosa flottu stúdíói,
Ey, úti á Granda og Arna Engilberts,
mjög f lottur stílisti, verður með
ráðgjöf alla helgina. Make-up skóli
Hörpu Kára verður líka með okkur
Skrefin inn í tískuheiminn
Kári Sverris og Ásta Kristjáns deila þekkingu sinni og víðtækri reynslu á námskeiðinu í mars. MYND/AÐSEND
Ásta
Byrjaði að taka myndir þegar
hún starfaði sem fyrirsæta
í Japan og stofnaði í kjöl-
farið Eskimo models 1995.
Hún hefur rekið STUDIO8 í
Reykjavík síðustu tíu ár og
myndir eftir hana hafa birst
í Vogue India, Surface og
Italian Vogue svo eitthvað
sé nefnt.
Hún hefur staðið
fyrir ljósmyndasýningum
fyrir Amnesty International,
Krabbameinsfélagið, Bara
eitt líf, Downs félagið, Barna-
spítala Hringsins og Save the
Children.
Kári
Hefur í rúman áratug unnið
sem ljósmyndari um allan
heim. Hann sérhæfir sig í
bjútí- og tískuljósmyndun og
hefur meðal annars unnið
fyrir þekkt merki og tímarit
á borð við Chanel, Eucerin,
Yamaha, ELLE, Glamour,
Shape, L’Officiel og Marie
Claire. Kári er búsettur á Ís-
landi en vinnur mikið í Þýska-
landi og London.
Myndir eftir Kára hafa
verið birtar á auglýsinga-
skiltum út um allan heim og
hann hefur haldið tvær ljós-
myndasýningar hérlendis.433.is
MÁNUDAGA KL. 20.00
Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri
433.is, fer yfir það helsta í
fótboltaheiminum. Hann fær til sín
áhugaverða viðmælendur og helstu
sparksérfræðinga landsins sem
gera upp mál málanna.
og módelin verða frá Eskimo mod-
els,“ segir Ásta. Þá munu Reykjavík
Foto leggja til ýmis tæki og tól .
Ólíkar hugmyndir
„Við látum þau vinna mikið sjálf. Þau
fá að velja sitt módel og verða með
sitt teymi,“ segir Ásta og bætir við
þau Kári verði nemendunum svo til
halds og trausts, skrafs og ráðagerða,
enda námskeiðið hugsað til þess að
koma þeim af stað.
„Og svo endar þetta með ljós-
myndasýningu. Við verðum alveg
á fullu alla helgina og stefnum líka
á að gera rosa flotta sýningu,“ segir
Ásta sem er þegar orðin spennt
að sjá afraksturinn sem verði alls
konar.
„Þetta er fólk á ólíkum aldri, með
ólíkar hugmyndir og mér finnst rosa
skemmtilegt að sjá hvað kemur út úr
því.“
Ásta blæs á þá ranghugmynd að
fullkomnir myndavélasímar séu að
gera ljósmyndara óþarfa þar sem
fólk geti bara gert þetta sjálft og
segir þau Kára aldrei hafa haft jafn
mikið að gera.
Oft var þörf
„Þörfin hefur aldrei verið meiri.
Meðal annars vegna þess að krafan
er svo mikið um að fólk sé með góðar
myndir alls staðar. Bara á samfélags-
miðlum og öllu.
Allt auglýsingaefni þarf að vera
rosalega vel gert og þú tekur ekkert
góða mynd af manneskju, módeli,
leikara eða hverjum sem er, bara
einn, tveir og þrír. Þess vegna er mikil
þörf fyrir fólk með gott auga sem
getur tekið góðar myndir og skapað
flottar ímyndir.“
Þetta endurspeglast ef til vill í
áhuganum á námskeiðinu sem er
við það að fyllast. „Það eru þrjú
pláss laus. Við byrjuðum að aug-
lýsa í fyrradag og það varð einhver
bomba þannig að mér sýnist þörfin
fyrir svona vinnustofu alveg augljós.
Þannig að þetta er bara mjög spenn-
andi.“
Hægt er að skrá sig á námskeiðið,
sem verður haldið helgina 18. og 19.
mars, á masterclassastakari.com og
nemendur þurfa vitaskuld að hafa
myndavél meðferðis, annað hvort
filmuvél eða stafræna. n
40 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR