Fréttablaðið - 25.02.2023, Blaðsíða 14
Kvik-
myndasafn
Íslands
gefur kvik-
mynda-
áhugafólki
færi á að
upplifa, í
Bíó Para-
dís, ýmsa
gullmola.
UM HELGINA |
VIÐ MÆLUM MEÐ |
BJORK@FRETTABLADID.IS
Það er ekki
oft sem við
fáum slíka
innsýn í
það allra
erfiðasta
sem nokk-
urt foreldri
getur
upplifað.
bjork@frettabladid.is
Kvikmyndasafn Íslands gefur kvik-
myndaáhugafólki færi á að upplifa,
í Bíó Paradís, ýmsa gullmola, einn
sunnudag í mánuði. Á morgun eru
það myndirnar, Hukkunud Alpin-
isti hotell frá 1979, Magnús frá 1989
og Freaks frá árinu 1932. Miðaverði
er stillt í hóf, eitt þúsund krónur
miðinn, en þeir sem sjá allar sýning-
arnar þrjár, greiða aðeins fyrir tvær.
Boðið verður upp á léttar veit-
ingar eftir sýninguna á Magnúsi
og umræður eftir Freaks, stjórnað
af Gunnari Tómasi Kristóferssyni
kvikmyndafræðingi og Evu Þór-
dísi Ebenezerdóttur, doktorsnema
í þjóðfræði. n
Bíótek í
Paradís
Hukkunud
Alpinisti hot-
ell/Hótel
gengna fjall-
göngumanns-
ins
Klukkan 15.00
Sovésk kvik
mynd byggð
á eistneskri
vísindaskáldsögu.
Lögreglan fær út
kall frá afskekktu
fjallahóteli sem
reynist vera gabb.
Skyndilega fellur
snjóflóð sem ein
angrar hótelið frá
umheiminum og
undarlegir hlutir
fara að gerast
þar sem alls kyns
furðuverur koma
við sögu.
Magnús
Klukkan 17.00
Myndin segir frá Magnúsi,
lögfræðingi sem Egill Ólafsson
leikur, sem kippir sér ekkert
upp við að láta bera bæði
ekkjur og munaðarleysingja
út á guð og gaddinn. Honum
bregður þó heldur betur í brún
þegar hann fær skyndilega þær
fréttir að hann sé sjálfur alvar
lega veikur.
Freaks
Klukkan 19.30
Ein umdeildasta hryllings
mynd heims var gagnrýnd
fyrir þær sakir að leikstjórinn
fékk fatlaða leikara úr farand
sirkus til að fara með hlutverk
í myndinni. Talað var um að
kvikmyndagestir hefðu ýmist
kastað upp eða fallið í yfir
lið. Myndin var víða bönnuð,
sums staðar áratugum saman,
en hefur síðan verið endur
uppgötvuð.
Vinkonurnar Lay Low og Lára Rúnars telja í tónleika á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK OG KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR
Söngkonurnar og vinkonurn-
ar Lovísa Elísabet, Lay Low,
og Lára Rúnarsdóttir bjóða
upp á sambland af söng og
slökun á morgun, sunnudag.
Tónleikarnir hefjast klukkan
11 og eru þær handvissar um
að þetta sé skotheld leið til að
hefja góðan sunnudag.
bjork@frettabladid.is
Lára Rúnarsdóttir segir þetta vera
hennar tilraun til að sameina þá
ólíku heima eða ástríður sem hún
starfar innan.
„Það er að færa tónleikana heim
í Móa, í það umvefjandi og hlýja
umhverfi, og gefa tónlistarfólki
tækifæri á að f lytja tónlist sína í
þeirri umgjörð,“ segir hún.
„Móar eru griðastaður þar sem
iðkun eins og jóga, hugleiðsla, tón-
heilun og slökun á sér stað alla daga.
Fólkið sem heim í Móa leitar er flest
að sækjast eftir að líða betur í eigin
skinni, minnka streitu og tengjast
sjálfu sér og umhverfinu á dýpri
hátt.“
Enginn uppstrílaður
Lára segir það vera mikla gjöf að
fá að f lytja lögin sín þar og finna
hversu móttækilegt og opið fólk sé.
„Mér finnst áheyrnin vera algjör
og það verður meira rými fyrir sam-
veru og sameiginlega upplifun en
dóma, samanburð og gagnrýni, sem
oft einkennir tónlistarbransann. Í
sunnudagssöng gefst fólki færi á að
leggjast niður, vefja um sig teppi og
njóta þaðan. Það er ekki uppstrílað í
þröngum nælonsokkabuxum,“ segir
hún í léttum tón.
Söngkonurnar kynntust þegar
þær báðar störfuðu í Skífunni,
Laugavegi, árið 2006.
„Við vorum á tímabili saman í
hljómsveit sem hét Skífubandið,
með Halldóri Gunnari Fjallabróður,
Halla úr Bloodgroup, Björt Sigfinns
úr Furi og Ísabellu og Benna B-Ruff.
Við spiluðum til að mynda eftir-
minnilega tónleika á Ísafirði þar
sem var djammað aðeins of mikið
í rútunni á leiðinni. En gaman var
það!“ segir hún og hlær.
Sárnar kakóumræðan
Lára segir það ófrávíkjanlega reglu
að byrja á kakó frá Guatemala.
„Kakó sem er svo umtalað og mis-
skilið víða en er í grunninn ótrúlega
mögnuð fæða fyrir líkama, huga og
sál. Það opnar hjartað og aðstoðar
okkur inn í hugleiðslu og slökunar-
ástand, einfaldlega vegna efna eins
og magnesíum, andoxunarefna og
anandamide. Þetta er allt náttúru-
legt, upplífgandi og fallegt. Ég verð
alltaf miður mín þegar umræðu,
sem ætti að beinast að staðar- eða
viðburðarhöldurum sem misnota
þessa fæðu eða kjósa að blanda við
hana hugvíkkandi efnum, stundum
án þess að láta fólk vita, er beint að
kakóinu sjálfu því í grunninn er það
algjör gjöf. Gjöf sem þjónar mörgum
en alls ekki öllum. Hver og einn
verður að finna fyrir sig og alltaf er
boðið upp á te líka.“
Móar munu bjóða upp á sunnu-
dagssöng einu sinni í mánuði þar
sem Lára fær í heimsókn til sín tón-
listarfólk sem hún elskar. „Í sunnu-
dagssöng gefst tónlistarfólki líka
tækifæri á að deila meiru um lögin
sín og hvaðan þau spruttu. Það er
líka svo mikið rými fyrir mistök og
spuna. Jónas Sig, Elín Ey og Ragga
Gröndal eru meðal þeirra sem hafa
þegar kíkt í heimsókn.“
Miða á Sunnudagssönginn má
finna á moarstudio.is. n
Rými fyrir mistök og spuna
Í sunnudagssöng gefst
fólki færi á að leggjast
niður, vefja um sig
teppi og njóta þaðan.
Það er ekki uppstrílað í
þröngum nælonsokka-
buxum.
Lára Rúnarsdóttir
Á ferð með mömmu
Kvikmynd Hilmars Oddssonar, Á
ferð með mömmu, sem frumsýnd
var fyrir helgi, er listaverk sem vert
er að mæla með. Ferðalagið með
þeim Þresti Leó Gunnarssyni og
Kristbjörgu Kjeld er hrein unun
fyrir áhorfandann sem ekki bara
hrífst með í samtölum og þögnum
þeirra tveggja, heldur stígur um borð
í tímavél aftur til níunda áratugarins
þegar enn voru böll í Bjarkarlundi og
snúa þurfti við kassettum.
Dreka Ramen
Á Black Dragon í Mathöllinni á Hafn-
artorgi má finna geggjaðar ramen-
súpur. Í boði eru tvær tegundir en
mælum við sérstaklega með Dra-
gon Ramen. Hún inniheldur ferskar
ramen-núðlur bornar fram með sho-
yu-grísasoði. Súpan er svo toppuð
með vorlauk, pikkluðum skalotlauk,
eggi, hægeldaðri svínasíðu og svartri
hvítlauksolíu. Algjört lostæti. n
Í helgarviðtalinu að þessu sinni segir Ásta Marý
Stefánsdóttir, sögu frumburðar síns, Stefáns
Svans, sem fæddist með sjaldgæft heilkenni
og lést aðeins fjögurra mánaða gamall. Sem
nýbökuð móðir sýndi Ásta mikinn kjark með
því að leyfa litla drengnum sínum að verja síðustu vik-
unum og loks kveðja þessa jarðvist, heima í sveitinni
umvafinn ást sinna nánustu. Frásögn hennar af þeim
degi lætur varla nokkurn lesanda ósnortinn þar sem
óumflýjanleg sorgin er sveipuð ást og fegurð. Það er
ekki oft sem við fáum slíka innsýn í það allra erfiðasta
sem nokkurt foreldri getur upplifað. Einhverjir gætu
átt erfitt með að komast í gegnum frásögnina, undir-
rituð gerði það ekki með þurra hvarma, en ég er ekki
frá því að það hafi líka verið gott.
Því svona er lífið stundum, eins óvægið og það kann
að hljóma.
Og það heldur áfram, lífið. Fjármunum þeim sem
nærsveitungar höfðu safnað fyrir ungu móðurina með
veika barnið, var sannarlega varið til góðs. Ásta Marý
nýtti þá til að greiða fyrir gjafasæði og meðferð sem
skapaði nýtt líf: soninn Jón Ármann, sem í hjarta Ástu
er dásamleg minning um stóra bróður sinn.
Ásta vill segja sögu Stefáns Svans sem oftast og það
var bæði sárt og gott að hlýða á hana. n
Kjarkur móður
14 HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR