Fréttablaðið - 25.02.2023, Blaðsíða 2
Konan sagði barns-
faðir sinn hafa beitt
sig ofbeldi allan þeirra
sambúðartíma.
Vetrargæfir laukar
heima við hús taka
áreiðanlega við sér,
vísast á fölskum vor-
nótum.
Einar Svein-
björnsson,
veðurfræðingur
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Alex og William
manual hvíldarstólar
Alex manual með 20% afsl. 195.000 kr.
Alklæddir
Anelín leðri
Litir: svart,
dökkbrúnt og cognac
William manual með 20% afsl. 215.000 kr.
Nú með
20%
afslætti
Arnarhóll er að taka á sig grænan lit og landsmenn kætast vegna hlýinda sem
ná yfir allt landið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Gera má ráð fyrir miklum
hlýindum áfram, allt að sex
gráðum yfir meðallagi. Líkur
á vorvillum lauka, landsmenn
léttir, en tjón er einnig í upp-
siglingu.
bth@frettabladid.is
VEÐUR Gera má ráð fyrir að hlý-
indin sem nú ríkja á landinu vari
langt fram í næstu viku, jafnvel
lengur. Hitinn verður 3-6 gráðum
yfir meðallagi á þessum tíma.
Flestir landsmenn hafa kæst yfir
vorbragnum sem verið hefur á veðr-
inu síðustu daga. Léttklætt fólk sést
ganga brosandi um götur Reykja-
víkur, án yfirhafna og húfu! Er af
sem áður var eftir krefjandi tíðarfar
allt frá miðjum desember.
Forráðamenn skíðasvæða eru þó
ekki í hópi þeirra sem fagna. Fleiri
neikvæðir fylgifiskar hlýindanna
eru í pípunum að sögn Einars Svein-
björnssonar, veðurfræðings hjá
Vegagerðinni og Bliku.
Með nokkurri vissu segist Einar
geta staðhæft að mjög ör bráðnun
klaka undir þjóðvegunum þessa
dagana í hitanum muni stór-
skemma klæðningu. Tjónið gæti
hlaupið á milljörðum króna.
Þá segir Einar að SV-áttin norður
af landinu sé óæskileg til lengri
tíma.
„Hún veldur stíflu í reki hafíssins
suður með Grænlandsströndum.
Þótt útbreiðsla hafíss geti ekki talist
mikil virðist hún nærri meðallalagi.
Svona stífla getur því aukið líkur á
að ís komist nær landi síðar í vetur
eða í vor.“
Þá geti sunnanáttin ýtt upp langt
að kominni öldu sem geti torveldað
loðnuveiðar á verðmætasta tímabil-
inu næstu tvær vikur að sögn Einars.
„Ef ölduhæð verður 5-6 metrar
getur skapast vandi. Það getur vel
verið að skipstjórar geti beitt skip-
um sínum þannig að hægt verði að
veiða loðnuna í svo mikilli ölduhæð
en óvissan er fyrir hendi.“
Hvað gróðurinn varðar segir
Einar að enn sé sól lágt á lofti og
áfram verði klaki dýpra í jörðu.
„En vetrargæfir laukar heima við
hús taka áreiðanlega við sér, vísast
á fölskum vornótum.“
Hlýindakaflinn gæti staðið lengi
enn að sögn Einars. Virðist óhætt
að fullyrða að hlýindin vari langt
út næstu viku, kannski lengur.
Það þykir saga til næsta bæjar að
sögn Einars ef frávik hitans verður
allt að sex gráðum frá meðalári.
Verslunarmenn í nágrenni Arnar-
hóls, sem nú er óðum að taka á sig
grænan lit, töldu sig sjá aukna lífs-
gleði meðal kúnna sinni í gær, jafn-
vel örlítið aukna neyslu. Það er því
spurning hvort áhrif veðursins á
verðbólguna verða einnig nokkur. n
Landsmenn gleðjast yfir
hlýindum sem þó kosta sitt
Stríð í eitt ár
Það var tilfinningaþrungin stund við torgið Kænugarð í Reykjavík í gær þegar fjöldi fólks kom saman til að minnast þess að eitt ár er liðið síðan innrás Rússa í
Úkraínu hófst. Úkraínumenn á Íslandi ávörpuðu viðstadda og minntust þeirra sem hafa fallið í stríðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
gar@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Rússneski sendiherrann
í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
truflaði í gær einnar mínútu þögn
sem Dmytro Kuleba, utanríkisráð-
herra Úkraínu, bað viðstadda að
virða til að minnast fórnarlamba
árásarinnar á landið.
Sló rússneski sendiherrann,
Vasilij Nebenja, í hljóðnema sinn í
miðjum klíðum og bað fundarstjóra
um orðið.
Þegar fundarmenn voru sestir
aftur eftir mínútu þögnina fékk
Nebenja orðið og sagði þá að minn-
ast ætti allra fórnarlamba atburða-
rásarinnar sem byrjað hafi árið
2014. Það ár lagði Rússland undir sig
Krímskaga með valdi. Sú innlimum
hefur aldrei verið viðurkennd af
alþjóðasamfélaginu.
„Við stöndum upp til að heiðra
alla sem látist hafa. Hvert einasta líf
er ómetanlegt,“ sagði Nebenja sem
stóð síðan upp og og gaf til kynna
með bendingu að aðrir fundar-
menn ættu einnig að rísa úr sætum.
Það gerðu þeir sem sátu við borðið í
öryggisráðinu þó ekki. n
Rússinn truflaði
minningarstund
Vasilij Nebenja,
sendiherra
Rússa í öryggis-
ráði SÞ
jonthor@frettabladid.is
DÓMSMÁL Landsréttur staðfesti í
gær átta mánaða skilorðsbundinn
fangelsisdóm Héraðsdóms Reykja-
ness yfir móður sem nam tvö börn
sín og sambýlismanns síns á brott
og fór með þau til heimalands síns,
án þess að fá leyfi föðurins.
Móðirin fór með börnin til
útlanda árið 2019, en þá var sonur
þeirra á leikskólaaldri og dóttir
þeirra enn á brjósti. Móðirin neitaði
sök og sagðist óttast föðurinn. Hún
vildi meina að allan sambúðartíma
þeirra hefði hann beitt hana ofbeldi.
Faðirinn sagðist ekki hafa viljað
stöðva móðurina vegna þess að
sonur þeirra hafi verið orðinn mjög
spenntur fyrir ferðinni „enda verið
búið að hræra í honum með lýsing-
um á öllu því skemmtilega sem gera
ætti í ferðinni,“ segir í dómnum.
Einnig hafi hann ekki viljað
stöðva þau með valdi svo börnin
hefðu ekki þá mynd af föður sínum
að hann væri ofbeldisfullur.
Dómurinn mat það svo að móð-
irin hefði ekki haft rétt á því að fara
með börnin erlendis án þess að fá
leyfi frá föðurnum, þar sem þau
væru með jafnríkan rétt til að taka
ákvarðanir um þau. n
Fangelsisdómur yfir móður staðfestur
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR